Íslendingur - Ísafold - 10.09.1969, Blaðsíða 5
ÍSLENDINGUR-ÍSAFOLD — MIÐVIKUDAGUR 10. SEPT. 1969 5
itarstjóra
i\D OG A IMVJAIM
{RESTIIMIM IUIKLA
þeirri spurningu, hvort stað-
urinn ætti hreinlega að leggj-
ast í auðn eða ekki. Hvort
flytja ætti íbúana suður í
blokk í Breiðholti, eða hefja
uppbyggingu atvinnulífsins.
— Ekki vildum við leggja
árar í bát, og var stofnað hér
hlutafélag, Jökull hf., sem
keypti brunarústir frystihúss-
ins og hófst handa um endur-
byggingu þess. Það má segja,
að það verk hafi gengið vel,
og fengu nokkrir vinnu þar.
Það var hins vegar ekki nægi-
legur bátafloti fyrir hendi til
að afla því hráefnis, og fór því
félagið að leita hófanna um
kaup á stórum báti.
Hverjir eru aðaleigendur
htutafélagsins?
— I upphafi voru um 60 ein
staklingar hluthafar auk
hreppsins, en nú er svo kom-
ið, að hreppurinn á langmest-
an hluta í félaginu.
^ Og ykkur tókst að kaupa
bátinn.
— Við keyptum nýlegan
stáibát af Guðmundi Jörunds-
syni útg.manni, og hlaut hann
nafnið Jökull. Það var þó ekki
hrist fram úr erminni að kom-
ast yfir bátinn, en með opin-
berri aðstoð tókst það að lok-
um. Annars er það kaldhæðn-
islegt, hvað það er miklum
erfiðleikum bundið að fá fjár-
magn til að koma atvinnu-
rekstri í gang aftur á stað eins
og þessum. þar sem mikið at-
vinnuleysi hefur ríkt og yfir
milljón greidd í atvinnuleysis
bætur á síðasta ári. Það er
ekki við þvi að búast, að
hreppsfélag, sem búið hefur
við langvarandi atvinnuleysi
hafi fjármagn til að leggja
fram á mót '"'kinu. En okkur
tókst sem sagt að kaupa bát-
inn og koma honum á veiðar
og það er fyrir mestu.
♦ Hvernig hefur útgerðin
gengið í sumar?
— Eftir að frystihúsið tók
til starfa hefur vinna verið
mikil og nægilegt hráefni bor
izt á land. Jökull hefur verið
Ásgeir Ágústsson
á togveiðum og aflað sæmi-
lega. Þrír dekkbátar eru gerð
ir út héðan, auk trillubáta, og
ennfremur hafa nokkrir að-
komubátar lagt hér upp. Hef-
ur þetta nægt til þess að halda
frystihúsinu gangandi og
nokkuð er verkað í salt. Einn-
ig er Óðinn hf. með fiskmót-
töku og saltfiskverkun.
— Ástandið er því orðið allt
annað en var, og ef við fengj-
um 2—3 góða dekkbáta til við
bótar, ætti að vera tryggð hér
nokkuð stöðug atvinna. Það er
eina vonin til að byggja þenn-
an stað áfram, að fiskveiðar
og vinnsla geti gengið uppi-
haldslítið.
^ Hvaða framkvæmdir eru
helzt aðkallandi núna?
— Það er mikið nauðsynja-
mál að endurnýja vatnsveit-
una, því kerfið er að verða ó-
nýtt. Það má ekki dragast
lengi að hrinda því í fram-
kvæmd.
— Greiðar samgöngur eru
ómetanlegar fyrir öll byggð-
arlög. Nú er kominn sæmileg-
ur vegur til Þórshafnar, sem
er greiðfær yfir sumarmán-
uðina. En í raun og veru er
vart hægt að tala um veg lang
leiðina til Kópaskers. Þetta er
ruddur troðningur mikinn
hluta leiðarinnar og ótrúlega
krókóttur. Ef lagður yrði veg-
ur yfir sléttuna í nokkurn veg
inn beina línu til Kópaskers,
stytti það leiðina um helming
og mætti gera þann veg þann-
ig, að hann yrði akfær mestan
hluta ársins. Myndi það stór-
bæta alla flutninga til staðar-
ins.
— Flugvöllur var gerður
hér skammt frá fyrir stuttu og
fastar flugferðir milli Akur-
eyrar og Raufarhafnar tvisv-
ar í viku. Áætlunarbifreið ek-
ur til Akureyrar alla virka
daga. Strandferðaskipin hafa
einnig viðkomu hér, svo við
erum sæmilega settir með sam
göngur, minnsta kosti yfir
sumartímann.
— Höfnin er ágæt, var dýpk
uð í fyrra, félagsheimilið nýtt
og vel úr garði gert, barna-
skólinn getur tekið við helm-
ingi fleiri nemendum, við
þyrftum bara að bæta við mið
skóla. Það er því aðallega veg
urinn og vatnsveitan, sem eru
knýjandi framkvæmdir, en
við höfum haldið að okkur
höndunum undanfarið hvað
öllum framkvæmdum við kem
ur, því ekki eru tekjustofnar
fyrir hendi til að greiða þær.
Þeir koma, þegar grundvöll-
ur atvinnulífsins er orðinn
traustari.
— Nú þurfum við að ein-
beita okkur að því að efla út-
gerðina og ég vil enn taka það
fram, að ef ekki er hægt að
halda henni gangandi, er til
einskis að tala um framtíð
staðarins. Við höfum gengið í
gegn um neyðarástand og
verði það á ný hlutskipti Rauf
arhafnarbúa, þarf ekki að
spyrja að leikslokum. En það
á ekki að þurfa að dynja yfir
aftur, ef allir aðilar leggjast á
eitt. Verðmæt atvinnutæki og
híbýli eru í húfi, ásamt átt-
hagaböndum fólksins. Það er
sannarlega mikið í húfi.
Sigursveitin; Matthías, Jónas, Karl og Konráð.
(Mynd: Ljósm.stofa Páls.).
Jónas H. Haralz
90 Tveir nýiir bankastjórar
Á fundi bankaráðs Lands-
banka íslands, sem haldinn var
í dag, var samþykkt að ráða
bankastjóra í stað Péturs heit.
Benediktssonr og Jóns Axels
Péturssonar, þá Jónas H. Har-
alz hagfræðing og Björgvin Vil
mundarson aðstoðarbankastj.
Tekur Björgvin við störfum nú
þegar en Jónas þann 1. nóv. nk.
(Mbl. 6. 9.).
Björn Vilmundarson
[M] Misjöfn laxveiði
Laxveiðinni fer nú senn að
ljúka. Veiðitíminn hófst um 20.
júní og lög gera ráð fyrir, að
hann standi í þrjá mánuði.
Hin mikla úrkoma í sumar
hefur hindrað veiðiskapinn og
veiðimenn kvartað undan miklu
vatnsmagni í ám, sem skapar
erfiðleika við stangarveiðina,
sagði Þór Guðjónsson veiðimála
stjóri. Þetta hefur leitt til mis-
jafnrar veiði í ánum — meiri í
landshlutum þar sem þurrviðri
hefur haldizt og minni þar sem
vætutíð hefur verið landlæg í
sumar.
Beztu árnar í sumar eru Laxá
í Kjós, en þar höfðu veiðzt 1.
sept. 1.440 laxar, og Þverá í
Borgarfirði, en það höfðu veiðzt
1.170 laxar um miðjan ágúst.
Tölur um laxveiði í nokkrum
ám um síðustu mánaðamót voru
þannig: Víðidalsá 708, Svartá
121, Laxá í Aðaldal um 1.200,
Norðurá 913 þann 15. ágúst,
Straumfjarðará 262 þann 24.
ág., Laxá í Dölum 519 og Mið-
fjarðará 655.
(Vísir 6. 8.).
90 Kaupa silfur og postulín . . .
Nú rignir inn málum hjá
Borgardómaraembættinu í
Reykjavík vegna vanskila ís-
lenzkra skipverja, sem undirrit
að hafa samninga um kaup á
alls konar silfurvarningi og
postulíni hjá danska fyrirtæk-
inu Sölwico í Kaupmannahöfn.
Skipveriamir eru sumir ekki
orðnir fiárráða og því óheimilt
að efna til fjárhagslegra skuld-
bindinga. Flestir skipverjanna
hafa greitt lítinn hluta verðsins
við móttöku varanna ,en und-
irskrifað samning um greiðslu
afgangsins. Flestir virðast ekki
hafa gert sér grein fyrir samn-
ingnum og sumir ekki lesið
hann. Eru nú komnar um 100
kærur af þessu tagi.
(Alþýðublaðið 5. 8.).
\ STUTTU MÁLI
90 Mjólkurvörur hækka
Framleiðsluráð landbúnað-
arins hefur ákveðið nokkra
hækkun á mjólk og mjólkur-
vörum, vegna hækkunar á
verðlagsgrundvelli skv. vísi-
töluhækkun launa, eftirstöðva
af gengisfellingunni, aukins
dreifingarkostnaðar o. fl. —
Hækkar mjólk í lausu máli
um 75 aura hver lítri í 12.90
kr. (Mbl. 2. 9.).
90 Mánafoss seldur
Eimskip hefur selt minnsta
skip sitt, Mánafoss, til Grikk-
lands. Skipið er 10 ára gam-
alt, 498 tonn. Það hefur verið
í eigu Eimskips í ’hálft sjö-
unda ár. Eimskip athugar nú
um kaup á öðru og stærra
skipi í staðinn.
(Mbl. 2. 9.).
90 5 milljóna sala
Togarinn Sigurður seldi ný-
lega í Bremerhaven í Þýzka-
landi 215 tonn fyrir 229 þús.
mörk, eða um 5 millj. kr. Er
þetta ein bezta sala togara er-
lendis um tveggja ára skeið.
Fékk Sigurður aflann á heima
miðum og heldur þangað aft-
ur eftir smávægilegar lagfær-
ingar. (Mbl. 2. 9.).
90 Vilja nýja nefnd
Á aðalfundi Stéttarsam-
bands bænda í Reykjavík 29.
til 31. ágúst var m.a. samþ.
tillaga, þar sem beint var
þeim tilmælum til landbúnað-
arráðherra, að hann skip nú
þegar þriggja manna nefnd,
sem starfi á svipuðum grund-
velli og harðærisnefndin í
fyrra. Einnig var ályktað um
að brýna nauðsyn beri til að
efla Bjargráðasjóð stórlega.
(Tíminn 2. 9.).
90 Mótmæltu reglugerðinni
Aðalfundur Stéttarsam-
bands bænda samþykkti mót-
mæli gegn reglugerð við lög
um brevtingu á lausaskuldum
bænda í föst lán, bæði varð-
andi vexti og lánstíma. Ósk-
aði fundurinn eftir breyting-
um á þessum atriðum, lækk-
un vaxta til samræmis við
vexti Breiðholtsbúa, frestun
afborgana og lengingu láns-
tíma. (Tíminn 4. 9.).
90 Reif fingur af
Það slys varð á bænum
Hólmatungu í Jökulsárhlíð
eystra, að maður festi gifting-
arhring sinn í sláttutætara og
skipti engum togum, að fing-
urinn rifnaði af. Var maður-
inn fluttur í sjúkrahús í
Reykjavík.
(Mbl. 4. 9.).
90 Síld fyrir 12 millj.
Heildarsöltun síldar á Hjalt
landsmiðum er nú orðin 47
þús. tunnur. Er Heimir SU frá
Stöðvarfirði enn aflahæztur,
er kominn með 4.600 tunnur,
og er verðmæti þess afla tæp-
ar 12 milljónir króna. Söltun-
in er nú orðin helmingi meiri
en á sama tíma í fyrra.
(Vísir 3. 9.).
90 Hreindýraveiði léleg
Lítið hefur verið skotið af
hreindýrum það sem af er
veiðitima, en hann hófst 7.
ágúst og stendur til 20. sept.
Hafa naumast verið skotin
nema 100 dýr, aS áliti Egils
Gunnarssonar eftirlitsmanns.
Heimilt er að skjóta 600 dýr
að þessu sinni.
(Vísir 3. 9.).