Faxi - 01.02.1965, Side 6
sonar, forföður Stephensensællar. Faðir
þeirra bræðra Stefán prestur að Höskuldar-
stöðum f. 1695 d. 1784 Ólafsson, var dóttur-
sonur séra Stefáns skálds í Vallarnesi
Ólafssonar, sonur Önnu dóttur hans. Var
því frú þórunn fjórði liður frá séra Stef-
áni á Höskuldarstöðum. Má af þcssu sjá,
að ættir þeirra Utskálaprestanna, séra
Kristins Daníelssonar og séra Friðriks
Rafnars hafa verið fléttaðar saman á fleiri
en einn veg en nánasti skyldleiki þeirra
hefur verið frá Oddi notariusi Stefáns-
syni, hálfbróðir Sigríðar Stefánsdóttur
konu Þórarins sýslumanns Jónssonar.
Hafa þeir prestarnir á þann veg, verið
fimm-menningar.
Séra Jónas rithöfundur, faðir séra
Friðriks, var fæddur 7. ágúst 1856 á Ulfá
í Eyjafjarðardölum, sonur „Jónasar" lækn-
is og bónda, síðast á Tunguhálsi í Skaga-
firði Jónssonar bónda á Ulfá í Eyjafirði f.
1797 d. 30. des. 1847 Bergssonar bónda í
Seljahlíð f. 1762 d. 30. okt. 1828 Flóvents-
sonar.
Kona Jónasar í Tunguhálsi, og móðir
séra Jónasar, var Guðríður f. 1. marz 1835
d. 16. nóv. 1913 Jónasdóttir bónda á Hall-
dórsstöðum í Eyjafirði f. 1803 d. 20 mai
1872 Guðmundssonar, Frú Guðríður var
mikil gáfukona.
Séra Friðrik Rafnar flutti frá Ulskálum
síðla árs 1927 og varð prestur á Akureyri,
æskubyggð sinni við miklar vinsældir um
nálega þrjá tugi ára. Hann varð víxlu-
biskup í Hólastifti hinu forna 1937,
prófastur í Eyjafjarðarprófastsdæmi 1941.
Séra Friðrik Rafnar var hamingjumaður.
Þegar fyrst er talið það lífslán, sem mest
er, að eiga góða og göfuga foreldra og
njóta þeirra fram á manndómsár, þar næst
farsælt hjónaband með gáfaðri konu og
vera umkringdur góðum vinum, hvar sem
leið lá, og er syrli að síðustu árin og
þungur sjúkdómur sótti hann heim, stóð
hún, lífsförunauturinn, við hlið hans, eins
og góður engill. Séra Friðrik Rafnar and-
aðist 21. marz 1959 og frú Asdís andaðist
30. sept. 1960.
t>eim hjónum varð ekki barna auðið.
Fósturbörn þcirra voru þrjú: Hanna Rafn-
ar, búsett í Reykjavík. Vinnur við Happ-
drætti Háskóla Islands. Hún er systur-
dóttir frú Ásdísar Rafnar. Guðmundur
Þórðarson, bryti á m. s. Gullfossi. Jóhann-
es Olafsson, bróðursonur frú Ásdísar
Rafnar, vélvirkjameistari.
Davíð Valgarðsson.
Sundmeistaramót'
Sundmeistaramót Keflavíkur var haldið í
Sundhöll Keflavíkur. Þátttaka í mótinu var
góð, og náðist ágætur árangur í mörgum
greinum. Davíð Valgarðsson og Auður Guð-
jónsdóttir unnu afreksbikar karla og kvenna.
Er þetta í þriðja sinn í röð sem þau vinna
þessa verðlaunagripi og unnu þá nú til eignar.
Verðlaunagripi þeirra gáfu Olíusamlag Kefla-
víkur og Kaupfélag Suðurnesja árið 1956. —
A mótinu kepptu sem gestir margir ágætir
sundmenn frá Reykjavík og Hafnarfirði.
Urslit í einstökum greinum urðu sem hér
segir:
100 melra skriðsund karla.
1. Davíð Valgarðsson, UMFK .... 1.01.1 min.
2. Guðm. Þ. Harðarson, Æ ..... 1.02.2 mín.
3. Gunnar Kristjánss. SH ..... 1.06.6 mín.
100 mctra bringusund kvenna.
1. Auður Guðjónsdóttir, UMFK 1.29.9 mín.
2. Kristín Einarsdóttir, UMFK .. 1.36.8 mín.
3. Lovísa Gunnarsdóttir, UMFK 1.37.0 mín.
109 mctra bringusund karla.
1. Þór Magnússon, UMFK ....... 1.24.8 mín.
2. Sigmundur Einarsson, UMFK 1.27.4 mín.
Árni Þ. Kristjánsson, Hafnarf, keppti sem
gestur og synti á 1.16.3 mín.
50 metra skriðsund kvcnna.
1. Rakel Ketilsdóttir, UMFK ......... 35.3 sek.
2—3. Auður Ásgeirsdóttir, UMFK 38.8 sek.
2—3. Helga Einarsdóttir, . . UMFK 38.8 sek.
50 metra baksund kvenna.
1. Auður Guðbjörnsdóttir, UMFK 37.4 sek.
2. Lovísa Gunnarsdóttir, UMFK 46.5 sek.
3. Helga Einarsdóttir, UMFK .... 49.1 sek.
50 metra baksund karla.
1. Davíð Valgarðsson, UMFK .......... 34.6 sek.
2. Guðmundur Sigurðsson, UMFK 36.9 sek.
50 metra flugsund karla.
1. Davíð Valgarðsson, UMFK .... 30.0sek.
2. Gunnar Kristjánsson, SH .......... 33.5 sek.
3. Guðm. Þ. Haraldsson, Æ ........... 33.6 sek.
gm
Auður Guðjónsdóttir.
Keflavíkur 1964
50 mctra bringusund kvenna.
1. Kristín Einarsdóttir, UMFK .... 43.5 sek.
2. Lovísa Gunnarsdóttir, UMFK .. 44.5 sek.
3. Helga Einarsdóttir, UMFK .... 46.8 sek.
66% metra fjórsund karla.
1. Davíð Valgarðsson, UMFK ....... 44.8 sek.
2. Þór Magnússon, UMFK ........... 52.3 sek.
3. Sigmundur Einarsson, UMFK .... 54.0 sek.
Guðm. Þ. Haraldsson, Æ, keppti sem gestur
og synti á 47.7 sek. og Árni Þ. Kristjánsson,
SH syntin á 47.9 sek.
66% mctra fjórsund kvenna.
1. Auður Guðjónsdóttir, UMFK .. 53.4 sek.
2. Helga Einarsdóttir, UMFK .... 1.04.0 sek.
4x50 mctra buðsund (fjórsund) karla.
1. Sveit Keflavíkur .............. 2.17.0 sek.
2. Sveit Sveit R.víkur og Hafnarfj. 2.19.0 sek.
3x50 metra boðsund (þrísund) kvenna.
1. A-sveit UMFK................... 1.58.9 mín.
2. B-sveit UMFK................... 2.13.7 mín.
Keppendur unglingagreinar úr Keflavík.
Þrír fyrstu í hverri grein urðu:
33% metra bringusund drengja.
1. Einar Leifsson .............. 30.7 sek.
2. Árni Ásmundsson ............. 32.3 sek.
3. Hjálmtýr Baldursson ......... 33.3 sek.
4. Hrólfur Gunnarsson .......... 33.3 sek.
33% metra bringusund tclpna.
1. Bergþóra Ketilsson.
2. Margrét Hallsdóttir.
3. Maríanna Einarsdóttir.
33% mctra skriðsund drcngja.
1. Axel Birgisson ................ 23.3 sek.
2. Árni Ásmundsson ............... 23.8 sek.
3. Einar Leifsson ................ 25.2 sek.
33% metra skriðsund tclpna.
1. Erla Bjarnadóttir.............. 26.4 sek.
2. Hafrún Albertsdóttir .......... 28.0 sek.
3. Jóna Baldursdóttir ............ 32.1 sek.
H. G.
22 — F A X I