Íslendingur - Ísafold - 30.12.1970, Page 6
6 ÍSLENDINGUR-ÍSAFOLD - MIÐVIKUDAGUR 30. DES. 1970.
— Hvað ætla eiginlega að koma margir í kvöld? —
GLENS
LM
Araiuót
Það var reykingaráðstefna á
heimilinu.
— Ef þið lofið mér því, að
reykja ekJd fyrr en þið eruð
orðin 21 árs, skal ég verðlauna
ykkur með 10 þúsund krónum,
sagði húsbóndinn við börnin
sín þrjú.
— Ég tek boðinu, hrópaði
dóttirin, sem var 17 ára.
Annar sonurinn, 15 ára, hik
aði. — Þetta er vandamál. sem
ég verð að íhuga vel, það er
ekki víst, að ég felii mig við að
binda mig svona lengi.
— Hvers vegna komstu ekki
með þetta tilboð fyrr? sagði
vngsti sonurinn, 12 ára.
— Pabbi, hvað heitir þessi
bygging?
— Ég veit það ekki, dreng-
ur minn.
— Hvað heitir þetta vega-
merki?
— Veit það ekki.
— Pabbi, þú ert vonandi
ekki reiður, vegna þess hvað
ég spyr mikið?
— Alls ekki, drengur minn.
Spurðu bara, það er einasta
leiðin til að öðlast þekkingu.
Það var í sveit nokkurri, að
Jónas og Andrés kepptu um
hreppstjórastöðuna. Um kvöld
ið, þegar Jónas kom heim,
sagði kona hans:
— Komstu ekki með hann
Andrés með þér?
— Nei, hvers vegna átti ég
að gera það?
— Þú sagðir í morgun, áður
en þú fórst að heiman, að í
nótt skyldi ég fá að hvíla hjá
hreppstjóranum.
Eitt sinn voru í Varsjá límd-
ir upp ótal fregnmiðar, sem á
var letrað: — Pólsk-Sovézk
vináttuvika. — Við þetta höfðu
all margir bætt: — Og ekki
degi lengur!
— Hvaðan kernur stormur-
inn og óveðrið, Öli litli? spurði
kennarinn.
— Úr henni ömmu, svaraði
Óli hildaust.
— Hvað meinarðu, strákur?
— Jú, í hvert skipti, sem
veður versnar, segir amma, að
það hafi legið í sér í marga
daga.
— Læknirinn hefur skipað
mér að hætta við áfengi, kon-
ur og söng.
— Og hefur þú gert það?
— Ja, ég hef ákveðið að
segja mig úr karlakórnum . . .
Stína litia, sem var bara 4
ára gömul, mætti eitt sinn
konu á götu og ók konan tví-
buravagni. Sneru tvíburamir
hver á móti öðrum í vagnin-
um. Stína spurði konuna hvað
an þetta barn væri komið.
Frá Guði, vina mín.
— Já, datt mér ekki í hug.
Ljósmóðirin kom með okkar
barn, og það hefur bara höfuð
á öðrum endanum.
Albert piparsveinn var lífs-
glaöur náungi um þrítugt. —
Vinnufélagi hans vék sér að
honum einu sinni og spurði
hann, hvort hann ætlaði ekki
að fara að hugsa fyrir giftingu.
— Ég sé enga ástæðu til
þess, svaraði Albert — Ég hef
tvær systur, sem sjá mér fyrir
því, sem ég þarfnast
— Já, en ekki geta systur að
öllu leyti komið í stað eigin-
konu?
— Ja, því ekki það? Þær eru
ekki systur mínar.
Samúel bóndi keypti sér líf-
tryggingu og greiddi skilvís-
lega af henni í mörg ár.
Svo hætti vátryggingafélagið
að fá greiðsluna eitt vorið, og
þegar það sendi áminningar-
bréf, fékk það svohljóðandi
svarbréf:
— Ég undirrituð, ekkja Sam
úels heitins Jóelssonar, til-
lcynni yður hér með. að hann
andaðist fyrir tveimur mánuð-
um, og vegna þess að ég er
fátæk manneskja, verð ég því
miður að segja upp líftrygg-
ingu hans.
Virðingarfyllst,
Bjarghildur Björnsdóttir.
Fyrirlesarinn talaði um
drykkjuvenjur meðal dýra: .
— Ef ég set nú tvö drykkj-
arílát fyrir asna, annað fyllt
með vatni, en hitt með bjór.
Úr hvoru ílátinu haldið þið, að
hann mundi drekka?
— Úr vatnsílátinu, svaraði
rödd í salnum.
— Og hvers vegna? spurði
ræðumaður.
— Af því að þetta er ASNI,
svaraði röddin.
Það var snemma í marz ár-
ið 1945. Skoti nokkur sagði
v;ð lcunningja sinn:
— Stríðinu verður lokið eft
ir tvo mánuði.
— Hvernig geturðu vitað
það? spurði kunninginn.
— Það bregzt elcki, svar-
aði Skotinn ákveðið. Sonur
minn hefur verið kallaður I
herinn, og hann hefur hingað
til ekki verið neins staðar
lengur í þjónustu en tvo mán-
uði.
Og það stóð heima!
— Góðan dag, sagði kunn-
ingi við veðurfræðinginn, sem
var annars hugar.
— Ha, — já, það er útlit
fyrir það!
1. Gæsin vegur 4 kg (pottur-
inn 3 kg og hver vínflaska
1 kg)-
2. 58 eldspýtur.
3. Tölurnar skulu skrifaðar
þannig:
4 9 2 = 15
3 5 7 = 15
8 1 6 = 15
15 15 15
Og horn í horn stemmir
þetta einnig. Hægt er að
ieysa þrautina á fleiri vegu.
Vandinn er bara: Setjið tölu
stafinn 5 í miðjuna, og jöfnu
tölurnar í hornin!
4. Tölurnar eru lagðar þannig,
að þær myndi fimm arma
stjörnu. (Vafalaust kunnið
þið að teikna fimm arma
stjörnu. þannig að línurnar
skeri hver aðra og innan
armanna myndist sexhyrn-
ingur. Leggið eina tölu yzt
á hvern arm, og síðan þar
sem armarnir mætast).
5. Nei, það er ekki vitlaust
margfaldað, — en það er
hvorki hægt að margfalda
kíló með kílóum né pund
með pundum, — margfaldi
maður sentimetra með senti
metrum, koma út fersenti-
metrar, og það er allt ann-
að en bara ,,venjulegir“
sentimetrar. Og það er víst
ekki til neitt, sem heitir ,,fer
kíló“ eða „ferpund."
Lausnir á gátum:
1. Blekbytta.
2. DraumuT.
3. Bók.
4. Saumnál.
Svör v>ð snurningum:
t.Arið 1104.
2. 32°.
3 Albin”' var endurreist; lézt
skáM'ð Tónas Hallgrímsson.
4. 1000 kg.
5 Öskiuvatn.
6. Arið 1947.
7. Merki forseta Islands er
skjöldur, að löeun o.g lit
e'ns o" skjöTdnrinn í skjald-
armerki íslands en þar sem
armar krossmarksins mæt-
ast. er hvítur. ferhyrndur
reitur og i honum skjaldar-
merk' fslands og skjaldber-
ar.
8. Eggert G. Þorsteinsson.
9. Séra Valdemar Briem v'gslu
biskup.
— Sonur minn skal fá allt það, sem ég sjálfur óskaði mér í
jólagjöf, en fékk ekki! —