Faxi - 01.02.1962, Blaðsíða 10
26.
F A X I
Stórbætt þjónusta hjé Kaupfélagi
Suðurnesja
Nú að undanförnu hefir Kaupfélag Suð-
urnesja staðið í stórræðum við að bæta að-
stöðuna við mjólkur og kjötsölu í búðum
sínum.
Breytt í /(jörbúö.
Þann 13. janúar var matvörubúðinni á
Hafnargötu 62 lokað meðan gagngerar
endurbætur fóru fram á henni. Voru öll
skilrúm og innréttingar í búðinn rifin
niður til grunna, miðstöðvar og raf-
magnslögnum gjörbreytt, ný raflýsing sett
upp og innréttaður 20 rúmm. kæliklefi
fyrir allar mjólkurvörur. Er þessi kæliklefi
nógu stór fyrir þá mjólk, er búðin selur
daglega, og taka nú viðskiptavinir mjólk-
ina sjálfir úr kælinum eins og aðrar vörur
í 'búðinni. Fylgja þessu að sjálfsögðu mikl-
ir kostir, það fer vel um vöruna, er auð-
^■•elt að ná til hennar og afgreiðslan verð-
ur mun greiðari og betri. Með þessum
breytingum ér búðin á Hafnargötu 62
orðin með fullkomnu kjörbúðarsniði og
ein af smekklegustu matvöruverzlunum
bæjarins. Deildarstjóri á Hafnargötu 62,
er Þórður Guðmundsson frá Sandgerði.
— Búðin var opnuð eftir hinar gagngeru
breytingar, miðvikudaginn 24. janúar.
Kjörbúðin á Hajnargötu 30.
Fyrir nokkrum missirum var matvöru-
búð Kaupfélagsins á Hafnargötu 30 breytt
í kjörbúð og var sú breyting að allra dómi
til hins mesta hagræðis. Þó var sá ljóður
á, að mjólkin var áfram afgreidd með
gamla fyrirkomulaginu. Nú hefir þessu
verið breytt. Innréttaður var stór kæli-
klefi, er rúmar alla mjólk og mjólkurvör-
ur til dagsölunnar. Er vörunum komið fyr-
ir á svipaðan hátt og í búðinni á Hafnar-
götu 62, þannig að viðskiptavinirnir taka
sjálfir vörurnar úr kælinum og koma
með þær til gjaldkerans, sem tekur á móti
greiðslum og býr um vörurnar, sé þess
óskað. Virðist þessi breyting hafa vcrið
nauðsynleg og bæta mjög afgreiðsluna í
búðinni. Deildarstjóri er Hjörtur Guð-
mundsson frá Djúpavogi.
Kjötvinnsla.
I sumar var lokið við að fullgera við-
byggingu við „lagerpláss" félagsins á Hafn-
argötu 30. Er þetta nýja húsnæði um 100
Birgir Scheving.
ferm. að flatarmáli og eru innréttaðir í það
þrýsti- og kæliklefar. Hefir að undanförnu
verið unnið að annarri innréttingu þessa
húsnæðis, með það fyrir augum að koma
þar upp fullkominni kjötvinnslu. Hafa í
því skyni verið keyptir 2 reykofnar fyrir
heita og kalda reykingu og annar nauð-
synlegur vélakostur ýmÍ9t keyptur nýr
eða endurnýjaður. Er nú þessum fram-
kvæmdum senn að verða lokið, þegar þetta
er ritað, og má vænta þess, að kjötvinnslan
verði tekin til starfa um það leyti sem
Faxi kemur út. Verður þá lokið hinum
leiðu flutningum á unnum kjötvörum frá
Reykjavík.
Forstöðumaður að kjötvinnslunni hefir
verið ráðinn, Birgir Scheving. Er það ung-
ur maður, sem hefir aflað sér staðgóðrar
menntunar í þessu fagi. Lærði hann kjöt-
vinnslu lrjá „Kjöt og grænmeti“, fór síð-
an utan og kynnti sér slík störf í Dan-
mörku. Eftir að hann kom heim gerðist
hann verkstjóri hjá Kjöt og grænmeti og
hefir síðan starfað hjá því fyrirtæki við
góðan orðstý þar til nú að hann réðist
hingað til kaupfélagsins. Núna á dögun-
um hitti ég Birgi að máli og lagði fyrir
hann nokkrar spurningar varðandi kjöt-
iðnað og fleira:
— Hvernig segist þér hugur um starf
þitt hér?
— Agætlega. Kaupfélagið virðist liafa
vandað vel til þessarar kjötvinnslu, — öll
venjuleg og nauðsynleg tæki eru fengin
og húsnæðið er í góðu lagi.
—• Hvað segir þú uni ísl. kjötiðnað sam-
anborið við þann danska?
— í Danmörku er þetta allt stærra í
sniðum, en fjölbreytni er engu minni hér.
— Hvaða vörur verða hér á boðstól-
um ?
— Allar algengustu pylsugerðarvörur og
hverskonar kjötmeti. Við komum til með
að reykja, salta og súrsa eftir þörfum og
munum kappkosta að 'bjóða einungis fyrsta
flokks vörur.
— Seljið þið til annarra verzlana en
Kaupfélagsins?
— Þegar kjötvinnslan er komin í fullan
gang, ættum við að geta fullnægt þörfum
allra þeirra, sem óska að skipta við okkur.
H. Th. B.
$
Keflvíkingar!
Þvottabalar
Kaffikönnur
Hraðsuðukatlar
Pottar
Pönnur
Hakkavélar, handsnúnar
Kökudúnkar
Kökudiskasett
Klósettburstar í statífi
Plastvörur, margskonar
Eggjaskerar, margar gerðir
Grænmetisskerar
Avaxtaskerar
Dósahnífar
Hilluplast
Brauðristar þrjár gerðir
Strokjám tvær gerðir
llyksugur
Borðbúnaður í gjafakössuin
F ormkökukassar
Ritföng
Innkaupanet
Kaupfélag
Suðurnesja
Búsáhaldadeild
<><><>><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><>^^