Faxi

Årgang

Faxi - 01.01.1953, Side 7

Faxi - 01.01.1953, Side 7
F A X I 7 Vaktaskipti læknanna í Kcflavík: 31. jan. til 7. febr. Björn Sigurðsson. 7. til 14. febr. Karl G. Magnússon. 14. til 21. febr. Pétur Thoroddsen. 21. til 28. febr. Bjöm Sigurðsson. 28. febr. til 7. marz. Karl G. Magnússon. 7. til 14. marz. Pétur Thoroddsen. 14. til 21. marz. Bjöm Sigurðsson. 21. til 28. marz. Karl G. Magnússon. 28. marz til 4. apríl. Pétur Thoroddsen. 4. til 11. apríl. Björn Sigurðsson. 11. til 18. apríl. Karl G. Magnússon. 18. til 25. apríl. Pétur Thoroddsen. 25. apríl til 2. maí. Björn Sigurðsson. Nýir hlutasamningar vom gerðir nú um áramótin fyrir vélbáta gerða út á þorskveiðar frá Keflavík og Njarð- víkum. Mikilvægt atriði kemur fram í þessum nýju samningum, þar sem ákveðið er, að matsveinn skuli vera á landróðrarbátum, en það hefur ekki tíðkast áður, nema í mjög fáum tilfell- um. Þessi æskilega breyting hefur það í för með sér, að gamli skrínukosturinn, sem hér hefur verið notaður allt frá skútuöld, er nú liðinn undir lok. Harðfiskverkun. Nú um þessar mundir er von á miklu timbri frá Finnlandi í fiskþurkunarhjalla, sem reistir verða hér í nágrenni Keflavíkur. Eru mark- aðshorfur góðar á hertum fiski og því mikill hugur útvegsbænda fyrir þessari fiskverkun, einkum þó með tilliti til þess, að markaðs- horfur á salt- og freðfiski eru mjög slæmar, sem stafar m. a. af löndunarbanni Breta. Útgerðin í vetur. Frá Keflavík og Njarðvíkum eru nú byrj- aðir línuveiðar 25 vélbátar, þar af 8 aðkomu- bátar. Talsverð aukning verður nú á netjaveiðum héðan, vegna breyttrar aðstöðu og hagstæðari fyrir netin í sambandi við stækkun landhelg- innar. Vitað er nú þegar um 15 báta, sem ætla sér að stunda þessar veiðar, og byrjaði einn, m.b. Reykjaröst, 15. jan. og hefur aflað sæmilega suma daga. Er óvenjulegt að byrjað sé svona snemma með net á vetrarvertíð. Bátar kcyptir til Keflavíkur. Vélbáturinn Sæhrímnir, 79 smál. að stærð hefur verið keyptur hingað frá Þingeyri. Eig- endur: Gísli Halldórsson skipstjóri og Sæ- mundur Jónsson, Keflavík. Þá hefur verið keyptur hingað mótorbáturinn Kristin, áður Heimir frá Seltjarnarnesi. Er báturinn tæpar 50 smálestir. Eigandi hans er Kjartan Stein- grímsson framkvæmdarstjóri. Steingrímur Arnason forstjóri hefur nú keypt vélbátinn Steinunni gömlu, sem áður var í eign Olafs Einarssonar. Verður hann nú gerður út héð- an og hinn gamalkunni aflakóngur, Valgarð- ur Þorkelsson verður skipstjóri á bátnum. Ennfremur hefur verið keyptur hingað vél- báturinn Erlingur, ca. 16 smál. Eigendur hans eru þeir Ingiþór Jóhannsson og Benedikt Guðmundsson. Höfnin í Keflavík. Eins og mönnum er kunnugt, var höfnin í Keflavík stórbætt á s. 1. sumri. Ber útgerðar- mönnum og sjómönnum saman um, að öll aðstaða til útgerðar hafi batnað til stórra muna við lengingu hafnargarðsins. Nú geta bátar athafnað sig í rólegheitum í höfninni, þó stór skip komi þar, og eins þótt eitthvað sé að veðri. En áður en kerið kom, urðu þeir oft að flýja höfnina, ef eitthvað var að sjó eða ef stærri skip komu, sem þurftu að fá afgreiðslu. Þannig hafa þessar hafnarbætur nú þegar haft örvandi áhrif á útgerðina og allt athafnalíf við höfnina. Jólaskenuntanir barnanna. Hér í Keflavík héldu 3 félög jólatrésfagn- aði fyrir börn félagsmanna sinna. Voru það: Kvenfélag Keflavíkur, Kaupfélag Suðurnesja og Ungmennafélag Keflavíkur. Voru allar þessar skemmtanir fjölsóttar og þóttu takast vel. Auk þessara félaga héldu starfsmenn Keflavíkurflugvallar jólatrésskemmtun fyrir börn starfsmanna vallarins. Laust eftir áramótin hélt Kvenfélag Keflavíkur skemmtun fyrir eldra fólk, sem þótti hin ánægjulegasta. Var skemmtunin haldin í samkomuhúsi U.M.F.K. Um þessar mundir efnir félagið til Þorrablóts í samkomuhúsi Njarðvíkur. Ársfagnað sinn hélt málfundafélagið Faxi í húsi U.M.F.K. þann 25. jan. s. 1. Starfsmannafélag Kaupfélags Suðurncsja efndi til skemmtifundar milli jóla og nýárs í Sjálfstæðishúsi Keflavíkur. Var þangað boðið stjórn kaupfélagsins, kaupfélagsstjóra, endurskoðendum félagsins og deildarstjór- um. Erindreki S. í. S., Baldvin Þ. Kristjáns- son, mætti á fundinum og sýndi þar kvik- myndir. Skemmtifundur þessi var hinn ánægjulegasti. Lcikflokkur frá Akranesi sýndi hér fyrir skömmu gamanleikinn „Græna lyftan“. Einn aðalleikandinn, frú Sólrún Ingvadóttir, er gamall og góður Kefl- víkingur, dóttir eins af stofnendum málfunda- félagsins Faxi. Hefur hún sézt á sviði hér fyr. Sólrún hefur um nokkurt skeið verið bú- sett á Akranesi, tekur hún drjúgan þátt í FAX! Blaðstjórn skipa: HALLGR. TH. BJÖRNSSON, MARGEIR JÓNSSON. KRISTINN PÉTURSSON. Blaðstjórn ber ábyrgð á blaðinu og annast ritstjórn þess. Gjaldkeri blaðsins: GUÐNI MAGNÚSSON. Afgreiðslumaður: VALTÝR GUÐJÓNSSON. Auglýsingast j óri: GUNNAR SVEINSSON. Verð blaðsins í lausasölu kr. 3,00. Alþýðuprentsmiðjan h.f. V__________________________________^ leikstarfi þar, m. a. hefur hún verið þar for- maður leikfélagsins. Var leik Akurnesinganna tekið hér mjög vel, hvert sæti í húsinu skip- að og skemmtu menn sér prýðilega við að horfa á þenna græskulausa gamanleik, sem yfirleitt var mjög sómasamlega leikinn. Fyrir skömmu sýndi Leikfélag Hafnarfjarðar Ráðskonu Bakkabræðra í samkomuhúsi Njarðvíkur. Var ráðskonunni að vanda vel tekið. Tíðarfar það sem af er þessum vetri hefur verið ein- muna gott, svo fullorðið fólk man naumast annað betra. Oftast hafa verið langvarandi stillur og þýðviðri, enda hefur snjór verið næstum óþekkt fyrirbrigði á vetrinum og langferðabílar haldið uppi áætlunarferðum um landið, svo að segja þvert og endilangt fram til skamms tíma, sem er býsna óvenju- legt á þessum tíma árs. Fréttir í „Flæðarmál“ skulu framvegis sendar Margeir Jónssyni Suðurgötu 47 (sími 65 eða 130) og Hallgrími Th. Björnssyni Faxabraut 22 (sími 114). Gjörið svo vel að punkta hjá ykkur markverð minn- isatriði og senda blaðinu það. Frétt úr Lögbergi. Sr. Valdimar J. Eylands er nú forseti Þjóð- ræknisfélags íslendinga í Vesturheimi, en forseti fslands, hr. Ásgeir Ásgeirsson er heið- ursverndari félagsins, skv. ósk frá fram- kvæmdanefnd þess. Á fundi í málfundafél. Faxi, sem haldinn var í nóv. mán. s. 1., var ein- róma samþykkt, að gefa í byggingasjóð Hand- ritasafnsins 25% af söluverði 1. tbl. Faxa árið 1953. Telur blaðstj. Faxa þetta vera spor í rétta átt, og vill hvetja félög og einstaklinga til að leggja þessu þýðingarmikla metnaðarmáli þjóðarinnar nokkurt lið.

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.