Faxi - 17.06.1954, Side 3
F A X I
59
Helgi S. Jónsson, form. þjóðhótíðarnefndar:
Minjalundur Keflavíkur
Lýðveldishátíðir í Keflavík
una, er þegar risið og þjóðhátíð 17. júní
Ritstjóri Faxa var svo vinsamlegur að
bjóða mér nokkurt rúm i blaði sínu, til
að segja frá 10 ára samleið með Minja-
garði Keflavíkur og þjóðhátíðinni, 17.
júní, sem fyrst var tengd þeirri hugmynd,
að Keflavík eignaðist sinn minja og minn-
ingagarð.
Arið 1945 var reist stærsta fánastöng
landsins inn á milli gamalla gaddavírs-
girðinga, því þar í kring skyldi byggður
minningagarður okkar í framtíðinni.
Fyrir velvilja ráðamanna Keflavikur fyrr
og síðar hefur þessari hugmynd verið af-
hent glæsilegt svæði, sem að vísu á langt
í land en horfir þó í rétta átt. Þarna á
eftir að rísa minnismerki fallinna sjó-
manna og þess annar^ sem við viljum
minnast og þykir kært.
Mörgum kann að þykja það furðu gegna,
ltve smátt hefur miðað á þessum 10 árum,
en til þcss eru margar ástæður. Fyrstu árin
eyðilagði fé og hestar allt, sem niður var
sett, og munaði minnstu að velunnarar
garðsins gæfust upp, en seiglan sigraði.
Nú hefur verið sauðlaust í nær þrjú ár og
á þeim tíma hefur miðað vel A liverju
ári hcfur eitthvað bæzt við, sem til fram-
búðar er. Girðingarnar eru fallnar og
farnar burtu, börn og fullorðnir hlúa nú
að gróðrinum og reita burtu arfaklær, og
er það gleðilegur vottur þess, að fólkið
hefur tekið þessa hugmynd að sér og vill
að áfram verði haldið af vaxandi þrótti
að skipuleggja og græða upp þennan
friðarreit í hjarta hins unga bæjar. Það
eru nú allir orðnir sammála um, að garð-
inn megi ekki skerða á nokkurn hátt,
heldur að gera hann að talandi tákni um
framsýni þeirra, sem nú byggja þennan
bæ.
Við Tjarnargötuna þarf að reisa ein-
hverja veglega byggingu, til dæmis Ráð-
búsið og koma þar fyrir Byggðasafni
Keflavíkur í beinu sambandi við Minja-
garðinn.
Fvrsta minnismerkið, um Lýðveldistök-
liefst þar. Eftir að minnismerki fallinna
sjómanna er komið þar líka, þá hefst Sjó-
mannadagurinn einnig í garðinum. Hið
veglega listaverk Ásmundar Sveinssonar,
er hann skóp í sama tilefni, enda þótt það
væri ekki okkur ætlað, bíður eftir sínum
heiðursstað í garðinum .
Það verður ekki langt þangað til við
getum boðið vinum okkar, sem koma í
heimsókn til Keflavíkur, að skoða garð-
inn og sannað þeim, að hér er hugsað um
fleira en flugvöll og þorsk. Eins og Hellis-
gerði og Listigarður Akureyrar bera
hróður sinna byggða, eins mun Minja-
garður Keflavíkur auka á okkar hróður
og menningu.
*
Til skilningsduka almennings er rétt að
segja í stórum dráttum frá sögu þessa
garðs. Hugmyndin varð til nokkru fyrir
1944, en hafði þá lítinn byr, því sú al-
menna ótrú var hér ríkjandi, að ekkert
gæti gróið í Keflavík, en trén og blómin,
sem dafna hér ár frá ári hafa gefið fólkinu
nýja trú. — 1945 var ákveðið að minnast
Lýðveldistökunnar um land allt, heima í
bæjum og héraði. I sambandi við það
fékk hugmyndin um garðinn fastara
form. Bærinn átti mikinn hluta lands, sem
undir garðinn er ætlað og keypti þann
hluta sem á vantaði. Fánastöngin mikla
var reist til minningar um sigurdaginn
17. júní 1944.
Fyrst í stað var þessi dagur jafnframt
fjáröflunardagur fyrir garðinn og gaf það
góða raun fyrstu árin, en hin þrjú síðustu
ár hefur því farið hnignandi, því Reykja-
vík hefur lokkað of marga til sín. For-
ráðamenn bæjarins hafa alla tíð verið þess-
ari starfsemi mjög hlyntir og veitt garð-
inum fjárstyrk og aðra fyrirgreiðslu.
Skrúðgarðsnefnd, sem einnig er forstöðu-
nefnd Þjóðhátíðardagsins, er kosin af
bæjarstjórn til fjögurra ára í senn. Við
undirbúning hátíðarinnar hafa svo ávallt
komið til aðstoðar fulltrúar frá öllum
starfandi félögum í Keflavík, það sýnir
samhug og skilning, sem er þess vafalaust
megnugur að bera þessa hugmynd fram
til sigurs.
Það þarf ekki að lýsa því, hve hægt
hefur miðað áfram, en því ræður þröngur
fjárhagur. Nægur stórhugur og trú á mál-
efnið er fyrir hendi. Þegar allt svæðið er
nú að komast i notkun sem garður ein-
göngu, þá opnast nýr möguleiki fyrir átt-
hagafélög og önnur félög að fá sína reiti.
til að græða og hirða og á þann hátt að
létta starfið og gefa garðinum meira gildi.
A meðan við þurfum að kaupa mestan
hluta af vinnu og fyrirhöfn, þá miðar of
hægt áfram — en ef við leggjumst öll á
eitt, þá getum við, nú miðaldra fólk,
gengið þar um „í lundum nýrra skóga“,
áður en við förum héðan alfarin. Við
þennan 10 ára áfanga skulum við gleyma
öllum liðnum vonbrigðum og erfiðleik-
u mog heita á Keflavík að tí-falda árangur
næstu ára — það mun engan iðra þess.
#
Ég vil nota þetta tækifæri — 10 ára
afmælið — til að flytja þakkir nefndar-
innar, sem að þessum málum stendur, til
allra þeirra fjölmörgu, sem lagt hafa gjörfa
hönd á plóginn, svo og til þeirra, sem hata
sýnt umburðarlyndi og skilning á van-
mætti okkar, til að gera svo sem hugur
steiulur til.
Gleðilega þjóðhátíð.
GÓLFDÚKUR
Allar stœrðir
Kaupfélag Suðurnesja