Faxi

Volume

Faxi - 01.06.1965, Page 9

Faxi - 01.06.1965, Page 9
Njarðvíkanna á heimleið uni kvöld úr Keflavík 15. jan. 1839. Helga Árnadóttir, ekkja Olafs, giftist aftur Olafi Björnssyni bónda þar og ólust börn hennar upp hjá þeim. Ásbjörn Olafsson var fæddur 30. ágúst 1832 í Innri-Njarðvík. Hann gerðist bóndi á allri jörðinni 1862 og giftist það sama ár, 1. nóv., Ingveldi Jafetsdóttur gullsmiðs í Reykjavík Einarssonar, bróðurdóttur frú Ingibjargar, konu Jóns forseta Sigurðs- sonar. Þau hjón bjuggu þar rausnar- og mynd- arbúi, höfðu mörg hjú og mikil umsvif og blómgaðist bú þeirra vel bæði til sjós og lands. Þeim hjónum varð ellefu barna auð- ið, en aðeins fjögur þeirra komust til fullorðinsára, þau: 1. Olafur Ásbjarnarson kaupmaður í Keflavík og Reykjavík (Faxi, júní 1958). Kona hans var Vigdís Ketilsdóttir frá Kotvogi í Höfnum, stórgáfuð merkiskona. 2. Helgi, óðalsbóndi í Innri-Njarðvík, einstakt góðmenni og gleðimaður. Hann var kvæntur Jórunni Jónsdóttur frá Hópi í Grindavík, hinni ágætustu konu. Býr hún enn í húsi sínu að Innri-Njarðvík. Vísast hér til greinar í jólablaði Faxa 1964 um frú Jórunni eftir frænda hennar, Jón Tómas- son póst- og símstjóra í Keflavík. Þar er ekkert ofmælt, nema síður sé. Þykir öllum vænt um frú Jórunni, sem til hennar þekkja, og ber það henni fagurt vitni. Helgi Ásbjarnarson andaðist 9. sept. 1953. Var hann mildur fulltrúi þeirrar stór- merku ættar, er setið hafði með mikilli reisn á Innri-Njarðvíkurtorfunni um þrjár aldir. 3. Þorbjörg Ásbjörnsdótlir, giftist Jóni kennara Jónssyni frá Landakoti á Vatns- leysuströnd, síðar kaupmanni í Reykjavík. (Kennaraal I, bls. 372). Frú Þorbjörg var mikill persónuleiki, gáfuð fríðleikskona og framúrskarandi vel virk, enda mikil liannyrða kona. 4. Olafía Ásbjörnsdóttir, giftist Einari Einarssyni kaupmanni í Garðhúsum í Grindavík. Var heimili þeirra nafnfrægt að verðleikum og merkilegt menningar- heimili, er setti fagran svip sinn á heilt byggðarlag. Frú Olafía Ásbjörnsdóttir andaðist 5. maí 1960. Ásbjörn Olafsson lést 5. ágúst 1900 og frú Ingveldur kona hans 6. marz 1904. Arinbjörn Olafsson, albróðir Ásbjarnar 1 Innri-Njarðvík, bjó í Tjarnarkoti í Innri- Ajarðvíkum, mikill merkismaður og bú- höldur. Kona hans var Kristín Björnsdótt- Helgi Ólafsson. ir söðlasmiðs á Skrauthólum á Kjalarnesi Tómassonar Bech og konu hans Margrét- ar Loftsdóttur. Var heimili þeirra með miklum menningar- og myndarbrag. Þar var rekinn búskapur, bæði til sjós og lands. Var sjórinn einkum sóttur af miklum dugnaði, enda mörgu góðu vinnufólki á að skipa. Heyrði ég þeirra hjónanna, frú Kristínar og Arinbjarnar, ævinlega minnzt með virðingu og hlýhug. Um börn þeirra hjóna hef ég áður skrif- að í Faxa, þar eð dætur þeirra tvær voru búsettar í Keflavík, frú Björg Arinbjarn- ardóttir (Faxi, júní 1960) og frú Margrét Arinbjarnardóttir (Faxi, sept, 1960). Onnur börn þeirra Tjarnarkotshjóna voru Ölafur verzlunarstjóri í Vík í Mýr- dal, síðar í Borgarnesi. Hann er faðir Jó- hanns Gunnars bæjarfógeta á Isafirði. Arinbjöm Ólafsson. Jórunn Jónsdóttir. Steinunn, átti Sæmund Sigurðsson frá Barkarstöðum í Flj ótshlíð, og Helga, átti Ogmund, d. 20. marz 1894, Sigurðsson frá Barkarstöðum, bróður Sæmundar. Frú Helga fór til Vesturheims eftir að hún varð ekkja, einnig fóru frú Steinunn og Sæmundur vestur um haf. Arinbjörn Olafsson andaðist 9. des. 1895, en frú Kristín kona hans andaðist 8. nóv. 1899 í Keflavík, jarðsunginn í Innri- Njarð- vík eftir eigin ósk. Guðlaug Olafsdóttir var alsystir bræðr- anna Ásbjarnar og Arinbjarnar. Hún var amma Benedikts Waage, forseta I. S. I., en móðir Guðmundar klæðskera Illugasonar, er nafnkenndur var einkum um Suðurnes og Dali. Frú Guðlaug var tvígift. Þar sem Innri-Njarðvíkurtorfan er nú Kristín Björnsdóttir. F A XI — 85 L

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.