Faxi - 01.03.1954, Side 7
F A X I
19
menn og leiðtogar þjóðarinnar skilji,
hversu það er þýðingarmikið að rækta
mannkindina, og nú þurfum við að kapp-
kosta það, að kennimenn okkar og vald-
hafar séu sjálfir ræktaðir, ef það mistekst,
verður lítið úr mannræktunarmálum, en
sé heppnin með, og ef vel tekst að velja
þessa menn, þá er von um árangur, því
eftir höfðinu dansa limirnir.
Framkvæmd mannræktunarmálanna
verður að koma ofanfrá, ef hún á að verða
framkvæmanleg. Ef valdhafarnir svna
hlutdrægni, sukk í meðferð almannafjár,
nota aðstöðu sína til að auðga sjálfa sig
og með valdastreitu eru sinnulausir um
almennings hag og sjónlausir á andleg
mál hennar, þá er vonlaust um mannrækt,
og hætt er þá við, að þjóðin úrkynjist og
að henni fari aftur. Það er vont að standa
í stað, en þó er hálfu verra að fara aftur-
ábak.
Hvað segið þið nú um það, Faxa félag-
ar? Miðar okkar þjóðfélagi áfram í mann-
rækt, eða er það öfugt? Nú er það svo að
við höfum tækni yfir að ráða, sem getur
miklu áorkað, ef hún er notuð í þágu
mannræktar, og á ég þar fyrst og fremst
við Ríkisútvarpið. Ríkisútvarpið á að hafa
möguleika á að styrkja til náms bæði kon-
ur og karla, sem myndu vera líkleg til
þessara mála. Höfuð áherzluna verður að
leggja á siðfræði, siðgæði og umgengnis-
menningu og láta svo þetta fólk koma
fram í útvarpið og ! skólum landsins. Eng-
inn kennari, sem borguð fær laun af opin-
beru fé, má vera hirðulaus um ræktunar-
mál mannsandans, hann verður að vera
sannmenntaður og þekkja völdunarhús
sálarinnar. Það mætti að skaðlausu fella
niður eitthvað af þeim námsstyrkjum, sem
ríkisstjórnir undanfarið hafa ungað út,
því það er alls ekki hægt að láta sér detta
í hug, að þ eir verði til gagns. Mér finnst
líka að það mætti (í stað kennslustund-
anna) leggja niður sumt af því, sem kem-
ur í Ríkisútvarpinu, til dæmis upptuggan
um útlenda, svo kallaða höfðingja og svo
að ógleymdri musikkinni, sem er býsna
fyrirferðarmikil og oft mjög léleg, og alls
ekki upphyggandi fyrir þjóðfélagið.
Ég verð að segja það, að ég get ekki
séð að valdhafar okkar hafi áhuga á að
nota Ríkisútvarpið til mannbætandi mála.
A þessu þarf að verða breyting. Ríkisút-
varpið þarf að þjóna mannræktinni og
ennfremur kvikmyndahúsin og leiklistin.
Þessi tæki á íslenzka ríkið að þjóðnýta öll
og hafa þau í þjónustu sinni til að rækta
fólkið.
Til þess að sjá um, að þessi miklu áhrifa-
tæki næðu tilgangi sínum, sem ég nú hefi
nefnt, þyrfti ríkisstjórnin að stofna nokk-
urs konar mannræktarráð til að hafa
stjórn á þessu, og yrði starfsskráin eitthvað
á þessa leið: Að velja starfhæft fólk og
styrkja það til náms og að ákveða, livað
er hæft til flutnings í útvarpið, hvaða
kvikmyndir væru sýningarhæfar og hvaða
leikrit væru nothæf til leiksýninga. Þetta
yrði býsna umfangsmikið starf og þyrfti
að vanda mjög til þess að þetta starfsráð
yrði starfi sínu vaxið.
I framkvæmd gæti það orðið þannig,
að bæir og hreppar fengju að reka kvik-
myndahúsin en ríkið sæi um innkaup á
öllum sýningarmyndum og að engin
mynd yrði sýnd, nema leyfi trúnaðar-
manns ríkisins kæmi til. A sama hátt yrði
það með leikritin, að þau mætti ekki sýna
nema dómnefnd mannræktunarmála
dæmdi þau sýningarhæf.
Ég minntist á það í upphafi máls míns,
að ræktunarmál eru hér ! hávegum höfð,
nerna mannræktin, hún hefur ekki fundið
náð fyrir augum okkar þjóðfélags, enn
sem komið er. Nú iiafa orðið þáttaskipti !
þjóðfélagi okkar íslendinga og á ég hér
við að nú höfum við hlotið sambýli við
volduga þjóð, sem er bandaríska varnar-
liðið. Ráðamenn þess eru auðugir af fjár-
munum og hafa verið ósparir á það, enn
sem komið er. Það er því ekki ástæðulaust
að láta sér detta ! liug, að hér sé hætta
fram undan, að þeir útlendu hermenn,
sem hér eru, innleiði siðu og háttu, sem
cru okkar þjóðfélagi ekki hollir eða mann-
bætandi. Til þess að Islendingar standist
þá eldraun, sem nú blasir við, er það lífs-
spursmál að hamla á móti.
Það eina, sem við getum gert, er að
framkvæma mannrækt og mæta þannig
hættunum, er að steðja. Það gæti verið
lærdómsríkt fyrir stórþjóðirnar, að á með-
an þær eru að keppast hver við aðra um
að framleiða vopn til að tortíma mönnum
og verðmætum, þá væri litla íslenzka ríkið
í Atlantshafinu að framkvæma mann-
rækt hjá sér. Til að uppræta það, sem
stórþjóðirnar rækta, sem sé, villimanns-
eðlið í mannverunni.
Aðalstöðin - Sínrti 515
>><><><><><><><><><í><><><><><><><><><><>^^ >>>>>><>>><><>>>><*><><><><>><>'><><><><J*><><Í<>
Heimilistæki
Eigum væntanlega Westinghouse ísskápa og
þýzkar þvottavélar, sem bæði þvo og sjóða.
FYRIRLIGGJANDI:
Rondo þvottavélar
Strauvélar — Ryksugur
Vöflujórn, margar stœrðir
Gufustraujárn og venjuleg straujárn
Hrœrivélar, stórar og litlar
Brauðristar
Hraðsuðukatlar
Stærri heimilistæki seld með afborgunum.
Kaupfélag Suðurnesja
<^<><£<C><Í><^<C*C><Í><£