Faxi - 17.06.1954, Síða 1
FAXI
------------------------]
6. tbl. • XIV. ár
17. JÚNÍ
1954
Utgefandi:
Málfu ndafélagið Faxi
Keflavík.
Y'
í4
Söngvar
helgaðir þjóðhátíðardegi íslands 17. júní 1944.
Hver á sér fegra föðurland,
tneð fjöll og dal og bláan sand,
með norðurljósa bjarmaband
og björk og lind í hlíð?
Með friðsæl býli, Ijós og Ijóð,
svo langt frá heimsins vígaslóð.
Geym, drottinn, okkar dýra land
cr duna jarðarstríð.
Hver á sér meðal þjóða þjóð,
er þekkir hvorki sverð né blóð,
er lifir sæl við ást og óð
og auð, sem friðsæld gaf?
Við heita brunna, hreinan blæ
og hálign jökla, bláan sæ
hún unir grandvör, farsæl, fróð
og frjáls — við yzta haf.
Ó, ísland, fagra ættarbyggð,
um eilífð sé þín gæfa tryggð,
öll grimmd frá þinni ströndu styggð
og stöðugl allt þitt ráð.
llver dagur líti dáð á ný.
Hver draumur rætist verkum í,
svo verði lslands ástkær byggð
ei öðrum þjóðum háð.
Svo aldrei framar Islands byggð
sé öðrum þjóðum háð.
Syng, frjálsa hmd, þinn frelsissöng.
Syng fagra land þinn brag
um gæfusumur, ijós og löng,
um laufga stofna, skógargöng
og bættan barna hag.
Syng unaðssöngva, íslenzk þjóð,
syng um þitt föðuriand,
með fornar sögur, frægan óð,
hið frjálsa Aiþing, mennta sjóð
og norrænt bræðraband.
Syug íslands þjóð — og þakka afl
i þiísund ára raun.
Við óiög þung og ölduskafl
var unnið þinnar gæfu tafl
og langþreyð sigurlaun.
Syug frelsissöngva, frjálsa þjóð,
við fánans bjarta þyt.
Lát aldrei fölskvast æskuglóð,
ver öllu þjáðu mild og góð.
Lát rikja ró og vit.
HULDA
(Unnur Benediktdóttir Bjarklind)