Faxi - 01.02.1965, Page 1
Febr.-blaS
2
XXV. AR 1965
Keflavíkurkirkja fimmtíu ára
Yfir innri kirkjudyrum í Keflavíkur-
kirkju að innanverðu er festur málm-
skjöldur. Efst á hann er greypt mynd
kirkjunnar. Undir myndinni er svofelld
áletrun:
„Byggð árið 1914, að meiri hluta af gjöf
frá herra stórkaupmanni O. H. Olafsson
og systur hans, ekkjufrú Crh. F. Duus í
Kaupmannahöfn, að öðru leyti af söfnuði
Keflavíkursóknar. Teiknuð af herra bygg-
nigarmeistara Rögnvaldi Olafssyni, Reykja-
vík.“
Aletrun þessi er í samræmi við áletrun
þá, er blasir við yfir útidyrum kirkjunnar,
en þar hefir ártalið 1914 verið fellt inn í
steinsteypuna með stórum upphafsstöfum.
Þessar áletranir, og þó einkum hin síðar-
nefnda, hafa valdið því, að margir hafa
alitið, að afmæli kirkjunnar bæri að miða
við árið 1914. En það er ekki rétt. Venjan
er sú, þegar slíkra tímamóta er minnzt Kejlavíkurkjrttja.
að tengja þau þeim degi, er húsið var
Sr. Eiríkur S. Brynjólfsson.
helgað sínu heilaga hlutverki, — vígslu-
deginum. En Keflavíkurkirkja var vígð
14. febrúar 1915 með hátíðlegri athöfn
að viðstöddu miklu fjölmenni. Vígsluna
framkvæmdi þáverandi prófastur Kjalar-
nessprófastsdæmis, sr. Kristinn Daníels-
son á Otskálum. Honum til aðstoðar voru
prestarnir sr. Brynjólfur Magnússon í
Grindavík, sr. Arni Þorsteinsson á Kálfa-
tjörn og sr. Árni Björnsson í Görðum.
'Nú hefir verið ákveðið að minnast
þessa hálfrar aldar afmælis kirkjunnar
okkar með nokkurri viðhöfn sunnudaginn
28. febr. næstkomandi, þar eð aðstæður
leyfðu ekki, að hinn rétti afmælisdagur
yrði til þess kjörinn, þó að hann bæri upp
á sunnudag þessu sinni.
Kirkjan okkar, sem nú hefir sér hálfa
öld að baki, er sú fyrsta og eina, sem hér
í Keflavík hefir fullreist verið. Almennur Sr. Björn jónsson.