Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 17.06.1954, Qupperneq 14

Faxi - 17.06.1954, Qupperneq 14
70 F A XI Jón Eyjólfsson sextugur Eins og getið var í síðasta tbl. Faxa, átti Jón Eyjólfsson ótgerðarmaður sextíu ára afmæli þann 16. apríl s.l., en þar sem blaðið var þá að fara í prentun, vannst ekki tími til að ná tali af afmælisbarninu og verður hans því getið liér nokkru nánar. Jón er borinn og barnfæddur Kcflvík- ingur. Foreldrar bans voru þau hjónin Eyjólfur Þórarinsson útgerðarmaður og Guðrún Egilsdóttir. Jón hefir allan sinn aldur búið í Keflavík. Kvæntur er hann Guðfinnu Sesselju Benediktsdóttur og með henni hefir hann eignazt 10 börn, 2 þeirra dóu ung en 8 hafa komi/.t upp og eru öll hin mannvænlegustu. Jón hefir stundað sjóinn allan sinn aldur. Þrettán ára fór liann með föður sínum norður á Skagaströnd og réri þar eitt sumar. Vertíðina eftir að hann fermdist réri hann í Keflavík með föður sínum, en réðist þá á skútu og var á henni til ársins 1914. Var þá eina vertíð í Vestmanna- eyjum og síðan hér í Keflavík. Arið 1915 lét hann ásamt nokkrum öðrum byggja bátinn Stakk, og var hann síðan formaður á þeim bát, þar til þeir seldu hann árið 1922 til Óskars Halldórs- sonar útgerðarmanns. Létu þeir félagar þá byggja annan bát, er þeir gáfu sama nafn. Var Jón einnig formaður þess báts til árs- ins 1935, en bátinn seldu þeir árið 1940. Síðan Jón hætti formennsku á m.b. Stakk, hefir hann stundað sjóinn á opnum bátum, sem hann sjálfur hefir átt og stjórnað, og hefir sú útgerð verið slysalaus, eins og reyndar allur formennskuferill Jóns, enda má með sanni segja, að hann hafi á ö!l- um sviðum verið lángefinn og gæfusamur og sannur ágætismaður. Aðspurður telur Jón, að hér í Keflavík fari í hönd ört vaxandi möguleikar fyrir útgerð á opnum bátum, vegna hinna auknu og stórbættu landhelgisskilyrða, og teltir hann, að með hinum nýju land- helgislögum hafi verið stigið risaspor í rétta átt. Skoðun hans er einnig sú, að vilji manna hér til þess að eignast opna báta fari ört vaxandi, enda sé slíkum bát- um hér þegar farið að fjögla til muna. Hinsvegar taldi hann bráða nauðsyn bera til þess, að bætt verði lendingar- og lönd- unarskilyrði þeirra til muna, frá því sem nú er. Stttkkavörin er góð, það sem hún nær, þar hafa útgerðarmenn sjálfir komið sér upp rafmagnsspili, en legurúm bát- anna þar er lítið, rúmar ekki fleiri báta en þegar eru þar komnir. Ur þessu telur Jón nauðsynlegt að bæta, einnig sé Mið- bryggjan, eini löndunarstaður þessara báta, allt að því ónothæf, eins og sakir standa, eftir henni sé ekki hægt að aka bílum, fyrr en búið sé að laga hana. Vill hann nota þetta tækifæri til að koma þeirri ósk bátaeigenda á framfæri við bæjarstjóra og bæjarstjórn, að hlutast til um, að þessar sjálfsögðu og aðkallandi framkvæmdir séu ekki lengur látnar sitja á hakanum, svo það stöðvi ekki aukningu smábátaút- gerðar í Keflavík. Blaðið tekur undir þessar óskir Jóns Eyjólfssonar, hins ötula og áhugasama útgerðarmanns, um leið og það óskar honum og fjölskyldu hans til hamingju með þessi merku tímamót í lífi hans. Fjölmennt var í afmæli Jóns, enda er hann frændsterkur og vinmargur hér í Keflavík, eins og vænta má urn slíkan mann. Við það tækifæri bárust honum meðal annars 2 meðfylgjandi kvæði. Gamall vinur. Kveðja frá tengdasyni, Jónasi Þorvaldssyni. Nú allir, scm vettlingi valda og vita um þinn afmcelisdag, til sœmdar þér sccroþni garpur syngja þeir gleðinnar brag. I>ó scxltigur sértu að árum, það sýður á þeip þinum cnn. Þeir sœkja eþþi sjó öllti betur, þó séu það tvitugir mcnn. Þér kjppn i norrœna /(y«/Ví, að kui'ltneimsku, geðspe1{t og ró. Ert 'grein á þeim göfuga meiði, sem ge/(k þá í víþing á sjó. Þeir héldu i vikjng á vorin, á vctrin þú lcetur í haf. Sii þráin var söm ykjkcir sálum. Það seiðir hið kvikli^a t, aí■ Við skiljum það, — virðing þér vottum. Þótt vikingas/(ip þitt sé smátt, og hafi e/(ki blóðlituð borðin, var blessuð þess heim/(oma þrátt. Svo hyllum við sextugan sœgarp, hinn síglaða starfsama mann. Þeir allir, sem vettlingi valda, nii verða að skála við hann. H. Th. B. Ljósið bjarta lýsi þér! Ijúfa daga og ncetur. Hvar sem er og hvar þii fer og hvar þií hvílast lcetur. Góði bezti, ga.jan festi gleði bros á vanga þinn. Ljúfast yndi Ijúft þér bindi langa aji, vintir minn. l>a/(/(a þér fyrir góðu kyuuin! Þa/(/(a þvr fyrir allt og a/lt. Þakka þar fyrir gömlu minnin. Þakka þér fyrir þúsundfalt. Tóta og Mar/(ús. Vinnuföt í fjölbreyttu úrvali frá Heklu J t>9 Vinnufatagerð íslands I KAUPFÉLAG SUÐURNESJA i fárn- & S/(ipavörur I I

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.