Faxi

Volume

Faxi - 01.03.1956, Page 1

Faxi - 01.03.1956, Page 1
FAXI 3. tbl. • XVI. ár MARZ 1956 Utgefandi: Málfundafélagið Faxi Keflavík. Þessi glœsilegu skip hafa i vetur bœtzt viö bátaflota Keflvíkinga Hinn 8. febrúar kom til Keflavíkur fyrsti stálbáturinn, sem smíðaður er í Þýzka- landi. Er þetta 22.57 metra langur bátur og um 76 rúmlestir. Hann er útbúinn þýzkri 240 hestafla dieselvél frá firmanu Mak Kiel, og er ganghraði hans mjög góður, sem nokkuð má marka af því, að hann var aðeins 5l/2 súlarhring frá Ham- borg til Keflavíkur, heimahafnar sinnar. Báturinn er búinn hinum fullkomnustu takjum, m. a. vatnsþrýstikerfi fyrir drykkj- arvatn, þvottavatn o. fl. Allur frágangur bátsins er með hinum mesta glæsibrag og öllu mjög haganlega fyrir komið, enda stuðst við ráðleggingar og teikningar Egils Þorfinnssonar skipasmiðs, sem teiknaði alla innréttingu með hliðsjún til krafna íslenzkra sjúmanna. Báturinn er smíðaður eftir ströngustu kröfum íslenzku skipa- skoðunarinnar og þýzka Lloyds fyrir út- hafsskip. Fisklestin er klædd með alui minium. Báturinn er smíðaður hjá D. W. Kremer Sohn í Elmshorn, en umboðs- menn þess firma hér á landi er Kristján G. Gíslason & Co. Eigendur bátsins eru Olafur Loftsson og hinn kunni aflamaður Þorsteinn Þúrðarson, skipstjúri í Keflavík. Báturinn var tilbúinn til veiða við heim- komu, með öllum útbúnaði bæði til þorsk- og síldveiða. Við smíði þessa báts hefur ekkert verið til sparað, enda er hann allur hinn glæsilegasti. Þann 4. febrúar í vetur hljúp af stokk- unum í Skipasmíðastöð Njarðvíkur nýr bátur, sem hlaut nafnið m.b. Ólafur Magn- ússon. Eigendur bátsins eru Albert Ólafs- son útgerðarmaður, Erlendur Júnsson og Maren Júnsdúttir. Skipstjúri er Óskar lngi- bergsson. Báturinn er smíðaður úr eik, 58 smálestir að stærð t)g vélitt 280 hestafla dieselvél, Mannheim gerð. Ganghraði bátsins er mjög gúður, enda vélin öflug, trtiðað við stærð bátsins. Teikningu gerði Egill Þorfinnsson í Keflavík, en Bjarni Einarsson skipasmiður sá um bvggingu bátsins. Niðursetning vélar sá um Jún Valdimarsson og raflagnir Snæljús, Kefla. Báturinn er hinn vandaðisti í alla staði. Hann er búinn öllum nauðsynlegustu ör- yggistækjum og þar á meðal Simraad dýpt- armæli með Astic útfærslu. Er mikill feng- ur að þessu glæsilega skipi í flota Keflvík- inga.

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.