Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.02.1965, Qupperneq 11

Faxi - 01.02.1965, Qupperneq 11
þeirra voru þá yngri systkini mín. Allt fólkið á Velli og Vallarhúsum var flúið undan hamslausri reiði náttúruaflanna. En gat það ekki hafa drukknað eins og geml- ■ngarnir, sem veltust í sjólokunum upp að hlaðinu á Járngerðarstöðum ? Við vorum kyrr í okkar lágreista húsa- skjóli. Vissulega var veðurofsinn ekki eins ákafur og áður, — og okkur sýndist út- sogið skríða lengra niður eftir túninu, þótt aldan ylti enn alla leið upp í hlaðvarpann. Oldur úthafsins hjöðnuðu. — Sviftivindar loftsins urðu lémagna eftir ofurátök sín. Fárviðrið var gengið hjá! Hvernig var svo umhorfs eftir þessar ham- farir lofts og lagar — þær mestu er sagnir herma að gengið hafi yfir Grindavík? Mikið tjón varð á mannvirkjum og eignatjón meira en orðið hefur í annan tima hjá Grindvíkingum. T. d. flaut íbúð- arhúsið í Akurhúsum af grunni góðan spöl mn á tún, skömmu eftir að íbúarnir flúðu. Þá þótti það og mikil tíðindi, að nota varð bát til að bjarga íbúum Eyðis út um loftsglugga. En Eyði stóð lágt og í nokkru vari, svo að báti var við komið. Og vafalaust má telja, að mikið mann- tjón hefði orðið, ef þessi ósköp hefðu dunið yfir að nóttu — einu dægri fyrr eða síðar. Vertíðarbátarnir höfðu flestir laskast eða hrotnað verulega — fiskhús höfðu fengið svipaða útreið. Það var mikið verk að vinna til úrbóta áður en róðrar gátu hafist að nýju. Malar og grjótbtirður hafsins náðu lang- ar leiðir inn á tún, og urðu sum þeirra ekki nytjuð síðar. Sem dæmi um afköst hafróts- ins í þeim efnum, má uefna, að þegar fjar- aði kom í ljós, að meðal annara steina, sem horist höfðu inn í lnisið á Velli var einn á eldhúsborðinu, er 4 menn þurftu til að færa ur stað. Ekki man ég hve margt fé lét lífið í flóði þessu, en minnisstæðastur er mér hinn válegi valköstur. þar sem ægði saman dauðum kindum, fiskum og öðrum sjavardýrum. Sennilega mun sjór hafa gengið lcngst á land upp, vestan við Járn- gerðarstaði upp með hraunbrúninni upp af Vatnsstæðinu. I3á var sjávargróður 1!4 2 km. frá venjulegu sjávarmáli. Eftir- leikur þessara hamfara var sá, að nokkur 'búðarhús, sem harðast urðu úti, lögðust í eyði eða voru flutt og 'byggð á öruggari hússtæðum. Ég las og lærði bíblíusögurnar með oaeiri virðingu eftir þennan ægiatburð. Jón Tómasson. Leiðrétting. í minningargrein um Jóhönnu Sigurðar- dóttur í síðasta tbl. Faxa misritaðist fæðing- arstaður hennar sem var Stöðulkot í Þykkva- bæ, en ekki Söðulkot. Jóhanna var jarðsungin frá Kieflavíkua’kirkju þann 14. nóvember, ekki 1. nóv. Eru hlutaðeigendur beðnir af- sökunar á þessum mistökum. Þá misritaðist í sama blaði fyrirsögnin á ávarpi því, er sr. Björn Jónsson flutti á Jóla- söngvum kirkjukóra í Keflavíkurkirkju, sunnud. 27. des. Fyrirsögn ávarpsins í blað- inu var: — Oma jörð af jólasöngvum, en átti vitanlega að vera: Óma jörð af jólakvæðum, sem eru upphafsorð kvæðisins, sem prest- urinn hóf mál sitt á og hafði fyrir uppistöðu í ræðu sinni. Er hann einnig beðinn velvirð- ingar á þeim mistökum. I þættinum „Nýjar skýringar með gam- alli mynd“ í sama blaði misritaðist bátsnafn: Sólfari átti að vera Sæfari. Banaslys í Njarðvíkum. Aðfaranótt sunnudagsins 31. janúar varð það sviplega slys á veginum milli Samkomuhúss Njarðvíkur og Keflavíkur, að ungur maður, Ingvar Steinþórsson frá Reykjavík, varð fyrir bifreið og beið bana. Ökumaður bifreiðarinnar reyndist vera 18 ára gamall, réttindalaus og undir áhrifum áfengis. Fullnýtt. Simastöðin í Keflavík hefir nú undanfarið ár verið fullnýtt. Nú munu vera á annað hundrað símabeiðnir óafgreiddar. Fjögur hundruð númera stækkun er fyrir- huguð og er búizt við að hafizt verði handa við stækkunina nú í þessum mánuði., enda meirihluti efnisins til viðbótarinnar kominn á staðinn. Þessar upplýsingar eru fengnar hjá síma- stjóranum í Keflavík, Jóni Tómassyni, sem er bjartsýnn á, að nú með vorinu eða i sumar hafi allir fengið síma, sem þess hafa óskað og að á næstunni ætti ekki að þurfa að vera neinn hörgull á nýjum síma. Eftir sömu heimildum hefir blaðið hlerað, að óvenju mikið hafi verið um bilanir og strengjaslit, vegna óvarfærni við jarðrask og aðrar verklegar framkvæmdir, sem er mjög bagalegt, enda óþarfi, þar sem glöggar teikn- ingar og aðrar upplýsingar eru góðfúslega í té látnar, sé þess óskað, af verktstjóra Land- símans í Keflavík Þá er og full ástæða til að benda síma- notendum á, að við fjölgun sjálfvirku stöðv- anna í landinu, vex hættan á umfram sím- tölum mjög mikið. Þess vegna er áríðandi að fólk tali ekki umfram þarfir og fylgist vcl með tímalengd símtala sinna vð sjálfvirkar stöðvar. Þorramatur í Tjarnarkaffi. Síðan í Þorrabyrjun hefir verið framreiddur þorramatur í Tjarnarkaffi hér í Keflavík á hverju laugardagskvöldi Er þetta svokallað kalt borð, þar sem hægt er að velja um alls konar kræsingar af ís- lenzku góðmeti. Þar er t. d. hangikjöt, svið, sviðapressa, kjöt, margskonar súrmeti, flat- brauð, smjör, salöt og ótal margt fleira lost- ætt og girnilegt. Er maturinn vel og smekk- lega framreiddur og verði mjög í hóf stillt. Frá höfninni. Hið hvimleiða verkfall á bátaflotanum, sem staðið hafði frá áramótum, lauk 3. febrúar með samningagerð, en dagiim áður hafði til- laga sáttasemjara ríkisins verið felld af sjó- mönnum. Verkfall þetta stóð í 34 daga og hefir tví- mælalaust valdið keflvísku atvnnulífi mikið fjárhagslegt tjón, sem bitnar jafnt á allri þj óðarheildinni. Vegna þessa verkfalls hófu nú mjög fáir bátar línuveiðar og þar með er glataður bezti vertíðarfiskurinn. Sá fiskur, sem meira og minna heldur uppi áliti .slenzki'a fiskafurða. Hins vegar hófust netaveiðar almennt miklu fyrr nú, en að undanförnu, en aflinn fram til þessa er mjög lítill, enda ekki kominn venjulegur netaveiðitími og miklar ógæftir hafa svo í þokkabót hamlað róðrum. Húsbyggjendur! Nú er tíminn til aS panta glerið fyrir sumari. LátiS okkur reikna út verðiS. CUDO-umboðið. TRÉSMIÐIR HÉÐINN OG HREINN Sími 2325 — Önnuhúsi — Ytri-Njarðvík. Útgeíandi: Málfundaíélagið Faxi, Keflavík. — Bitstjóri og afgreiðslumaður: Hallgrímur Th. Björnsson. Blaðstjóm: Hallgrimur Th. Bjömsson. Margeir Jónsson, Kristinn Reyr. Gjaldkeri: Guðni Magnússon. Auglýsingastj.: Gunnar Sveinsson. Verð blaðsins i lausasölu krónur 15,00. Alþýðuprentsmiðjan h.f. F A X I — 27

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.