Faxi

Árgangur

Faxi - 01.06.1965, Blaðsíða 12

Faxi - 01.06.1965, Blaðsíða 12
Barnaskólinn í Keflavík. Barnaskólanum í Keflavík var slitið mánudaginn 31. maí. I skólanum voru 775 börn í 31 bekkjardeild. Kennarar voru 19 auk skólastjóra. Barnaprófi luku 113 börn, en 152 börn 7 ára innrituðust nú í vor. A næsta skólaári eru því líkur til að verði um 40 börnum fleira í skólanum. Fyrirbuguð er viðbygging við skólann, enda orðin knýjandi nauðsyn, þar sem ekki eru nema 14 almennar kennslustof- ur í skólahúsunum báðum. Heilsufar var með bezta móti í skól- anum í vetur. Farið var með skólabörnin til að sjá fiskasýninguna í Hafnarfirði í haust, og með börnin úr 6. bekkjum (12 ára börn) í Leikhús Reykjavíkur að s;á Ævintýri á gönguför. Einnig fóru barna- prófs-börnin í ferðalag nú að loknum skólaslitum austur fyrir fjall, um Þing- völl yfir Lingdalsheiði að Laugarvatni og þaðan að Geysi og Skálholti og yfir Hellis- heiði á heimleið. Arshátíð skólans var að þessu sinni hald- in þriðjudag fyrir páska. Þar var til skemmtunar leikrit, fimleikasýning, söng- ur, skrautsýning og dans. Einnig héldu 6. bekkingar tvær bekkjarskemmtanir í vetur. Fjölbreytt skólavinnusýning var í skól- anum laugardag og sunnudag 29. og 30. maí. Var sérstaklega til hennar vandað, enda haldin til heiðurs Jóni Þorkelssyni skólameistara, en minnisvarði hans var afhjúpaður í Innri-Njarðvík með hátíð- legri athöfn hinn 29. maí, sem kunnugt er. Við skólaslitin voru eins og áður mörg verðlaun veitt fyrir góðan námsárangur. Bókabúð Keflavíkur veitti verðlaun fyrir hæstu aðaleinkunn yfir allan skólann. Þau hlaut að þessu sinni Guðrún S. Rósants- dóttir. Séra Björn Jónsson veitti verðlaun fyrir beztu ritgerð á barnaprófi. Þau hlaut Ingibjörg Pálmadóttir. Verðlaun Rotarý- klúbbs Keflavíkur fyrir hæstu einkunnir ásamt ástundun og góðri hegðun hlutu að þessu sinni cftirtaldir nemendur: Stjórn Lionsklúbbs Njarðvíkur afhendir skóiastjóra barna- og unglingaskóla Njarð- víkur sjónprófunar- tækið. Frá v. Haukur Ingvason kaupmaður Þórmar Guðjónsson, Friðrik Valdimarsson og Sigurbjörn Ketils- son skólastjóri. Ljósm.: Heimir Stígss. í 6. bekk Arinbjörn H. Arinb'örnsson, Anna M. Eyjólfsdóttir og Hulda Bjarnadóttir. I 5. bekk Bergþóra Ketilsdóttir og Hildur Agnarsdóttir I 4. bekk Gísli Torfason og Margrét Jónsdóttir. I 3. bekk Guðný Björnsdóttir og Jóhann Garðar Einarsson. I 2. bekk Laufey Waage og Vigdís Karlsdóttir. I 1. bekk Erna Valdís Valdimarsdóttir og Aslaug Sturlungsdóttir. Kveðja tiI Faxa Tulsa 29. maí 1965. Kæri Hallgrímur! Við hjónin þökkum þér kærlega fyrir Faxa blöðin sem við höfum nýlega fengið, það seinna fyrir nokkrum dögum. Við erum ný- flutt í nýja íbúð og hefur verið nóg að starfa, og þar af leiðandi ekki komið því í verk að skrifa fyr. Mig langar að senda þér nokkrar myndir frá Tulsa. Ég vona að þú hafir einhverja ánægju af þeim. Héðan er allt gott að frétta, nema hvað hitinn er stundum of mikill eða það finnst okkur, 36—38 stig C., en þetta er víst byrjun- in á sumrinu, svo er mér sagt, hvað svo sem úr því verður. Kennslan í skólanum hefst Bókabúð Keflavíkur t DAGLEGA f LEIÐINNI Lionsklúbbur Njarðvíkur gefur sjónprófunartæki. Við skólaslit barna- og unglingaskólans í Njarðvík, fimmtudaginn 27. maí s. 1. afhenti stjórn Lionsklúbbs Njarðvíkur skólanum að gjöf sjónprófunartæki af vönduðustu gerð, sem er árangurinn af starfsemi klúbbsins að undanförnu. Við sama tækifæri veitti klúbburinn þrenn verðlaun og viðurkenningu til þeirra nem- enda skólans, er þátt tóku í ritgerðasam- keppni klúbbsins um leiðir til fegrunar byggð- arlagsins. kl. sjö á morgnana og lýkur kl. 1,30 á dag- inn. Náminu er tvískipt í verklegt og bók- legt, 3 tima í hvoru á dag. Héma eru nú við nám 23 íslendingar, þar eru 4 frá Kefla- vík: Magnús Sigtryggsson, Guðlaugur Guð- finnsson, Þórður Sæmundsson og ég. Alls eru útlendingar um 60 frá 18 löndum en nemendur eru um 500 í skólanum. Atvinnu- lífið í borginni snýst aðallega um olíu, en Tulsa er ein helzta olíumiðstöðvarborg 1 Bandaríkjunum. íbúar eru um 375 þúsund eða um helmingi fleiri en allir Islendingar. Ég læt svo myndirnar segja þér frá því sem upp á vantar um borgina, og með kæru þakklæti læt ég svo pennan falla, og við hérna sendum öllum heima á Islandi okkar beztu kveðjur. Þinn einlægur Agnar Br. Sigurvinsson. Eins og frá hefur verið skýrt í blaðinu, stunda margir Keflvíkingar ýmiskonar nam erlendis bæði vestan hafs og austan. Nú fyrir skömmu fóru fjórir ungir menn 'héðan vestur til Bandaríkjanna, til náms 1 flugvélavirkjun. Nú á dögunum barzt mér stutt vinabréf frá einum þessara manna og þó það sé sent mér persónulega, finns mér það einnig mega ná til lesenda blaðsins, þar sem það hefur að færa fréttir af þeim félögum. Að svo búnu birti ég bréfið með beztu sumar- kveðjum héðan að heiman til Agnars, konu hans og annara Keflvíkinga, sem þarna dvelja og kunna að sjá Faxa. 88 — FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.