Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.03.1954, Qupperneq 8

Faxi - 01.03.1954, Qupperneq 8
20 F A X I Það var rigningarsuddi og rok. Það var kuldi og snjór. Það var sumar og blíða. Veðr- ið breyttist og aðstæðurnar voru margvísleg- ar, en eitt var samt óbreytt tilsýndar í öll skiptin, þar sem ég stóð uppi á Tjarnargötu: Það voru piltarnir, sem hlupu, töltu eða gengu hægagang uppi á vellinum. „Þeir eru að æfa sig, stæla líkama sína fyrir keppnir sumars- ins“, sagði kunningi minn, sem eitt sinn stóð við hlið mér, er við athuguðum æfingar þeirra íþróttamannanna. Eg stend við eina af hinum nýju götum okk- ar Keflvíkinga. Þar er hver húsgrunnurinn við annan. Hús eru þarna komin alveg undir þak, en önnur eru rétt tilbúin til að megi byrja að steypa neðri hæðina. Sums staðar blasir við augum gryfjan, þar sem framtíðar- heimilið á að rísa. Hjónin erfiða hlið við hlið. Feðgarnir strjúka svitann af enni sér, er ég kasta á þá kveðju. Þarna situr einn þeirra, sem skemmst eru komnir, á hjólbörunum og drekkur heitan kaffisopa, sem konan og litla dóttirin höfðu fært honum, um leið og þær í huganum byggja sökkul og tvær hæðir. „Já, hérna verður herbergið mitt og hennar Stínu“, segir sú litla. Auðvitað á Stína að eiga herbergið með henni, þó að hún sé ekki annað en brúða, sem getur lokað augunum og sagt mamma. Enn aðra mynd er hægt að draga upp. Ég stend í fundarsal, þar sem áhugamál félagsins eru rædd af kappi, það er verið að undirbúa áætlun næsta starfsárs. E. t. v. eruð þið farin að velta því fyrir ykk- ur, hvað þessar svipmyndir eigi að þýða, svo sundurleitar, sem þær virðast. En við nánari athugun hygg ég ljóst muni verða, að það er eitt, sem tengir þær saman og gengur eins og rauður þráður í gegnum þær allar. Það er áhuginn og einbeiting allrar orku, sem lýsir út úr þeim öllum. Það hefur verið sagt, að mannskepnin hafi það fram yfir aðrar skepnur jarðarinnar, að hann geti valið sér áhugamál og hugðarefni, sem hann gæti unnið í tómstundum sínum. Þetta er víst mikið rétt. Enda mun svo kom- ið, að flestir bera eitthvert það mál fyrir brjósti, sem tekur huga þeirra allan. Hjá sumum eru það iþróttaiðkanir, öðrum félags- mál og þjóðfélagsumbætur, enn aðrir eru svo heilir í starfi sínu, að það tekur huga þeirra allan, jafnvel eftir að þeir eru komnir heim og vinnutíma lokið. Þessi áhugamál eru kjarninn í mótun skap- gerðar unga mannsins eða stúlkunnar. Sé þeim lítt eða ekkert sinnt af þeim, sem líklegt er, að séu komnir framar unglingunum á þroska og reynslubrautum, geta áhugamálin leitt þá út í alls konar torfærur mannlegs veikleika og mér liggur við að segja breysk- leika. Þess vegna er það nauðsynlegt fyrir for- ráðamennina og aðra þá, er ætlazt er til að hugsi, að gefa þessu máli gaum. Faxi hefur gert sitt. Þið hafið séð greinar um félagsmál og umbætur á þeim í næstum hverju blaði og enn eru í honum líkar greinar. En betur má, ef duga skal. Nokkur félagasamtök hér í bæ hafa hafizt handa um undirbúning að stofn- un og byggingu félagsheimilis. Þetta er spor, sem vissulega miðar í rétta átt, þ. e. a. s. ef ekki verður látið sitja við ályktanir, en fram- kvæmdir látnar sitja á hakanum. Það verða allir að sameinast í máli þessu, ungir sem gamlir. Keflavík er bær, þar sem ýmiss konar áhrifa gætir. Ahrif þessi geta leitt til góðs, sé þeim vísað á réttan hátt. En það verður að hemja þau og temja. Séu þau látin virka hugsunarlaust, eru allar horfur á, að þau kunni að leiða bæ okkar og a. m. k. æskuna í ógöngur, sem torveldara er upp úr að brjót- ast en í að komast. Okkur ber að váka en dotta ekki, starfa en láta ekki hendurnar hanga slyttilega, hugsa en móka ekki. — o — Ekki má alveg forsmá bréf þau, er þættin- um hafa borizt. Reyndar eru þau ekki mörg, en tveggja verður þó að nökkru getið. En taka verður það fram, að ekki er unnt að birta bréf, nema ljóst sé, hver sendandi er. Hið raunverulega nafn sendanda verður þó eðlilega ekki birt, vilji hann það síður. Hér er þá fyrst bréf frá „Álfi úr Hól“. Lýsir hann ástandinu í fisksölumálum hér í Kefla- vík, er það ófögur lýsing. Bréfið er of langt til að birtast, en ég get frætt Álf á því, eftir að hafa sýnt Kristni fisksala bréfið, að hann viðurkenndi margt það, er Álfur fann að. En benti um leið á hús það, er hann nú um síðir hefur fengið að byggja og segir aðstæður all- ar og umgengnismöguleika muni þá gjör- breytast. Svo er hér annað bréf, sem ég ætla að birta, vona ég að það verði e. t. v. öðrum til uppörfunar um að senda þættinum greinar- stúf um skoðanir sínar og uppástungur. Þær stöllur spyrja, hvort spurningum verði svar- að. Sendið þær, svo skulum við sjá til. Annars þakka ég þeim bréfið og vona þær riti oftar á ritvélina. „Við erum hérna tvær ungar og léttlyndar að stelast í ritvélina hans pabba og ætlum að skrifa þér smá bréf og þakka þér fyrir síð- asta Faxa. Við gerum nú reyndar ekki mikið af því að skrifa blöðum bréf nema þá Vik- unni. Jæja, það er nú svo margt, sem við vild- um minnast á í sambandi við síðasta blað, að við vitum ekki á hverju á að byrja. Grein- in hans Helga S. fannst okkur alveg draum- ur. Að hugsa sér að bókasafnið skuli vera lokað hérna, við lesum líka ekkert annað núna en tímarit um glæpamál. Okkur lízt líka vel á það að koma hérna upp safni, eins og Helgi skrifar um. Þá væri gaman, ef Nónvarðan væri löguð til eins og hann gat um og myndin sýnir. Við bíðum eftir næstu grein Helga með óþreyju, við erum búnar að skrifa upp alveg heilan lista af því, sem við þurfum og ætlinn að sjá, hvort Helgi kemur með það, sem við höfum hugsað okk- ur. Svo er það greinin hans Ingvars. Hugs- aðu þér, hvað það yrði mikill draumur, ef við fengjum hérna tjörn eins og í Reykjavík. Við skulum vinna við tjörnina í sjálfboðaliðs- vinnu ef það er þá nokkuð gagn í okkur. Jæja, þetta er nú orðið svo langt hjá okkur og margt gætum við meira sagt um blaðið, sem okkur fannst svo gaman að lesa en kannske skrifum við þér aftur seinna. Þú mátt ef þú vilt, láta þetta bréf í „Hjal og vangaveltur“, ef það er þess virði. Megum við spyrja blaðið um prívat spurningar eins og Vikuna? Svo þökkum við fyrir síðasta blað og vonum, að það næsta verði eins skemmtilegt. Tvær léttlyndar með ritvél". Dáðadrengir Hetjur út á hafið breiða heiman sigla, þorsk að veiða, fyrir þjóð og fósturláð. Þegar hrynja heljarhoðar, hugarvílið ekki stoðar, þá er vakin drengjadáð. Þungt er strit í stormi nauða, stundum upp á líf og dauða, í sigurvon er hildi háð. Þegar kemur veiðiveður vaskra drengja hugi gleður. Osla gnoðir út á mið. Ægir svæfir sínar dætur svo þær varla hreifast lætur, veitir mönnum vinnufrið. Þá má líta hraðar hendur, happ á hverju járni stendur. Óðum hætist aflann við. Upp þá línan öll er dregin er nú hvíld af flestum þegin. Bárufáki heitt til lands. Afli knúinn áfram veður, undir sig hann hárur treður. Biltast þær á bógum hans. þreytt af striti mörg er mundin mönnum því í sæta blundinn vaggar ægisdætra dans. Ágúst L. Pétwsson.

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.