Íslendingur - 05.05.1999, Síða 1
MAI
1999
Ávarp til kjósenda:
í þágu öaracSs
og þjóðar
Kosningabaráttan er komin á lokastig og
kostirnir sem kjósendur standa frammi
fyrir eru skýrir. Sjálfstæðisflokkurinn býð-
ur fram trausta stefnu í efnahagsmálum
sem skapar grundvöll fyrir nýrri atvinnu-
starfsemi og betri lífskjörum í framtíðinni.
Traust staða ríkissjóðs gerir það mögulegt
að bæta heilbrigðisþjónustu, efla skóla-
starf og auka velferð íbúanna. Síðast en
ekki síst vill Sjálfstæðisflokkurinn leggja
sig fram um að ná sátt um fiskveiði-
stjórnunina en standa jafnframt vörð um
hagsmuni sjávarútvegsins, sem er undir-
stöðuatvinnugrein þjóðarinnar.
Hér á Norðurlandi munum við vinna að
því að bæta samgöngur með stórátaki í
vegamálum Norður-Þingeyinga með
tengingu til Austurlands og jarðgöngum
til Siglufjarðar. Með bættum fjarskiptum
og aukinni rannsóknastarfsemi skapast
grundvöllur fyrir aukinni fjölbreytni í at-
vinnulífi kjördæmisins og nýrri sókn á
sviði ferða- og fjarskiptamála.
í kjördæminu okkar stendur baráttan um
það að tryggja Tómasi Inga Olrich kosn-
ingu kjördæmakjörins þingmanns. í þeirri
baráttu gæti atkvæði þitt, kjósandi góður,
ráðið úrslitum. Tómas Ingi hefur með
verkum sínum sýnt að hann er traustsins
verður. í starfi sínu sem formaður utan-
ríkisnefndar hefur hann á alþjóðavett-
vangi haldið uppi málstað íslands og
staðið vörð um hagsmuni þjóðarinnar.
Fyrir kjördæmið hefur hann gengið fram
fyrir skjöldu í ýmsum mikilvægum hags-
munamálum þess.
Fjórir efstu menn D-lista Sjálfstœðisflokksins, þan Halldór, Tóntas Ingi,
Soffta og Ásgeir Logi.
Við Sjálfstæðismenn höfum að kjörorði
Árangur fyrir alla. af því að við viljum
að góður afrakstur þjóðarbúsins nái til
allra þegna þjóðarinnar. A Norðurlandi
höfum við jafnframt sagt Áfram Norður-
land, af Joví að við höfum trú á framtíð
þess og vitum að með því að halda rétt á
málum munu byggðirnar hér fyrir norðan
eflast og þróast og verða það mótvægi
við höfuðborgarsvæðið sem við þörfn-
umst og þjóðin þarfnast.
Eg heiti á þig, kjósandi góður, að veita
okkur stuðning með atkvæði þínu. Rök-
stuðningurinn fyrir þeirri beiðni eru þau
verk sem við höfum unnið í þágu lands
°gpm'4UU
Fösfudagur 7. maí
Morgunverðar
fundur á Greifanum
kl. 8.00
Fjölmennum
KjOirdagur - Kjördagur
Laugardagur 3. maí
Akstur á
kjördag
Stuðningsfólk
D-listans getur hringt til
okkar á kosningaskrif-
stofurnar og pantað bíl.
Akureyri
Sími 462 1500
Dalvík
Sími 466 1619
Húsavík
Sími 464 2622
Ólafsfjörður
Sími 466 2714 og
466 2715
Kosningakaffi
í Sjallanum á Akureyri
kl. 15-17.30
í Vikurröst á Dalvík
kl. 14-17
Á Gamla-Bakkanum
á Húsavík kl. 10-22
í Húsi aldraðra í Ólafsfirði
kl. 10-22
Kosningavaka
í Kaupangi á Akureyri
frá kl. 22
í Víkurröst á Dalvík
frá kl. 22
Á Gamla-Bakkanum
á Húsavík frá kl. 22
í Húsi aldraðra í Ólafsfirði
frá kl. 22
orðurland