Faxi - 01.02.1965, Page 9
því til þess hefði hann aldrei unnið. Hann
hafi alla tíð verið lítill, bæði í sjón og raun.
Rétt er það, að Sigurþór mun vera með
lagvaxnari mönnum, en hann er þéttur á
velli og kvikur í spori og óvenju hvatlegur
i hreyfingum, það verður ekki af honum
skafið, þrátt fyrir nokkuð háan aldur, en
nann varð sjötugur í desember í vetur.
Sigurþór er fæddur í Árbæjarhjáleigu
í Holtum 2. des. 1894, sonur hjónanna
kiuðlaugar Magnúsdóttur og Þórlcifs
Guðleifssonar, er þar bjuggu. Var faðir
nans lærður járnsmiður, en stundaði á
efri árum aðallega rokkasmíði. Sigurþór
ólst upp með foreldrum sínum til fullorð-
msára. Jafnliliða algengri sveitavinnu lærði
hann smíðar af föður sínum og vann að
smíðum síðan, fyrst jafnhliða eigin bú-
skap og síðar eingöngu.
Sigurþór kvæntist 27 ára gamall jafn-
öldru sinni, Júlíönu Guðmundsdóttur, sem
Var fædd í Garðahverfi, en fluttist ung
til Hafnarfjarðar og ólst þar upp.
Þau reistu fyrst bú á Hallstúni í Holt-
um og bjuggu þar eitt ár, en fluttust 1924
að Lambhaga á Rangárvöllum og bjuggu
þar [ 9 ár. Þar eignuðust þau 2 sonu,
Þorleif Kristinn rafvirkja og Ágúst Vetur-
liða, sem starfar að bifreiðatryggingum
i Reykjavík.
Frá Lambhaga flutti Sigurþór að Strönd
1 sama héraði og byggði þar nýbýli, sem
bann nefndi Litlu Strönd. Þar bjuggu þau
hjónin í 13 ár, og þar missti Sigurþór
konu sína 1947. Brá hann þá búi og flutti
litlu síðar til Þorleifs sonar síns, sem þá
var kvæntur Margréti Karlsdóttur og bú-
setlur í Reykjavík og útlærður rafvirki.
Nokkru síðar fluttizt Sigurþór með þeim
njónunum til Keflavíkur og þar dvelur
hann nú á heimili þeirra, að Skólavegi 9,
°g liefir innréttað fyrrnefnt verkstæði inn
KEFLAVÍK -
FRAMKVÆMUM
ALLSKONAR
MYNDATÖKUR
af raftækjavinnustofu Þorleifs sonar síns,
sem er í viðbyggingu við íbúðarhúsið.
Hefir Sigurþór ærið nóg að gera í sinni
sérstæðu framleiðslugrein og unir þar glað-
ur við sitt.
— „Hvernig kanntu við þig í Kefla-
vík, Sigurþór?" spyr ég eftir að hafa svip-
azt um á verkstæðinu og skoðað renni-
bekkinn og önnur smíðatól gamla manns-
ins, sem livert hefir sínu ákveðna hlut-
verki að gegna.
— Yflrleitt vel, — en það hljóta líka
allir að segja, sem hafa nóg að gera og
halda sæmilegri heilsu. Annars er nú ald-
urinn orðinn býsna hár og dregur þá sjálf-
sagt að því að maður kveðji þessa veröld.
— Og hvað mundirðu þá segja við hana
að skilnaði?
— Forsjónin hefir verið mér góð, svo
ég hefi ekki undan neinu að kvarta og
mun því kveðja sáttur við guð og menn.
— Hvað finnst þér, Sigurþór, um saman-
burð á gamla og nýja tímanum?
— Mér finnst t. d., að þrátt fyrir mikla
dýrtíð, geti menn nú látið meira eftir sér
en í gamla daga, enda leggja menn nú í
hinar ótrúlegustu framkvæmdir og það oft
án mikilla efna, sem enginn hefði í þá
daga látið sér til hugar koma. Þó finnst
mér bera af í þessum samanburði, hve nú
er miklu auðveldara að afla sér menntunar.
Mín kynslóð fór hennar svo til alveg á mis.
Eg hefði svo feginn viljað fá notið meiri
tilsagnar í þeirri starfsgrein sem ég stunda,
en þess var þá enginn kostur. Maður varð
að vinna hörðum höndum og átti sér fáar
tómstundir. Nú geta menn fyrirhafnar-
lítið lært það sem hugurinn kýs og látið
þó ýmislegt eftir sér af heimsins lysti-
semdum, þrátt fyrir væl og barlóm aldar-
innar, sem mér finnst vera allt of mikið
af. H. Th. B.
SUÐURNES
Á stofu.
í heimahúsum. !;
í samkvæmum.
Passamyndir. ;j
Ökuskírteinismyndir. ;j
Eftirtökur á gömlum myndiun.
Auglýsingamyndir. '!
Pantið í síma 1890 • !!
Ljósmyndastofa Suðurnesja
Túngötu 22 — Keflavík — Sími 1890 — Pósthólf 70
<><XXxc
KEFLAVÍK
Bátakönnur
Bátadiskar
Hnífar
Gafflar
Skeiðar
Teskeiðar
Stakir bollar
Matarstell
Kaffistell
Pottar
Katlar
Kaffikömiur
Könnupokar
Hitakönnur
Burstavörur
Hillupappír
Gólfklútar
Afþurkunarklútar
Kuupfélag
Suðurnesja
Búsáhaldadeild.
F A X I — 25