Faxi

Volume

Faxi - 01.06.1965, Page 8

Faxi - 01.06.1965, Page 8
Marta Valgerður Jónsdóttir: Minningar frá Keflavík Um Innri-Njarðvíkurbændur Manntalaárið 1703 bjuggu á Auðnum á Vatnsleysuströnd, Rafn Grímsson og kona hans Guðlaug Jónsdóttir, alsystir Þorkels lögréttumanns í Innri-Njarðvík Jónssonar, föður Jóns Thorkillii. Jón Halldórsson, faðir þeirra systkina, var einnig lögréttu- maður og bjó síðara hluta ævinnar í Innri- Njarðvík, líklega frá 1666, og lézt þar 19. apríl 1694, 71 árs að aldri. Kona hans var Kristín Jakobsdóttir, bónda á Þorkötlu- stöðum í Grindavík Helgasonar, systir Arna lögréttumanns á Stóra-Hólmi í Leiru Jakobssonar. Kona Þorkels lögréttumanns í Innri- Njarðvík var Ljótunn, f. 1668, Sigurðar- dóttir lögréttumanns á Leirá Árnasonar lögmanns Oddssonar biskups í Skálholti Einarssonar. Var hún búsýslukona og hélt öllu til haga, smáu og stóru. Það var haft eftir Ingigerði, móður Hákonar elzta í Kirkjuvogi, að Ljótunn hafi átt svo mikið af stássklæðum, ásamt gulli og silfri, að hún hefði fullvel getað klætt konungsfólk, hefði þó sjálf klæðzt hversdagsfötum. Þorkell lögréttumaður andaðist úr stóru- bólu 1707. Ljótunn, kona hans, bjó eitt- hvað eftir hann í Innri-Njarðvík, en flutt- ist síðar að Kirkjuvogi í Höfnum (Mið- Ásbjörn Ólafsson. Frú Þorbjörg Nikulásdóttir, móðir frú Ing- veldar Jafclsdóttur, var fædd 1812 í Reykja- vík, dóttir hjónanna Nikulásar Erlcndssonar frá Brjámsstöðum á Skciðum og Guðnýar Gunnarsdóttur lögrcttumanns í Götu, Eystri- hreppi, Hafliðasonar prests í Hrcpphólum Bergsveinssonar. Þau hjón bjuggu í Seli við Reykjavík 1816. bæ). Atti hún fjórtán hundruð í þeirri jörð. Ljótunn andaðist 1. jan. 1739. Var stofa hennar lengi síðan kölluð Ljótunnarstofa. Þau Auðnahjón, Guðlaug og Rafn, flutt- ust að Innri-Njarðvík eftir Þorkatli og Ljótunni og bjuggu þar til 1730, eða leng- ur. Dóttir þeirra, er Kristín hét, f. 1704, giftist Sveinbirni Egilssyni frá Miðhúsum í Sandvíkurhreppi og settust þau að búi í Innri-Njarðvík eftir foreldra Kristínar. Bæði létust þau hjón sama árið, Sveinbjörn 10. febr. 1773, en Kristín 13. apríl 1773. Á vist með þeim voru systkini Kristínar, Kolfinna Rafnsdóttir, varð öldruð, mun hafa dáið í Innri-Njarðvík, og Jón Rafns- son, dáinn í maí 1774. Fjórir voru synir þeirra Sveinbjarnar Egilssonar og Kristínar Rafnsdóttur. Egill, Jón, Ásbjörn og Erlendur. Jón kvæntist ekki, var alla ævi í Innri-Njarðvík. Er- lendur mun hafa dáið hálfvaxinn. Egill og Asbjörn urðu báðir bændur í Innri- Njarðvík, hreppstjórar og fyrirsvarsmenn sveitar sinnar og taldir ríkismenn, einkum Egill. Kona hans var Guðrún Oddsdóttir bónda á Þorkötlustöðum í Grindavík Sig- valdasonar. Egill andaðist 25. febr. 1808. Sonur þeirra var svo sent kunnugt er, Sveinbjörn Egilsson skáld og rektor. Guð- rún, ekkja Egils, giftist aftur Ara Jónssyni útvegsbónda og athafnamanni, og bjuggu þau í Innri-Njarðvík í miklu ríkidæmi- Guðrún Oddsdóttir andaðist 26. apríl 1842. Ásbjörn Sveinbjarnarson, bróðir Egils, bjó langan aldur samtímis Agli bróður sínum og síðar Ara í Innri-Njarðvík. Kona hans var Elen, f. 1758, Oddsdóttir frá As- láksstöðum á Vatnsleysuströnd. Börn þeirra voru Olafur, er varð bóndi eftir foreldra sína, Kristín, d. 5. sept. 1838, nær sextug, ógift, barnslaus, Ásta, giftist Hans Hend- rik Jacobsen faktor í Reykjavík og síðar í Keflavík, og Guðlaug, húsfrú í Stapa- koti, var kona Klemenz Sæmundssonar. Ásbjörn Sveinbjarnarson andaðist 20. jan. 1819, en Elen kona hans 10. ág. 1825 í Keflavík hjá Ástu dóttur sinni. Olafur Ásbjarnarson var bóndi í Innri- Njarðvík eftir foreldra sína. Kona hans var Helga Árnadóttir frá Reykhólum Ara- sonar. Börn þeirra: Árni, Ásbjörn, Arin- björn og Guðlaug. Olafur var jafnhliða búskapnum verzlunarstjóri í Keflavík. Hann drukknaði á Grandanum milh Ingveklur Jafctsdóttir. 84 — F A XI

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.