Faxi

Årgang

Faxi - 17.06.1954, Side 4

Faxi - 17.06.1954, Side 4
60 F A X I Karvel Ögmundsson: Merkisberar Islendinga Sjómannadagsrœða I dag liöldum við hátíðlegan sjómanna- sunnudag, og minnumst þeirrar stéttar, sem um aldaraðir hefur borið hita og þunga dagsins í lífsbarattu hinnar ís- lenzku þjóðar. Sjómannastéttin hefur verið merkisberi Islendinga allt frá því er land byggðist til þessa dags. Þeim tókst að vega afkomu þjóðarinnar frá örbyrgð og vonleysi til fjárhagslegs og stjórnarfars- legs sjálfstæðis. Það er fyrst og fremst þessari slétt að þakka, að við í dag njótum hinna góðu lífskjara, sem raun ber vitni. Allt frá önd- verðu hafa íslenzku sjómennirnir orðið að heyja harða baráttu við óblíð náttúruöfl og erfið skilyrði, en þetta hefur orðið til þess að ala upp hrausta og harðgerða sjó- mannastétt, sem með harðfengi og dugn- aði liefur skipað sér öndvegis sess meðal sjómanna annarra þjóða. Islendingar munu seint gleyma fórnar- lund sjómannanna á styrjaldarárunum, þar sem líf heillrar þjóðar var í veði, ef ekki tókst að halda sambandi við um- hciminn, en sjómennirnir sinntu hvorki hættum né torfærum en héldu baráttunni áfram, á hverpi sem valt, enda voru á þeim tímum margar og dýrar fórnir færðar. Þegar þjóðin endurheimti sjálfstæði sitt, má segja að grundvöllurinn fyrir því, að svo vel tókst, hafi verið lagður af hinni íslenzku sjómannastétt. Því góð fjárhags- !eg afkoma var frumskilyrði fyrir sjálf- stæði hennar. Með karlmennsku og hug- prýði tókst þeim að afla þjóðinni tekna, og tryggja fjárhagslegt öryggi, sem síðar varð sá hyrningarsteinn sem sjálfstæðið byggðist á. En eitt erfiðasta viðfangsefni Islendinga er, hversu fáir eru þátttakendur í hinu þjóðhagslega jákvæða sjómannsstarfi, því aðeins 5% af landsmönnum framleiða 90% af útfluttnings verðmæti þjóðarinnar. Allur almenningur hneigist að því að því að taka ldut sinn á þurru landi, heldur n velja sér hinn þrönga kost að þreyta fangbrögð við ægi, og sækja gull í greipar hans. Ef ekki verður skjót breyting á þessu, verður erfitt að fylla í þau skörð, er myndast í raðir sjómannastéttarinnar, r>g þá er afkoma þjóðaririnár í voða. Því allur annar atvinnurekstur er aðeins ' cinar á einum stofni, en stofninn er þau auðæfi, sem unnin eru úr skauti hafsins. En ef breyting verður til batnaðar og htigur æskumanna hneigist til sjómennsku, getum við horft vonglaðir fram á veginn, því nú ráða sjómenn hinum fullkomnustu tækjum. Nýjustu vélbátum, stórum ný- tí/.ku togurum og fullkomnum flutninga- skipum. Þessi atvinnutæki í höndum ís- lenzkra sjómanna verður framtíðartrygg- ing fyrir fjárhagslegu örvggi Islendinga. Þegar við ræðum um lífsstarf sjómanns- ins megum við ekki gleyma þeim aðila, sem við hlið hans stendur í lífsbaráttunni, sjómannskonunni, því ekki má á milli sjá, hvort meira fær áorkað sjómaðurinn eða sjómannskonan. Hið fjölþætta starf sjómannskonunnar bæði líkamlegt og andlegt verður uppistaðan í þreki og djörf- ung sjómannsins, hún verndar heimili hans og mótar soninn, sem við tekur af honum. Með sameinuðum kröftum, fá þau áorkað því, sem með þarf til þess, að hin íslenzka þjóð geti gengið vonglöð mót hinum ókomna tíma, hvað sem hann ber í skauti sínu. Ég bið að blessun guðs og vernd hvíli yfir sjómönnum og öllum þeirra ástvin- um á ókomnum tímum.

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.