Faxi

Volume

Faxi - 17.06.1954, Page 11

Faxi - 17.06.1954, Page 11
F A X I 67 Sjómannasunnudagimnn, hinn 17. í röðinni, var óvenju fagur. Veðrið var eins gott og famast má verða. Fólkið tók einnig óskiptan þátt í deginum. Séia Björn Jónsson, sóknarprestur, prédikaði i kirkjunni, en síð- an var gengið í veglegri fylkingu inn á höfn, þar sem miðhluti dagskrórinnar fór fram. Fánaberamir Voru ánægjulega samstíga, þar sem þeir gengu í fararbroddi, en Lúðrasveitin Svanur lék göngulög af leikni. Mannfjöldi fylgdi á eftir. Karvel Ogmundsson, flutti aðalræðu dagsins, en séra Björn minntist látinna sjómanna. Karlakór Kefla- víkur söng. Njarðvíkingar, hinir ósigrandi róðrarkappar, fóru enn með sigur af hólmi. Stakkasundskappi varð Björgvin Hilmarsson. Keiptogskeppnin suður á iþróttavelli vakti geysilega hrifn- ingu og eftirtekt. Þar áttust við fulltrúar hinna tveggja slysavarnafélaga. 12 konur gegn 8 körlum. Æfingar strangar höfðu báðir aðilar haft, og kven- fólkið ætíð dregið karlana. Mátti því sjá út- sendara karlaslysavarnadeildarinnar, þar sem þeir tóku sjónmál af breidd brjósts og hand- leggja hinna fræknustu karla bæjarins. Leit- urðu þeir þar einhverra, sem standa mundu konunum á sporði. Árangur leitarinnar virtist líka ætla að verða góður, því í fyrstu atrennu rétt mörðu þeir konur yfir strikið. Þá mátti heyra eggjunaróp í herbúðum kvenna. Nú skyldi draga eða drepast. Og eins og berserkir fyrri alda lögðust þær á reipið — og ekkert stóðst þeim snúning. Karlarnir urðu að láta í minni pokann við geysileg fagnaðaróp hinna fjölmörgu áhorfenda! Þrir vélbátar hafa verið keyptir hingað til Keflavíkur í vor. Hilmir (áður Guðfinnur, eign Guðfinns- bræðra) keyptur að vestan, eigendur Baldur Júlíusson, Óli Ólsen og Eiríkur Þórarinsson. Höfrungur keyptur úr Vestmannaeyjum. Eig- endur Skúli Pálsson, Sveinn Vilbergsson og Kristmundur Benjamínsson. Hrafn Svein- bjarnarson, keyptur frá Grindavík, var hér áður í Keflavík, þá eign Ólafs Einarssonar. Eigendur Trausti Jónsson og Ágúst Guð- mundsson. Ennfremur hafa verið keyptir hingað 10—15 opnir vél- bátar. Sundmót Sundhailardagsins fór fram á 2. í Hvítasunnu. Margir áhorf- endur voru. En sökum íslandsmeistaramóts- ins voru engir utanbæjarkeppendur. Margeir Jónsson, formaður Sundhallarnefndar, setti mótið. Rakti hann sögu sundsins í Keflavík. Allt frá frumstiginu í Grófinni til þessarar veglegu byggingar, sem hefur orðið hinum fræknu sundmönnum Keflavíkur sú lyftistöng frá- bærs árangurs, sem raun ber vitni. Hylltu menn hina göfugu sundíþrólt með ferföldu, kröft- ugu húrra hrópi, en Margeir lýsti mótið sett. Mótstjóri var Guðmundur Ingólfsson. Þetta var síðasta sundmót Sund’hallardagsins í þessum bún- ingi. Nú er svo mikið orðið um sundmót, að þessu er orðið næsta ofaukið. Ákváðu því forráðamennirnir að fella það niður. Inga Árnadóttir og Magnús Guðmundsson hlutu afreksbikara mótsins. Eru þau vel að þeim 'heiðri komin. Svo frábær afrek hafa þau unnið. Islandsmcistarar í sundi, eftir fyrri dag keppninnar, urðu þessir Keflvikingar: í 100 m. bringusundi drengja Magnús Guðmundsson 1:27,2; í 200 m. bringusundi kvenna Inga Árnadóttir 3:24,4, en önnur varð Vilborg Guðleifsdóttir; í 400 m. bringusundi karla Magnús Guðmundsson 6:19,0; í 50 m. bringusundi telpna Inga Árna- dóttir 43,4. Edinborg heitir ný verzlun, sem nýlega var opnuð í Keflavík. Eigandi er Jóhann Pétursson. Þar er á boðstólnum tilbúinn fatnaður á konur, karla og börn. Sportföt ýmiss konar og fleira. Verzlunin er mjög skemmtileg og ljósaútbún- aður sérstæður. B.v. Keflvíkingur kom inn 7. júní með 60 tonn af ísuðum fiski og 160 tonn af saltfiski eftir 20 daga veiðiferð. Öfluðu fyrir vestan og norðan. FA 'V I Ritstjóri og ábyrgðar- I maður: ÓLafur Skúla- son. Blaðstjórn: Hallgr. Th. Bjömsson, Margeir Jónsson, Kristinn Pétursson. Gjaldkeri: Guðni Magnússon. Af- greiðslum.: Valtýr Guðjónsson. Aug- lýsingastj.: Gunnar Sveinsson. Verð blaðsins kr. 5,00. Alþýðuprentsmiðjan. ísfiskinn á að heroa. Var mikill hamagangur, er 60 hendur ungra sveina frá 9—14 ára kepptust við fiskstörfin. Af fermingarlistanum í síðasta blaði féllu niður nöfn tveggja ferm- ingarbarnanna. Þeirra Egils Jónssonar, Vest- urbraut 5, Keflarvik og Oddnýjar Rósu Ragn- arsdóttur, Njarðvík í Njarðvíkum. Gunnar Þorbergsson, sem mörgum Keflvíkingum mun kunnur, er nýkominn heim í sumarleyfi. Les hann raf- magnsverkfræði í Gautaborg, Svíþjóð. Myndirnar, sem ætlunin var að prýða skyldu blað þetta, verða því miður að bíða betri tíma, sökum verkfalls prentmyndasmiða. Helgi Skúlason hefur nýlokið námi í leikskóla Þjóðleik- hússins með hárri einkunn. Helgi hefur verið ráðinn leikari við Þjóðleikhúsið næsta leikár. En nú dansar hann í óperettunni Nitouche og tekur þátt i æfingum á leikriti, sem hefja á sýningar á í haust. Verzlunarmenn í Keflavík hafa nú mikinn áhuga á að skreyta verzlunarhús sín eftir fremsta megni í sambandi við 17. júní. Skemmtilegt væri að sjá nýstárlegar hugmyndir eða vel útfærðar, þó eldri væru. Girðingaræflar og rusl á að hverfa sem dögg fyrir sólu, svo að hvergi sjáist blettur né hrukka á 10 ára afmælinu. Með þessu blaði leggst útkoma Faxa niður um skeið. Eins og ég tók fram í janúarblaðinu, var áformað, að Faxi kæmi út í sumar einnig. En sumar- áætlunin breyttist og hamlar útkomu. Þakkir færi ég öllum, sem hafa stutt mig í starfi. En það hefur að mörgu leyti orðið erfiðara sökum dvalar utanbæjar. Uppörvanir og vel- viljaorð munu seint gleymast, enda þótt frá líði.

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.