Faxi

Årgang

Faxi - 01.03.1954, Side 3

Faxi - 01.03.1954, Side 3
F A X I 15 aðir verði möguleikar á hitaveitu í Keflavík. 5. Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjar- stjóra að ítreka kröfur bæjarstjórnar á hendur ríkisstjórnar, er bornar voru fram á síðasta sumri, vegna fram- kvæmdanna á Keflavíkurflugvelli og dvalar varnarliðsins þar. 6. Bæjarstjórn telur sjálfsagt að teknar verði upp að nýju kvikmyndasýning- ar á vegum bæjarins. Kosin verði 3ja manna nefnd, er rannsaki möguleika á að hrinda þessu máli í framkvæmd og leyti eftir leigu á húsi Félagshúss h.f. í því skyni. Lagður var fram málefnasamningur meirihluta bæjarstjórnar: Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Fram- sóknarflokksins í bæjarstjórn Keflavíkur ltafa ákveðið að ganga til samvinnu um stjórn bæjarmála Keflavíkur á því kjör- tímabili sem nú er að hefjast. Samkomu- lagið byggist á, að unnið verði að fram- kvæmd á þeim málefnasamningi, sem hér fer á eftir. Uunnið verði að því af fullri festu, að styrkja fjárhag bæjarsjóðs, með því: a) að skipuleggja og herða á innheimtu á tekjum bæjarsjóðs. b) að leita aðstoðar ríkisins um þátttöku í reksturskostnaði bæjarins, sem bein- línis leiðir af stöðu Keflavíkur við athafnasvæði Keflavíkurflugvallar. Tómas Tómasson fulltrúi Sjálfstæðisflokksins. c) með öflun lánsfjár í þágu fram- kvæmda bæjarfélagsins. d) með gætilegri og hagsýnni stjórn á fjármálum bæjarins. Uunnið sé að sem beztri fjárhagsafkomu bæjarfyrirtækjanna samhliða því að þau veiti æskilega þjónustu. Hafinn verði ákveðinn undirbúningur að endurbótum gatna og byrjað á aðalum- ferðagötu bæjarins, Hafnargötu, þegar í vor. Síðan verði þessum aðgerðum hald- ið áfram eftir því sem fært reynist. Vatnsveitukerfi bæjarins verði gert örugg- ara með fleiri dælum og byggingu geym- is. Vatns- og skolplagnir verði lagðar eftir því sem gatnakerfi bæjarins vex. Ásgeir Einarsson. fulltrúi Alþýðuflokksins. Komið verði upp áhaldahúsi fyrir vélar og verkfæri bæjarins. Undinn verði bráður bugur að því að tryggja að steypuefni verði fáanlegt til húsbygginga í bænum. Bæjarstjórnin beiti sér fyrir því, eftir því sem á færi hennar er, að lendingarskil- yrði opinna vélbáta verði aukin og end- urbætt, jafnframt því, að aðstaða út- gerðarinnar við höfnina verði sem bezt, og fiskiskipastóllinn aukinn. Ur því fáist skorið, hvar verbúðabygging- ar og aðrar byggingar í þágu sjávarút- vegsins skuli staðsettar, og greiði bæjar- stjórn götu þess eftir megni, að þessar byggingar verði byggðar, með sem hag- felldustu skipulagi. Jóhann Pétursson fulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Unnið verði að því að koma upp skýli fyrir starfsfólk við höfnina, í samráði við stjórn Landshafnarinnar. Unnið verði að því, að bæjarfélagið eignist að nýju hafnarmannvirkin við Vatnsnes. Pípugerðin verði starfrækt með nýjum vél- um og rekin með það fyrir augum, að auðveldara verði um efni til götulagna og endurbóta á götum bæjarins. Unnið verði að því við ríkisstjórn, að lög- reglustöð verði byggð hér í Keflavík. Bætt verði aðstaða til íþróttaiðkana í bæn- um með byggingu íþróttahúss og íþrótta- vallar, ennfremur að unnið verði að því að fullgera sundhöllina. Skólahús bæjarins verði fullgerð, og sem bezt skilyrði búin nemendum og kenn- urum til þess að þar geti farið fram sem fullkomnust menningarstarfsemi. Unn- ið verði að því að bókasafn Keflavíkur hafi opna lesstofu, og byggðasafninu búin skilyrði til vaxtar. Barnaleikvöllum verði komið upp eftir því sem fært verður. Stuðlað verði að því að bæta úr húsnæðis- skorti í bænum með því: a) að Byggingafélag verkamanna haldi áfram byggingu íbúða. b) að afla lánsfjár, ef fáanlegt er, til bygginga stórra sambygginga með mörgum íbúðum, sem seldar verði fjölskyldum. c) að ekki standi á skipulagsuppdrátt-

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.