Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.03.1954, Qupperneq 14

Faxi - 01.03.1954, Qupperneq 14
26 F A X I Fœreysku sjómennirnir Viðhorfið til ráðningar færeyskra sjó- manna á veiðiskipin hefur vakið töluvert umtal. Þess vegna var leitað til tveggja manna, sem gætu verið einskonar full- trúar þeirra tveggja atvinnugreina, sem þetta skiptir mest. Þ. e. sjómenn og út- vegsmenn og þeir beðnir að skýra lesend- um Faxa frá viðhorfi sínu. Brugðust þeir Olafur Björnsson og Margeir Jónsson vel við. Ritstj. Nú að undanförnu hefur mikið borið á því, að sjómenn hefur vantað á fiskiskip- in, og er orsökin að sjálfsögðu sú, að menn leita að betur launaðri vinnu við ýmis störf, sem til falla bæði hjá varnar- liðinu eða í önnur störf sem losnað hafa við að stór hópur manna hefur farið frá margskonar fyrri störfum í störf á Kefla- víkurflugvelli. Fram hjá því verður ekki gengið, að árstekjur óbreyttra sjómanna á fiskiskipa- flotanu meru mun minni en hjá flestum öðrum stéttum landsins þegar miðað er við þann langa vinnudag, sem þeir þurfa að vera við störf sín. Allur almenningur veit þó, að ekki er hægt að bæta kjör sjómanna með einfaldri kauphækkun eða hlutarhækkun, frá því sem nú er, með óbreyttum tilkostnaði eða óbreyttu fiskverði, því að rekstursafkoma skipanna er þannig farinn, að stórt vanda- mál er þar til úrlausnar. Menn gera sér vonir um, að víkkunar landhelginnar fari að gæta verulega, og hefur það að vísu þegar komið í ljós það sem af er þessari vertíð hjá vélbátunum að minnsta kosti, og ef afli vex, batna að sjálfsögðu kjör allra aðila, sem hlut eiga að máli við útgerðina. Rætt hefur verið um skattfríðindi eða hærri frádrátt frá brúttó- tekjum til handa sjómönnunum, og munu þessi mál öll vera í athugun. Það verður að teljast rétt og sjálfsögð ráðstöfun, að fá færeyska sjómenn á fiski- skipin, á meðan málum er þannig háttað, sem raun ber vitni, því annars hefðu mörg skip stöðvast vegna mannaskorts. Fær- eysku sjómennirnir eru fúsir að starfa á íslenzkum fiskiskipum um stundarsakir, því kjör þau sem eru á fiskiskipum hér eru mun betri en í þeirra heimalandi. Margeir Jónsson, útgerðarm. Að sjómennirnir okkar skuli ekki leng- ur hafa atvinnu af að sækja á miðin og afla fiskjar, er stærra vandamál en svo, að það verði leist með því að ráða hingað færeyska sjómenn, það myndi ef til vill halda útgerðinni gangandi þessa vertíð, en alls ekki lengur. Með bátagjaldeyrisvanskapnaðinum á að heita svo að fært sé að gera út vélbáta- flotann, og með víðtæku verkfalli náðust þau kjör, að menn hafa fengizt á flesta ef ekki alla þá báta, sem sæmilega eru gerðir út og ekki eru þekktir að vanskilum. Hitt er aftur á móti staðreynd að mikil vand- kvæði eru á að stunda sjó við okkar að- stæður, ef ekki er hægt að velja til þess duglegustu menn, en það verður því að- eins hægt að meira hafist fyrir það, en aðra vinnu. Togaraútgerð er nú komin í algjört strand, stór tap mun vera á flestum eða öll- um skipunum síðasta ár, sjómennirnir flýja skipin vegna þess að þeir hafa ekki í sig og á þrátt fyrir langan og erfiðan vinnu- dag, auk þess að fara að mestu á mis við allt félagslíf og menningarlíf. Með því að ráða færeyska sjómenn á tog- arana, held ég að okkar sjómenn myndu í enn ríkara mæli forða sér í land, því margur hefir þraukað á skipinu sínu eða með skipstjóranum sínum, í þeirri trú að afkoma þeirra hlyti að verða bætt mjög bráðlega. Eg er sennilega ekki brot úr hagfræð- ing, en mér skilst, að útgerðin og þeir sem við hana vinna, skapi megin hluta þjóðar- teknanna, öðru getum við ekki byggt á til frambúðar. Þess vegna hlýtur útgerð að geta þrifist og greitt hæstu laun, sé henni vel stjórnað, ef hún fær sinn part af þjóðartekjunum. Nær allir sem verzla við útgerðina og með afurðir hennar þrífast vel, og flestir betur en maklegt er. Ef til vill lifir þjóðin í heild hærra en hún hefir efni á, og þá fyrst og fremst þeir sem hæst lifa. Ráðamenn þjóðarinnar verða að hafa kjark í sér til að gera þær ráðstafanir, sem duga til þess að varanlegur grundvöllur fáist fyrir að gera út og stunda sjó, báta- gjaldeyrir og annað lapparí er ekkert ann- að en gálga frestur og flótti frá raunveru- leikanum. Ol. Björnsson, form. sjómd. V.S.F.K. v I K o Frá skrifstofu Keflavíkurbæjar Bæjarstjórn Keflavíkur hefur samþykkt að haga innheimtu útsvara á sama hátt og undanfarin ár, þó þannig að innheimt verði fyrirfram sem svarar 50% af fyrra árs útsvari. Gjalddagar verða 1. marz, 1. maí og 1. júní, 12/2°/0 af fyrra árs útsvari hverju sinni. Fyrsti gjalddagi var 1. marz. Keflavíl{, 15. marz 1954. BÆJARSTJÓRINN. 1 OOCXXXXXXX^CXXX < I I x X X I x I X X X X X X y x x <y £<»£><><><xí'<XxS><xíx'

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.