Íslendingur - 05.05.1999, Page 4
orðurland
Tómas Ingi Olrich
-einn atorkusamasti og framsýnasti þingmaður landsins
Tómas Ingi Olrich hefur verið þingmaður Norðurlandskjördæmis eystra frá árinu 1991 og er því að ljúka sínu öðru kjör-
tímabili. Hann er vel menntaður og víðlesinn og er tvímælalaust í hópi atorkusömustu og framsýnustu þingmanna lands-
ins. Tómas Ingi hefur víða látið til sín taka, ekki síst í hinum ýmsu málefnum kjördæmisins. Hann er e.t.v. þekktastur fyr-
ir störf sín að uppbyggingu Háskólans á Akureyri og margvisleg störf á sviði ferðamála. Tómas Ingi hefur látið mjög til
sín taka á Alþingi á sviói umhverfismála. Þar hefur hann m.a. tekist á við öfgafyllstu sjónarmið í umhverfis- og náttúru-
vernd. Gegn þessum öfgum hefur hann varið uppbyggilega og jákvæða umhverfisstefnu, sem leggur áherslu á upp-
græðslu landsins. Við hvetjum lesendur til að kynna sér yfirlitið hér að neðan um störf Tómasar Inga og styðja hann í
kosningunum á laugardaginn til áframhaldandi starfa í þágu kjördæmisins.
Stefnumótun og þróunarstarf
í feróamálum
Árið 1991 flutti Tómas Ingi tillögu til þings-
ályktunar um stefnumótun og þróunarstarf
í ferðaþjónustu. Á grundvelli hennar skip-
aði samgönguráðherra stýrinefnd og fjöl-
marga starfshópa. Tómas Ingi átti sæti í
stýrinefndinni og nefnd um menntun og
rannsóknir i ferðaþjónustu. Sú nefnd skil-
aði m.a. tillögum hvað varðar Háskólann á
Akureyri.
Rannsóknir í ferðaþjónustu
Árið 1995 flutti Tómas Ingi tillögu til þings-
ályktunar um rannsóknir í ferðaþjónustu.
Á grundvelli tillögunnar hefur verið stofn-
uð gagnamiðstöð við skrifstofu Ferðamála-
ráðs íslands á Akureyri og starfsemi skrif-
stofunnar efld til að ýta undir rannsóknir.
Samstarfssamningur Háskólans
á Akureyri og Ferðamálaráðs
Sem varaformaður í Ferðamálaráði frá
1995 lagði Tómas Ingi áherslu á að fjár-
munum yrði varið til að byggja upp upp-
lýsingaöflun og rannsóknir í ferðaþjón-
ustu. Sérstök framlög til rannsókna voru
ákveðin og standa nú undir reglulegum at-
hugunum á viðhorfi ferðamanna til þeirrar
þjónustu sem þeir eiga kost á hér á Iandi.
Utivistarmaðurinn Tómas Ingi fer gjarnan
snemma morguns ígönguferð í Hlíðarfjalli.
Sem formaður stjórnar Ferðamálaráðs Is-
lands frá ársbyrjun 1999 hefur Tómas Ingi
beitt sér fyrir því að koma á samstarfs-
samningi milli Háskólans á Akureyri og
Ferðamálaráðs. Tilgangurinn með slíku
samstarfi er að sérhæfð rannsóknastofnun
á sviði ferðamála verði starfrækt innan vé-
banda Háskólans á Akureyri.
Nú er svo komið að ferðaþjónustan sýnir
rannsóknum mikinn áhuga og jafnframt
hefur verið viðurkennt að rannsókna- og
þróunarstarf er brýnt til að auka arðsemi í
greininni. Háskólinn á Akureyri hefur brot-
ið blað í sögu rannsókna og kennslu á
sviði ferðamálafræði. Á öllum vett-
vangi þessa máls, á Alþingi, í
Rannsóknaráði rikisins og í Ferða-
málaráði hafði Tómas Ingi frum-
kvæðið og kom málunum í gegn.
Vetraríþróttamiðstöð
íslands
Til þess að rjúfa þá stöðnun, sem
orðin var á uppbyggingu vetrar-
íþróttamannvirkja á Akureyri, beitti
Tómas Ingi sér sérstaklega fyrir því
að stofnuð yrði Vetraríþróttamið-
stöð íslands á Akureyri með aðild
ríkisins. Búið er að tryggja fjárfram-
lög sem munu tryggja að gerbreyt-
ing verður á aðstöðu til iðkunar
vetraríþrótta á Akureyri og bærinn hefur
Starfsferill
•Kennari við Menntaskólann á Akureyri 1970-1991
• Aðstoðarskólameistari MA 1973-1983
• Hótelstjóri Hótel Eddu, Akureyri 1971-1973
• Ritstjóri íslendings 1984-1985
• Alþingismaður Sjálfstceðisflokksins í Norðurlandskjördœmi eystrafrá 1991
• Formaður Skógrœktarfélags Eyfirðinga 1983-1991
• / stjórn Skógrœktarfélags íslands 1985-1991
• Formaður Háiskólanefndar Akureyrar 1985-1987
• Sat ífyrstu stjórn Háskólans á Akureyri 1988-1990
•ístjórn Knattspyrnufélags Akureyrar 1988-1991
• Formaður Skipulagsnefndar Akureyrar 1990-1991
• í stjórn Slippstöðvarinnar á Akureyri 1991-1992
• Fulltrúi íþingmannasamtökwn Norður-Atlantsbafsríkjanna 1991-1993
• í Rannsóknaráði ríkisins 1991-1993
• Formaður sendinefndar Alþingis á þingi Öryggis- og samv.stofnunar Evróþu 93-95
• í Iðnaðarnefnd Alþingis 1991-1995
• í Menntamálanefnd Alþingis frá 1991
• 1 Umbverfisnefnd Alþingis frá 1991
• Fulltrúi íslands á þingi Evrópuráðsins frá 1995
• í vísinda- og tœkninefnd Evrópuráðsins frá 1995
• í Utanríkismála?iefnd Alþingis frá 1995
•Formaður Utanríkismálanefndar Alþingis frá aþríl 1998
• Varaformaður Ferðamálaráðs íslands 1993-1999
• Formaður Ferðamálaráðs frá 1999
fengið opinberlega viðurkennt forystuhlut-
verk sitt á sviði vetraríþrótta.
Þá hefur Tómas Ingi beitt sér fyrir þvi að
Akureyri bjóði með sérstökum hætti þjón-
ustu fyrir fatlaða ferðamenn en sá hópur
ferðamanna er mjög vaxandi. I Vetrar-
íþróttamiðstöð íslands á Akureyri hefur
þegar verið tekið á þessu máii.
í stofunni heima í Alfabyggð 20 á Akur-
eyri ásamt eiginkonunni, Nínu Þórðar-
dóttur.
Þróun vetrarferðamennsku
Nú sem stendur er Tómas Ingi, i samstarfi
við Halldór Blöndal samgönguráðherra, að
kanna möguleika á að þróa sérstaklega
vetrarferðamennsku á Norðurlandi eystra.
Eru hugmyndir um þá þróun m.a. sóttar til
Finnlands.
Uppbygging Háskólans á
Akureyri
Uppbygging Háskólans á Akureyri hefur
verið mikið áhugamál Tómasar Inga frá
upphafi. Hann var formaður þeirra
tveggja nefnda á vegum Akureyrarbæjar
sem undirbjuggu, ásamt ráðherranefnd
ÍSLENDlrieð^
Afinn Tómas Ingi með dótturdœturnar
Söm og Karen Rebekku.
undir forystu Halldórs Blöndals, stofnun
Háskólans á Akureyri og lögðu línur um
verkefni skólans og skipulag.
Stofnun kennaradeildar HA
Tómas Ingi hafði frumkvæði að þvi gagn-
vart menntamálaráðuneyti að samþykkt
var að stofna til kennaradeildar við Há-
skólann á Akureyri og fylgdi því máli eftir
uns það gekk í gegn.
Fyrsti byggingaráfangi HA
Á liðnu ári beitti Tómas Ingi sér mjög fyr-
ir því að samningur yrði gerður um fyrsta
byggingaráfanga Háskólans á Akureyri.
Framkvæmdir eru nú í fullum gangi.
Fjarkennsla og nýting
upplýsingatækni
Háskólinn á Akureyri og Verkmenntaskólinn
á Akureyri hafa haslað sér völl sem fjar-
kennslustofnanir og Menntaskólinn á Akur-
eyri verið valinn til að gegna forystuhlutverki
í nýtingu upplýsingatækni við kennslu. Mik-
ilvægt er að fylgja því eftir að þessar stofn-
anir verði í broddi fylkingar í samskiptatækni
og upplýsingamálum. Tómasi Inga er manna
best treystandi til þess.
Stefnumótun í málefnum
upplýsingasamfélagsins
Frá 1995 hefur Tómas Ingi setið í Vísinda-
og tækninefnd Evrópuráðsþingsins og hef-
ur t.d. skrifað skýrslur fyrir nefndina um
sjávarútvegs- og orkumál. M.a. vegna
starfa sinna í nefndinni var Tómasi Inga
Tómas Ingi og Ólafur G. Einaisson, jbiseti
Alþingis, áferð með foiseta þings Eistlands,
Toomas Savi ogfrú, erþau komu bingað til
lands í oþinbera heimsókn.
4