Faxi - 01.02.1965, Side 3
klukkna, sem vígðar voru á pálmasunnu-
dag 1963, gerðist hringjara ekki lengur
þörf, þar eð þær eru knúnar með raf-
magni.
Allir þessir menn, sem hér eru taldir,
svo og aðrir þeir, sem í sóknarnefnd hafa
setið, liafa innt af liendi mikið og fórn-
fúst starf fyrir kirkjuna okkar, eins og
bezt má sjá á þeim vitnisburðum, sem
hókaðar eru um þá marga í gjörðabók
sóknarnefndar, er þeir létu af störfum.
Fyrsti organisti við Keflavíkurkirkju
var frú Marta Valgerður Jónsdóttir, sem
er öllum lesendum Faxa að góðu kunn
vegna sinna stórmerku greina, er hún nú
um árabil hefir ritað í blaðið undir fyrir-
sögninni „ Minningar frá Keflavík.“
Fftirmaður frú Mörtu í því starfi var
Friðrik Þorsteinsson. Hann mun hafa
tekið við árið 1918. Síðan liefur Friðrik
gegnt organistastörfum og allt fram undir
lok síðasta árs, er Geir Þórarinsson var
táðinn í hans stað. Ennfremur hefir Frið-
1 ik verið gjaldkeri sóknarnefndar frá 1946.
Vegna þessara afstöðnu organistaskipta
Fnnst mér bæði rétt og skylt að minn-
ast sérstaklega með nokkrum orðum hins
langa og giftudrjúga starfs Friðriks Þor-
steinssonar, sem söngstjóra og organista
við Keflavíkurkirkju. Fyrsta sinn lék hann
við guðþjónustu í gamlárskvöld árið 1914,
þá nýfermdur, svo að segja má með sanni,
að hjá honum hafi snemma beygzt krók-
urinn að því sem verða vildi. Hann er
fæddur listamaður, músíkin honum í blóð
borin. Hann var frábærlega smekkvís í
starfi sínu og öll túlkun hans á orgelið
einkenndist af hárfínni nákvæmni. En
það sem mér fannst þó ætíð gefa kirkju-
0rganleik Friðriks mest gildi, var hinn
hlýi, trúarlegi undirstraumur, sem oft
glæddi tónana nýju lífi og lyfti þeim í
æðra veldi.
Sjálfur á ég Friðrik margt og mikið
gott að þakka frá okkar samstarfi við
helgiathafnir og kirkjuleg mál. Það var
mér ómetanlegur styrkur, þegar ég kom
hingað ungur og óreyndur í starfi að geta
leitað ráða og hollra bendinga til slíks
manns, sem Friðrik er. Vil ég nota þetta
tækifæri til þess að þakka Friðriki Þor-
steinssyni fyrir allt hið mikla starf, er
hann hefir innt af liendi í þágu kirkju
og kristnilífs hér í okkar bæ.
Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd,
hafa félagar í kirkjukórnum staðið dyggi-
lega við hlið organistans í starfi. Meiri
hluti þeirra, sem myndin sýnir, eru enn-
þá á sínum stað, hvenær sem þörfin kall-
ar. 1 þeim hópi hefir mikið og fórnfúst
starf verið unnið. Og þrátt fyrir marg-
þætt og umsvifamikil störf, sem ýmsir
félaganna hafa haft með höndum, þá hafa
þeir ávallt litið á það sem sjálfsagða, og
ég hygg að óhætt sé að segja ljúfa skyldu,
að mæta til söngs við helgiahafnir í kirkj-
unni.
Fyrsti formaður kórsins var Þorsteinn
Árnason, en núverandi formaður er Böðv-
ar Pálsson.
Um alllangt skeið hefir barnakór verið
starfandi við kirkjuna. Söngstjórar hans
hafa verið Stefán Hallsson og Vilhelm
Ellefsen. Hafa þeir báðir innt af hendi
mjög gott og giftubrjúgt starf á þeim vett-
vangi.
Hinn nýja organista Geir Þórarinsson,
býð ég velkominn til starfs. Eg veit af
reynslu, að þar er fenginn góður liðs-
maður, sem eigi mun bregðast. Hann er
Gcir Þórarinsson,
núverandi organisti Kcjlavíkuriijrlýu.
ötull og ósérhlífinn, og heilshugar unn-
andi hinu nýja hlutverki sínu.
Ollum þeim, sem hér hafa verið nefndir,
svo og hverjum þeim, sem með störfum
sínum hafa lagt lóð á vogarskálina kirkj-
unni okkar til hags og heilla, skal af hjarta
þakkað á þessum tímamótum.
Sóknarprestar þeir, sem þjónað hafa
við Keflavíkurkirkju, eru aðeins fjórir:
Sr. Kristinn Daníelsson, sr. Friðrik J.
Rafnar, sr. Eiríkur S. Brynjólfsson og
undirritaður. Um tvo þá fyrstu hefir frú
Marta V. Jónsdóttir skrifað ítarlega hér í
Faxa í tilefni kirkjuafmælisins. Og sr.
Eiríks S. Brynjólfssonar er rækilega minnzt
í nóvemberblaði Faxa 1962 í sambandi við
andlát hans. Kvæntur var Eiríkur Guðrúnu
Guðmundsdóttur, kaupmanns og útvegs-
bónda í Gerðum í Garði, hinni ágætustu
konu, sem lifir mann sinn og fluttist að
honum látnum aftur heim til Islands og er
nú búsett í Reykjavík. Minning sr. Eiríks,
eldhugans sókndjarfa og baráttufúsa, og
drengskaparmannsins hjartahlýja, er flest-
um fulltíða Keflvíkingum svo í fersku
minni, að þar er engu við að bæta. Um ævi-
atriði hans og störf vísast til áðurnefnds
tölublaðs Faxa.
Senn hefur blessuð sóknarkirkjan okkar
sína aðra aldarhelft. Hingað til hefir hún
breitt faðminn mót börnum sínum, flutt
þcim friðarmál trúar og kærleika, boðið
þeim hlífð og skjól í næðingum lífsins og
leitazt við að benda þeim fram á gæfuveg-
inn.
Margar eru minningarnar við kirkjuna
Barnakþr
Kc]lavíkiir]{irkju
ásamt stjörnanda
sinum
Vilhcltn Ellejsen.
FAXI — 19