Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 17.06.1954, Qupperneq 13

Faxi - 17.06.1954, Qupperneq 13
F A X I 69 Hör&ur Guðmundsson: Hvítasunnumót U.M.F.K. Hið árlega „Hvítasunnumót U. M. F. K i trjálsum íþróttum fór fram i fögru veðri eða því hezta sem komið liefur á þessu sumri. Áhorfendur voru allmargir, og mun flciri en sjást á íþróttamótum í Reykjavík. Eins og undanfarin ár voru það íþróttamenn lrá K. R. sem mestan svip settu á mótið. Að þessu sinni tóku íþróttamenn frá U.I.A. þátt í mótinu, og er það í fyrsta skipti sem austfirðingar taka þátt í íþrótta- móti hér í Keflavík. 2.5 íþróttamenn tóku þátt í mótinu, 13 frá K. R., 5 frá U. í. A. og 5 frá U. M. F. K. Mjög góður árangur náðist í nokkrum greinum miðað við þær aðstæður sem fyrir hendi eru. Tími As- mundar í 100 m. hlaupinu er mjög góður ei tekið er tillit til brautarinnar sem er mjög óslétt og auk þess varð hann að slá af i síðustu metrunum, þar sem barn hljóp út á brautina. Dagbjartur er mjög efnilegur spretthlaupari, sem vert er að tekið sé eftir. Torfi virðist vera í góðri æfingu, og það mætti segja mér að hann komi skemmtilega á óvart á E. m. í sumar. Valbjörn er mjög efnilegur stangar- stökkvari eins og við könnumst við. Val- björn setti daginn áður nýtt unglingamet í stangarstökki, 3,6H m. Þorsteinn Liive sigraði í kringlukasti með allgóðum arangri. Þorsteinn kom skemmtilega á óvart með því að sigra methafann í sleggjukasti, Þórð Sigurðsson með yfir- burðum. Þorvarður er ekki í nokkurri æfingu, svo það var ekki við meiru af honum að búast. Vonandi á hann eftir að bæta okkur það upp síðar í sumar. Cíuðjón B. Olafsson, K. R. sigraði í langstökki. Guðjón er nýliði sem á vafa- 'ítið eftir að vekja á sér verðskuldaða at- hygli. Björn Jóhannsson varð að láta sér nægja annað sætið í langstökkinu, þó hann væri aberandi mesti stökkvarinn. Björn er sennilega bezti frjálsíþróttamaður sem Keflavík á á að skipa þó hann sé aðeins 1H ára. Björn mætti æfa betur en hann gerir og temja sér meiri nákvæmni. Ef hann æfir vel ætti hann að geta orðið af- bragðs „tugþrautarmaður“. 1000 m. hlaupið var án efa skemmti- legasta grein mótsins, þó svo tíminn væri ckki góður. Svavar, sem er einn af yngstu en sterkustu millivegalengdarhlaupurum landsins, tók forustuna strax í upphafi og leiddi allt hlaupið og sigraði glæsilega. Bergur Hallgrímsson var öruggur með annað sætið. Þetta var auðsjáanlega of stutt Idaup fyrir Berg, því hann er fremur ferð- lítill en hcfur gott úthald, og væri gaman að sjá hann í 3000 og 5000 m. því þar nýtur hann sín bezt. Þórhallur króaðist af í startinu og dróst aftur úr en hann hélt vel út og átti stuttan en góðan endasprett. Það er sjaldgæft nú orðið að svo margir keppendur mæti til leiks í millihlaupunum (9 keppendur), og það sem athyglisvert var við þetta hlaup var að 5 keppendanna eða austfirzku keppendurnir eru allir frá sama þorpinu. Hafnarnesi við Fáskrúðsfjörð, sem telur nokkra tugi íbúa, og þrír af þeim eru bræður. Mótið fór hið bezta fram, og við þökkum K. R.-ingum og Austfirðingum hjartanlega fyrir skemmtilega og drengi- lega keppni. Urslit í einstökum greinum voru sem hér segir: 100 m. hlaup: 1. Asm. Bjarnason K.R.........10,9 sek. 2. -3. Guðjón B. Ólafsson K.R. 11,6 — 2.-3. Dagbj. Stígss. U.M.F.K. . 11,6 — 4. Guðmundur Guðjónsson K.R. 11,7 — 1000 m. hlaitp: 1. Svavar Markússon K.R. . 2:42,8 mín. 2. Bergur Hallgrímsson U.Í.A 2:45,8 — 3. Rafn Sigurðsson U.Í.A 2:49,2 — 4. Þórh. Guðjónss. U.M.F.K. 2:51,8 — Stangarstö^: 1. Torfi Bryngeirsson K.R.....4,00 m. 2. Valbjörn Þorláksson K.R....3,50 — Kringlukast: 1. Þorsteinn Lövve K.R. 47,14 m. 2. Friðrik Guðmundsson K.R. 46,40 — 3. Sigurþór Tómasson K.R. .. 38,28 — 4. Pétur Rögnvaldsson K.R. 36,35 — Sleggju/past: 1. Þorsteinn Löwe K.R. 47,86 m. 2. Þórður B. Sigurssoti K.R. 43,46 — 3. Einar Ingimundars. U.M.F.K. 39,74 — 4. Þorv. Arinbjarnars. U.M.F.K 39,51 — Langstöl{l{: 1. Guðjón B. Ólafsson K.R.......6,32 m. 2. Björn Jóhannsson U.M.F.K 6,28 — 3. Guðlaugur Einarsson U.M.F.K. 5,99 — 4. Guðm. Guðjónsson K.R. 5,99 — Stan garstöl(l(: 1. Torfi Bryngeirsson K.R.......4,00 m. 2. Valbjörn Þorláksson K.R. 3,50 — Hvað er ný tónlist? Undir þessari fyrirsögn ritar Dr. Ole Mörk Sandvik 21. apr. grein í Morgenbladet í Osló. Tilefni hennar er útgáfa í mörgum bindum „Ny musik i Norden", sem kemur út á vegum „Nordens publikati- onsnamd“ undir stjórn E Bjelle. Yfrilits- grein um tónlist hvers lands fyllir bókina, en í hana skrifa Frede Schandorf Petersen (Danmörk), Veikko Helasvuo (Finn- land), Baldur Andrésson (ísland), dr Olav Gurvin (Noregur) og Bo Wallner (Sví- þjóð). Um framlag Islands segir dr. Sand- vik: „Lýsingin á tónlist íslands, samin af Baldri Andréssyni, er aðallega söguleg greinargerð um þróunina frá fornöld fram á vora daga. Við höfum haft tækifæri til að kynnast hér nokkrum íslenzkum tón- skáldum nútímans. Ber þar að nefna Jón Leifs, Pál Isólfsson og Hallgrím Helga- son. Eftirtektarverðar mótettur hins síðast- nefnda hafa verið fluttar í ríkisútvarp Noregs. A mörgum sviðum vinnur ísland ósleitilega að eflingu tónlistarinnar. Hið nýreista þjóðleikhús hefir skapað skilvrði til að flytja ýmsar óperur þótt erlendir söngvarar væru fyrst um sinn til aðstoðar. Hljómsveitina skipa innlendir kraftar. Olav Kielland hefir stjórnað henni nú um skeið. Kórsöngur þrífst ágætlega á sögu- eyjunni, skólar og háskóli láta sig söng- mennt miklu skipta. Skilyrði fvrir riku- legri þróun virðast því vera fyrir hendi, og við viljum óska þess, að tengslin við Noreg megi eftirleiðis verða enn nánari en frarn til þessa." Syndið 200 metrana

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.