Íslendingur - Ísafold

Tölublað

Íslendingur - Ísafold - 19.03.1969, Blaðsíða 3

Íslendingur - Ísafold - 19.03.1969, Blaðsíða 3
ÍSLENDINGUR-ÍSAFOLD — MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1969 3 Blað f. Vestfirði, Norðurland og Austur- land. Regluleg útgáfa um 90 tbl. á ári. ýmist 8 eða 12 síður. Ársáskr. 300 kr. Útgeíandi: Útgáfufélagið Vörður h.f. Framkv.stjóri: Oddur C. Thorarensen. Ritstjóri: Herbert Guðmundsson (áb.). Skrifstoíur að Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri. Afgreiðslusíini 21500, auglýs- ingasími 21500, ntstjórnarsími 21501. Prentsmiðja að Glerárgötu 32, 2. heeð, Akureyri. Sími prentsm.stjóra 21503. Hækkyn á lægslti laun og atvinnuöryggi Litlar fréttir berast af samningaviðræðum vinnu- veitenda og verkalýðssamtak anna. Þó er ljóst, að verka- lýðssamtökin hafa krafizt vísitöluuppbóta á laun, óslit ið skv. sama kerfi og samið var um í fyrra, en vinnuveit endur hafa boðið að taka kerfið upp að nýju frá 1. október nk. Engu verður spáð um fram vindu samningaviðræðn- anna, en óneitanlega virðist ckki hlaupið að því að leysa hnútinn. Allir eru liins veg- ar sammála um, að þjóðin hafi ekki efni á verkföllum. Það verður því að gera allt sem í mannlegu valdi stend- ur til að koma í veg fyrir þau. Eðlilegasta lausnin er auðvitað sú, að lægstu laun vcrði hækkuð, þar sem ekki er unnt að lifa af þeim, og að atvinna verði tryggð fyr- ir alla. En það er hægara sagt en gert að meta það, hvar á að skera mörkin og hvernig á að leggja nægilegt fé til að tryggja atvinnu á sama thna og þjóðarbúið hef ur orðið að taka á sig jafn stórfellda tekjurýrnun og raun ber vitni. A næstu dögum mun það ráðast, hvort aðilum tekst að finna leið út úr vandanum, sem vissulega er meiri nú en áður, þótt sjaldan hafi í raun og veru borið minna á milli deiluaðila í upphæðum talið. Til þess að bæta kjör þeirra, seni nú hafa lægst laun, er e.t.v. ekki nauðsyn- legt að hækka kaupið beint, eða halda uppi vísitölubót- um í þeirri mynd, sem verið hefur. Allt eins má hugsa sér að íryggingarkerfið komi til skjalanna, en í gegn um það virðist unnt að færa tekjur frá hátekjumönnum og mönnum með hærri meðal- tekjur til hinna lægst laun- uðu. Þetta er nauðsynlegt að kanna, eins og á stendur, enda er ekki hægt að halda dauðahaldi í óbreytta tekju- skiptingu við núverandi að- stæður. En liöfuðmáli skiptir þó, að tryggja fulla atvinnu. Ráðstafanir þær, sem verið er að gera í því efni, koma til með að bæta verulega horfur í atvinnumálum, eink um þó, þar sem atvinnurek- endur og launþegar hafa sýnt mikinn áhuga á að nýta þær ráðstafanir sem bczt og til frambúðar. Ef meðferð þess fjármagns, sem til ráð- stöfunar verður, bæði í sam- bandi við þessar sérstöku ráðstafanir og útlánastarf- semi bankakerfisins, breytist í það horf, að eðlilegt mat á arðsemi rekstursins verði lagft til grundvallar, hefur vandinn kennt okkur mikiis verða dyggð. Þá verður í rauninni fyrst hægt að bú- ast við sæmilcgri festu í at- vinuulífinu. Hermannsmótiö í Hlíðarfjalli við Akureyri: Jöfn og hörð barátta um titlana Á laugardag og sunnudag fór fram í Hlíðarfjalli við Akur- eyri hið árlega Hermannsmót, tileinkað Hermanni Stefánssyni íþróttakcnnara, en að þessu sinni var það um leið svokall- að „Punktamót“ til undirbún- ings Skíðamóti íslands. Kepp- endur voru mun færri en gert hafði verið ráð fyrir, þar sem veÖur og ófærð komu í veg fyr- ir ferðalög skíðafólks frá sum- um stöðum á landinu. Hins veg- ar varð keppnin jöfn og hörð milli beztu þátttakendanna. 19. deild í handknaftleik: A hélt sætinu Um helgina voru leiknir þrír leikir í II. deild Hand- knattlciksmóts íslands, allir í Reykjavík. Ármann vann Þrótt með 26 mörkum gegn 24, Víkingur vann KA með 29 mörkum gegn 21 og KA vann IBK með 24 mörkum gegn 15. Staðan í deildinni er þá þannig: Víkingur 6 6 0 0 147:101 12 Þróttur 6 3 0 3 127:115 6 Ármann 6 3 0 3 124:129 6 KA 7 2 1 4 136:149 5 ÍBK 5 0 1 4 80:121 1 Eins og sést af þessu, er Víkingur öruggur með sigur í deildinni. Hér á eftir fara úrslit í Tvn- stökum greinum: Ganga, 10 km: 1. Haíldór Matthíasson, 53.45 min. 2. Stef- án Jónasson, 57.49. 3. Sigurður Jónsson, 58.33. 4. Ingvi Óðins- son, 58.59. Allir þessir menn eru frá Akureyri, en ekki kepptu aðrir en Akureyringar í greininni. Stórsvig kvenna: 1. Barbara Geirsdóttir, A, 81.8 sek. 2. Sig- rún Þórhallsdóttir, Hú., 100.3. Svigkvenna: 1. Karólína Guð mundsdóttir, A, 105.1 sek. 2. Sigrún Þórhallsdóttir, Hú., 111, 9 sek. Alpatvíkeppni kvenna: I. Bar bara Geirsdóttir, A, 129.10 stig. 2. Sigrún Þórhallsdóttir, Hú., 156.76 stig. 3. Guðrún Siglaugs- dóttir, A, 274.88 stig. Stórsvig karla: 1. Hafsteinn Sigurðsson, fs., 83.4 sek. 2.—3. Viðax Garðarsson, A, og' Raynir Brynjólfsson, A, 85.8 sek. Svig karla: 1. Reynir Bryn- jólfsson, 4r 105-18 sek. 2. Haf- steinn Sígurðsson, ís., 105.45 sek. 3. Víðar Garðarsson, A, 108.16 sek. Alpatvíkeppní karla: 1. Haf- steinn Sigurðsson, ís., 1.56 stig. 2. Reynir Brynjólfsson, A, 18.64 stig. 3. Viðar Garðarsson, A, 33.74 stig. 4. Magnús Ingólfs- son, A, 38.68 stig. 5. Ingvi Óð- insson, A, 56.90 stig. 6. Jóhann- es B. Jóhannesson, ís., 330.64 stig. Haröarmótinu frestað • Ráðgert var að ljúka Harð- armótinu í Neskaupstað á laug- ardaginn, en vegna óhagstæðs veðurs vai'ð að fresta því og verður því vænlanlega lokið næsta Iaugardag. Körfuknatlleiksmót íslands: ÞÓR MEISTARI í BÁÐUM KVENMAFLOKKLIMUM íslandsmeistarar Þórs í meistaraflokki kvenna ... og í 2. flokki kvenna, ásamt Einari Boltasyni þjálfara og Halldóri Helgasyni, formanni Þórs. Á laugardag og sunnudag átti að fara franv geysimikið körfu- knattleiksmót á Akureyri, en vegna mikilla samgönguerfið- leika féllu margir leikir niður. (Trslit fengust aðeins í háðum kvennaflokkunum, meistara- og 2. flokki. Sigraði íþróttafélagið Þór á Akureyri í þeim báðum. Urslitaleikurinn í meistara- flokki kvenna var milli Þórs og KA og sigruðu Þórs-stúlk iirnar með yfirburðum. I 2. fl. kvetvna lékn Þór og HSH (Snæfelling- ar) til úrslita, og sigruðu Þórs- stúlkurnar þar með 17:9. Áður höfðu stúlkurnar af Snæfells- rvesi sigrað KA-stúIkurnar með 19:0. Þá fór franv einn leikur í 4. fl. karía, þar sigraði KR Þór með 16:1. Von var á keppendum frá Patreksfirði og ísafirði, en þeir konvust ekki, og féllu því niður leikir, senv þeir áttu að taka þátt í, bæði við lið á Akureyri og frá Sauðárkróki. Snæfelling- arnir, senv brutust norður, lentu í hrakningunv á báðum leiðum og í bakalciðimvi fór bifreið þeirra út af á Öxnadalslieiði og skemnvdist talsvert, en engan sakaði. Ekki er vitað um franvhald kcppninnar, vegna samgöngu- erfiðleikanna. Knattspyrnu mót inni Knattspyrnuráð Akureyrar efnir til innanhúss-knattspyrnu móts í íþróttaskenvmunni á föstudagskvöldið kl. 20,30. — Keppt verður í I. og II. dcild. Þátttöku á að tilkymva Ilreini ; Oskarssyni, form. ráðsins, fyrir fimmtudagskvöld. Þeir „Old hoys“ félagar, sem hafa áhuga á þátttöku, eru beðn ir að hafa samband við Pál Stef ánsson sem fyrst. FjöEmennt Egilsstaðamót haldið í Um síðustu helgi var haldið skíðamót í Fagradal, svokailað Egilsstaðamót. og var keppt í stórsvigi í fjórum flokkum, en svigkeppni féll niður vegna veð urs. Keppendur voru 37 frá Nes kaupstað, Eskifirði, Seyðisfirði og Egilsstöðum. Þó voru kepp- endur í kvennaflokki aðeins frá Egilsstöðum og Eskifirði, því stúlkumar frá Seyrðisfirði og Neskaupstað hættu við þátt- töku eítir að hafa þurft að ganga langa leið yfir heiðar. Úrslit urðu þessi: Karlaflokkur. 1. Rúnar Jó- hannsson, Nesk., 91.0 sek. 2. Emar Rafnsson, Nesk., 106.9 sek. 3. Ármann Guðmundsson, Egilsst., 116.6 sek. — 14—17 ára Fagradal karlar; 1. Vilmundur Þorgríms- son, Seyðisf., 69.0 sek. 2. Sigurð ur Birgisson, Nesk., 75.0. 3. Sig urbcrgur Kristjánsson, Nesk., 88.2 sek. — 14 ára og yngri karl ar: 1. Sigurður Gíslason, Seyð- isf., 39.1 sek. 2. GuðmLindur Árnason, Egilsst., 40.1 sek. 3. Guimar Hauksson, Eskif., 45.6 sek. — Kveiuvaflekkur: 1. Auð- ur Egilsson, Egiísst., 96.0 sek. 2. Þorbjörg Pétursdóttir, Eskif., 103.6 sek. 3. Bjarnrún Haralds- dóttir, Eskif., 107.0 sek. Braulir lagði Sverrir Jónsson frá ísafirði, ert hann hefur hald ið skiðanámskeið eystra að und anfömu. Um páskaava verður naidið skiðamót Fljótsdalshéraðs og verður það opið.

x

Íslendingur - Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur - Ísafold
https://timarit.is/publication/677

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.