Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 17.06.1954, Qupperneq 7

Faxi - 17.06.1954, Qupperneq 7
F A X I 63 ÞÓRHALLUR GUÐJÓNSSON: Frjálsar íþróttir á Suðurnesjum 1953 Jóhann R. Benediktsson, hástökkvari. Sumarið 1953 var það heillavænlegasta, hvað snertir frjálsar íþróttir á Suðurnesj- um til þessa. Að vísu var það aðeins eitt félag, sem átti keppentlur í þessari íþrótt, en þeir stóðu sig með þeim ágætum, að ekkert annað félag utan Reykjavíkur átti iiðru eins liði á að skipa. Þessir menn hafa haldið merki síns bæjar hátt og ekki væri úr vegi að hlúa dálítið að þeim, hvað skil- yrði snertir með tilliti til þeirra mögu- leika, sem þessir rnenn eiga á komandi sumri. Nú þegar hefur vcrið ákveðin landskeppni í frjálsum íþróttum og hafa fimm til sex menn síðan möguleika á að skipa þar sæti. Stærsta vonin er þó að fá þátttakendur í Evrópumeistaramótinu 1954. Nú eru menn okkar komnir svo langt á sviði íþróttanna, að við þessu má búast og væri leitt til þess að vita, að ekki gæti af þessu orðið aðstæðna vegna, en vilji íþróttamanna væri nægur fyrir æf- ingunum. Ekki er hægt að ætlast til þess, að íþróttamennirnir sjálfir leggi fram mikla vinnu til þess að bæta æfingaskil- yrði þar sem þeir vinna langan vinnudag og taka svo stranga íþróttaæfingur í V/z—2 tíma á dag, ef góður árangur á að nást. Þetta var nú útúrdúr, en ekki væri úr vegi, að honum væri dálítill gaumur gef- inn. Strax í fyrstu íþróttakeppni sumarsins, sem var víðavangshlaup Í.R. í Reykjavík, fyrsta sumardag, var unninn fyrsti sigur- inn. Ungmennafélag Keflavíkur vann fimm manna sveitakeppnina og hlaut að launum bikar, gefinn af Sanitas h.f. Þetta var í fyrsta sinn, sem bikar þessi fer út fyrir Reykjavík. A árinu voru háðar þrjár keppnir við lið annars staðar af landinu. Fyrst var keppni milli Knattspyrnufélags Reykjavíkur og Ungmennafélagsins. Þetta var sæta keppni, þannig að fyrsti maður hlaut fimm stig, annar þrjú, þriðji tvö og fjórði eitt stig. Hérna fór K.R. með sigur af hólm- inum, hlaut 72 stig gegn 64 stigum Ung- mennafélagsins, eða munurinn var að- eins átta stig. Kcppnin fór fram í Reykja- vík dagana 27. júní og 4. júlí á íþrótta- velli K. R. 23. ágúst fór svo fram hin árlega bæja- keppni Selfyssinga og Keflvíkinga. Keppt var eftir finnsku stigatöflunni og fær þá liver og einn stig fyrir sitt afrek, eftir því hvað það er gott. Hér sigruðu Keflvíking- ar og hlutu 14329 stig gegn 13.0901 stigi, eða munur 428 stig. Keppt var í Keflavík í góðu veðri og voru áhorfendur margir. Þriðja keppnin var svo milli Ung- mennasambands Kjalarnesþings og Iþróttabandalags Suðurnesja og fór hún fram á Leirárbökkum á Kjalarnesi sunnu- daginn 13. september. í þessari keppni var reiknað út eftir alþjóðastigatöflunni nýju. Hér bar I. S. sigur úr bítum, en ég get ekki skýrt frá með hve miklum stiga- mun, vegna þess að ég hef ekki stigaút- reikninginn né stigatöfluna hjá mér. I átta greinum af tíu, sem keppt var í, fékk I. S. fyrsta mann. Frjálsíþróttamenn hérna hafa tekið þátt í flestum opinberum stórmótum og ávallt staðið sig með prýði. Á Meistaramóti Is- lands í frjálsum íþróttum, sem fram fór á Akureyri 15.—19. ágúst, voru sendir átta keppendur á vegum U. M.F. K. Þessir menn stóð usig með slíkum ágætum, að Keflvíkingar fengu sinn fyrsta íslands- meistara ,sem er Þorsteinn Love í kringlu- kasti. Auk þess komu þessir menn með þrenn önnur verðlaun og tvenn þriðju- verðlaun. Förin hefur eflaust verið góð kunning Keflvíkinga. Unglingarnir brugðust heldur ekki. A Meistaramóti Islands fyrir unglinga (18— 20 ára) fengum við þrjá meistara. Val- björn Þorláksson í hástökki og stangar- stökki og 'Gunnar Sveinbjörnsson í kúlu- varpi, auk þess varð hann annar í þrí- þraut. Ungmennafélag Keflavíkur hefur á ár- inu haldið tíu íþróttamót, bæði opinber og innanfélags. 1 þessum mótum hafa 22 félagar tekið þátt, og hafa þeir sett 21 suð-

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.