Faxi - 01.06.1965, Blaðsíða 7
Forseti íslands, herra Ásgeir Ás-
geirsson, og fræðslumálastjóri,
Hclgi Elíasson, skoða handa-
vinnusýningu barna í Ytri-
Njarðvík.
varar eindregið við hinni sívaxandi verð-
bólgu, er hefur, auk annara skaðlegra
áhrifa, leitt til aukins reksturskostnaðar
tryggingarfélaga og stóraukinna tjóna-
bóta, sem félögin hafa óhjákvæmilega
orðið að mæta með hækkuðum iðgjöldum.
Fundurinn vekur athygli á þeim geig-
vænlegu fjárupphæðum, sem fara forgörð-
um hér á landi á ári hverju vegna slysa
og annara óhappa. Tjónabætur trygging-
arfélaganna námu á fimmta hundrað
milljóna króna á s. 1. ári og er þá engin
tilraun .gerð til þess að meta til fjár þær
hörmulegu afleiðingar slysa, sem aldrei
verða með peningum bættar. Skorar þvi
fundurinn á landsmenn alla að gera nú
stórátak til þess að draga úr hinum tíðu
slysum og afleiðingum þeirra, en slíkt
átak er jafnframt raunhæfasta skrefið til
þess að lækka iðgjöldin.
Hvetur fundurinn til samstarfs um
þessi mál á sem breiðustum grundvelli
°g lýsir því yfir, að Samvinnutryggingar
munu nú sem fyrr veita hvern þann
stuðning til úrbóta, sem þær megna.“
„Átjándi aðalfundur Samvinnutrygg-
mga haldinn í Keflavík 21. maí 1965 vill
að gefnu tilefni beina þeirri áskorun til
viðkomandi yfirvalda, að þau tilnefni
jafnan fulltrúa frá tryggingarfélögunum
1 þær nefndir, sem þau skipa til þess að
fjalla um öryggis- og umferðarmál."
Eitt hundrað þúsund króna gjöf
til Handritastofnunarinnar
í tilefni af samþykkt danska þjóðþings-
ins á afhendingu íslenzku handritanna
samþykkti fundurinn, að Samvinnutrygg-
ingar afhentu Handritastofnun Islands að
gjöf kr. 100.000, sem varið yrði til áhalda-
kaupa eftir nánara samkomulagi við for-
stöðumenn Handritstofnunarinnar.
Að loknum aðalfundinum hélt stjórnin
fulltrúum og all mörgum gestum af Suð-
urnesjum hóf að Aðalveri í Keflavík.
Stjórn félaganna skipa: Erlendur
Einarsson, formaður, Isleifur Högnason,
Jakob Frímannsson, Karvel Ogmundsson
og Ragnar Guðleifsson.
Framkvæmdarstjóri félaganna er As-
geir Magnússon.
Sjómannodagsræða
Framhald af bls. 81.
útvegsmálum starfa að koma sér upp hag-
fræðistofnun, sem hefði á að skipa færum
mönnum á sviði efnahagsmála. Það er
hugvitið og menntunin sem á að færa
okkur fram til betra lífs en ekki ruglings-
legt mat staðreyndanna, sem of lengi hef-
ur verið haft í öndvegi.
Með hækkandi sól fara sjómenn okkar
út á hið víða haf í ríkara mæli en annan
árstíma. Með þá staðreynd í huga vil ég
leyfa mér að hafa yfir ljóðlínur eftir Valdi-
mar heitinn Snævarr, sem fluttar voru í
lítilli sveitakirkju út á landi fyrir mörg-
um árum í tilefni þessa dags.
Honum fórust orð á þessa leið:
Nú rennur gnoð, er vinnur vél.
I vald Guðs, skip og menn ég fel.
Vér biðjum Hann, þótt bresti orð:
að blessa starf vort hér um borð.
Lát hafið gefa gull í mund
og geym vor, Drottinn, hverja stund.
Ó, lát hvern sjómann landi ná
og leið vor fley um höfin blá.
Þú sér hvert skip, þú sér hvern bát,
á sævarbylgjum hefir gát.
Þú lægir storma, stillir sjá
og stöðvar boðaföllin há.
Vér leggjum bæði líf og önd,
vor ljúfi Drottin, þér í hönd.
Þótt æði stormar, ólgi sær,
þú aldrei bregst oss, Herra kær.
1 þínu skjóli, þinni hlíf
og þinni vernd er starf og líf.
I þínu nafni, þinni trú
með þér á haf vér leggjum nú.
Að svo mæltu þakka ég góða áheyrn.
FAXI — 83