Faxi

Volume

Faxi - 17.06.1954, Page 18

Faxi - 17.06.1954, Page 18
74 F A X I „Mannrœkt“ Er blaðstjórn hafði samþykkt rit- smíð herra kaupmanns Danivals Danivalssonar, þá sem hér fer á eft- ir, var greinin sýnd séra Birni Jónssyni, ef hann æskti að láta fylgja svör við spurningum þeim, sem herra kaupmaðurinn bar fram. Séra Björn vísar einungis til niður- lags greinar sinnar, þar sem hann tekur skýrt fram, að hann hyggi ekki á frekari blaðaskrif um þetta mál. Ritstj. Fví má þakka það, að hugvekja þessi varð til að ég er meðlimur í málfunda- félaginu Faxa. En þar er sá háttur hafður á, að ltver félagi er skuldbundinn til að flytja fram- söguerindi, og eru svo þessi erindi stund- um hirt í lilaði félagsins, er nefnist „Faxi“. I þessum framsöguerindum er rætt um allt milli himins og jarðar og Faxafélagar láta sér þar ekkert mál óviðkomandi. Undir þessum kringumstæðum verður framsöguerindi mitt til, er ég nefndi „mannrækt" t>g var það hirt í blaði félags- ins og verður það þess valdandi að hinn heitttrúaði lijtirn Jónsson finnur köllun lijá sér að semja hugvekju, vegna þessa erindis, og birtir hana í Itlaði okkar Faxa- félaga. Hugvekja þessi er mjiig athyglisverð tig vil ég biðja lesendur Faxa að lesa hana með athygli, því hún sýnir greinilgea hvað höfundur hennar er lítillátur, hógvær og hjartahlýr. Mikið er það lán fvrir Kefl- víkinga, að þeim skyldi áskotnast slíkur maður, má um það segja, að það er mikið búsílag ofan á hernámið. Nú hefir þessum blessuðum guðsmanni fundist ég vera fá- fróður í hinni helgu bók, biblíunni, í erindi mínu og spyr mig í hjartans lítil- læti sínu hvort ég hafi nokkurn tíma lesið biblíuna? Blessaður maðurinn, mikið er hann góður í'sér. Ef það er nú alvara hjá B. J. að bæta úr fáfræði minni í þessurn málum, sem ég efast ekki um. Þá vildi vildi ég leyfi mér að bjóða B. J. að koma á málfund hjá okkur Faxafélögunum og flytja erindi um biblíuna og að sjálfsögðu yrðu umræður á eftir, eins og venja er hjá okkur. Enn spyr guðsmaðurinn, orðrétt tekið upp úr hugvekju hans „hvað eru margir mannsaldrar síðan hann hlustaði á prédikun hjá íslenzkjum presti?“ Því miður verð ég að játa, að þetta dæmi get ég ekki reiknað. En í vandræðum mínum dettur mér í hug, að biðja B. J. að gera svo vel að reikna út og birta útkomuna í blaðinu Faxa, svo Keflavíkursöfnuður fái að vita eftirfarandi: Hvað eru margir mannsaldrar, ef hlustað er á íslenzl{an prest prédika 3. okt. 1953 og miðað er við að hann hlusti aftur 2. mai 1954? Og hver er munurinn á mannsaldrinum, ef hlustað er á prédikun hjá erlendum presti, miðað við sama tíma og hjá íslenzkum prestum? Eg þakka fyrirfram svarið. Ég get vel skilið að B. J. hafi þjáðst af þekk- ingarskorti mínum, þegar hann las grein mína, og óskapleg hafi vonbrigðin orðið, þegar hann fóra að lesa þáttinn um prest- ana. Fyrst kom honum í hug eftir því er hann hermir sjálfur frá. „Spámaður mikill er upprisinn á meðal vor“ og þá fylltist hann náttúrlega himneskri gleði. En þetta varaði aðeins stutta stund, von bráðar verður hann fyrir þeirri hjartasorg, að hann sér mig í huganum fljúgandi í lausu lofti, og að þessi nýupprisni spámaður cr allur með „brestum" og meira að segja ,.þverbrestum“. Að endingu þetta, ég vil leyfa mér að þakka B. J. hugvekju hans, því hún gefur mér innsýn í hans kærleiksríka hugar- heim, og sýnir líka, að hann er vel á verði um sálarheill sóknarbarna sinna, og hann er ánægður með árangur af starfi presta- stéttarinnar. Það lýsir sér svo vel í hans postullegu hugvekju, en þar segir svo. „En nær er mér að halda, að ef tekið væri meðaltal af fagurri breytni hjá hinum ýmsu stéttum þjóðfélagsins, þá mundi hlutur prestanna þar ekki verða verri en annarra.“ Duniual Danivalsson. Syndið 200 metrana Alþýðublaðið flytur yður nýjastar fréttir, bæði innlendar og erlendar. Það flytur einnig daglega fróðlegar og skemmtilegar greinar um rnenn og málefni, sem efst eru á baugi í umheiminum á hverjum tíma, eftir fræga blaðamenn og sérfræðinga í ýmsum greinum. I i ALÞÝÐUBLAÐIÐ Símar: Afgreiðsla 4900. Auglýsingar 4906. I

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.