Íslendingur - Ísafold - 30.12.1970, Side 4
* ÍSLENDINGUR-ÍSAFOLD - MIÐVIKUDAGUR 30. DES. 1970.
Jónas Pétursson alþm:
Samgönguáætlun fyrir
Austurland í vegamálum
Við þriðju umræðu fjárlaga
sam samþykkt heimild fyrir
ríkisstjórnina að taka 60 millj-
ón króna lán til vegafram-
kvæmda á Austurlandi á árinu
1971. Samgönguáætlun Austur
lands í vegamálum hefur ver-
ið í smíðum að undanförnu, og
er nú frágangi hennar að verða
lokið. Fjármálaráðherra, Magn
ús Jónsson, gerði grein fyrir
málinu við þriðju umræðu fjár
laga. Fyrirhugað er, að áætl-
unin hljóði upp á framkvæmd-
ir fyrir um 300 millj. króna,
sem unnið yrði að á 5 árum.
Þegar samgönguáætlun Vest
fjarða var ákveðin og fjár-
mögnuð, einkum með láni frá
Viðreisnarsjóði Evrópuráösiris,
varð um það óformlegt sam-
komulag, að þegar henni lyki,
kæmi röðin að Austfjörðum.
Það orkaði ekki tvímælis, að
þeir tveir landshlutar voru eft-
irbátar í vegamálum. Viöur-
kenndur er stórkostlegur ár-
angur Vestfjarðaáætlunar í veg
um þar.
Um rúmlega eins árs skeið
hefur Austurlandsáætlunin ver
ið í mótun. Undirbúningur hef
ur farið fram hjá vegamála-
stjórn og í Efnahagsstofnuti,
en áður hjá sveitarfélagasam-
bandi Austurlands. Og nú er
sem sagt áætlunin að verða til
búin. Þær framkvæmdir, sem
höfuðáherzlan verður lögð á,
eru á Austurlandsvegi frá
Álftafirði til Breiðdals, um
Suðurfjarðaveg og Fagradal og
Austurlandsveg að Arnórs-
staðamúla. Um Oddskarð,
Fjarðarheiði og Vopnafjarðar-
leið. Það kemur í hlut vega-
málastjórnar að útfæra áætl-
unina í sinærri atriðum og
tímaröð, þegar til fulls er frá
henni gengið, sem eklci ætti að
þurfa að dragast úr þessu.
Vafalaust munu heyrast
raddir um, að eitt og annað sé
álitanrál um verkefni áætlun-
arinnar. En það ætti að verða
einhugur um, að því fyrr sem
framkvæmdir hetjast sam-
kvæmt áætluninni, því betra.
Og engum dylzt, að með fyrir-
huguðum 300 millj. króna
verði kapítulaskipti í vegarriál-
um á Austurlandi. ÞAÐ hefur
fyrst og fremst vakað fvrir bar
átlumönnum málsins, — það,
að bætt vegakerfi á Austur-
landi, HVAR sem það vcrður,
er sigur þeirra, sem fjórðung-
inn byggja, og svo auðvitað sig
ur Islands.
Þær raddir hafa heyrzt, að
hér væri kosningamál á ferð.
Ég læt mér það í léttu rútni
liggja .Hér hefur komizt á fast
an grunn annað af tveimur
mestu hagsmunamálum Aust-
firðinga. Hitt er virkjun Lag-
arfoss, sem lögfest var á Al-
þingi hinn 16. des. sl.
Málin þokast áfram.
Jónas Pétursson, alþm.
Samgönguáætlunin mun rjúfa þá einangrun, sem margir staðir á Austfjörðum búa við mestarr hluta ársins.
HEILABROT
UM ÁRAMÓT
1. Óvenjulegt reikningsdæmi
— Já, því að svona líta
dæmin í reikningsbókum ykk-
ar víst ekki út. Leggið nú heil-
ann í bleyti, og þá liggur býsna
Ijóst fyrir, hversu þung gæsin
er.
1. Gæsin vegur = 1 kg + pott
urinn.
2. Potturinn vegur = 1 lcg +
tvær vínflöskur.
3. Fjórar vínflöskur vega jafnt
og gæsin.
Hve þung er gæsin?
2. Hve margar eldspýtur?
— I eldspýtnastokknum,
sem ég hef hér í hendinni, er
ákveðinn fjöldi eldspýtna, —
sagði reikningskennarinn dag
nokkurn við nemendurna. —
Ef ég legg þær í raðir hér á
borðið og hef þrjár eldspýtur
í hverri röð, verður ein af-
gangs. Ef ég legg fjórir í hverja
röð, ganga tvær af. Með fimrn
eldspýtur í hverri röð fæ ég
þrjár afgangs, og leggi ég lolcs
sex í hverja röð, ganga fjórar
af. Hve margar eldspýtur eru
þá í stokknum?
3. Talnaleikur
Takið tölurnar frá 1 —9 og
setjið þær upp í þrjár raðir
með þremur tölum í hverri
röð, þannig að út komi 15,
hvort sem þær eru lagðar sam-
an lóðrétt eða lárétt. (Fleiri en
ein lausn geta verið á þessari
þraut).
4. Það er jú hægt!
Fáið lánaðar tíu buxnatölur
hjá mömmu og leggið þær í
fimm raðir þannig, að í hverri
röð verði fjórar tölur.
5. Kíló sinnum pund
Margfaldið 10 pund með 5
kg. — Auðvitað gildir einu,
hvort kílóunum er breytt í
pund eða pundunum í kíló.
Prófum: 5 lcg = 10 pund,
— 10x10 pund = 100 pund.
Eða: 10 pund = 5 kg, —
5x5 kíló = 25 kg, — eða 50
pund! — Er vitlaust reiknað,
eða hvað er að?
GATUR
Hér koma nokkrar íslenzk-
ar vísnagátur, sem gaman er
að spreyta sig á.
1. Mikil frú, um mittið þykk,
móðu geymir staupa,
ofan í hana eftir drykk
ótal strákar hlaupa.
2. Margvíslegt mitt efni er,
en eðli mitt er jafnan það,
að óvörum ég öllum ber,
einkum þegar náttar að.
3. Oft á hrygginn er mér bylt,
opnuð til að liggja,
ef þú dyggur af mér vilt
uppfræðingu þiggja.
4. Eineygð snót með yddum
hramm
ærið langan hala dró,
við sporið hvert, sem fór
hún fram,
frúar styttist rófan mjó.
VEISTU ? ? ?
1. Hvenær gaus Hekla í fyrsta
sinn, síðan sögur hófust?
2. Hvert er frostmark vatns á
Fahrenheit?
3. Hvaða tveir merkisatburðir
gerðust í sögu íslands árið
1845?
4. Hve mörg kíló eru í einni
smálest?
5. Hvert er stærsta stöðuvatn
á íslandi?
6. Hvaða ár lézt Kristján 10.
Danakonungur?
7. Hvernig er merki forseta Is-
lands?
8. Hver cr félagsmálaráðherra
á íslandi?
9. Eftir hvern er jólasálmurinn
,,í dag er glatt í döprum
hjörtum"?