Faxi

Volume

Faxi - 01.06.1965, Page 20

Faxi - 01.06.1965, Page 20
SAMSÖNGU R Það er gleðilega undravert að Karlakór Keflavíkur skuli vera til og með vaxandi glæsibrag hverju sinni, sem hann lætur til sín heyra, því þar eru menn úr öllum stéttum, sem vinna langan vinnudag og fórna kvöldum sínum og oft vinnu til æf- inga. Nú hefur karlakórnum bæzt liðs- auki, sem eru 24 ungar stúlkur og húsmæð- ur, sem einnig eru störfum hlaðnar, til að mynda hmn fjölmenna samkór, sem nú kom fram í fyrsta skipti. Dugnaði og festu söngstjórans, Herberts Hriberschek Agústs- sonar, er þar vafalaust mikið að þakka. Söngskráin var að þessu sinni mjög vel valin. I fyrri hlutanum sem karlakórinn söng einn, voru eingöngu lög eftir íslenzka höfunda. Einsöngvarar kórsins voru með ágætum. Sveinn Pálsson hefur fallega hljómþýða rödd. Hann söng „Nú andar suðrið“ af skilningi og tilfinningu að því er virðist á hinn eina rétta hátt, með góðri aðstoð kórsins. — Haukur Þórðarson hef- ur mikla og fallega rödd og er í stöðugri framför. Eldri og þekktari kórar væru vel sæmdir af honum sem einsöngvara. Það fer ekki hjá því að raddþjálfun V. Dem- entz setur sinn svip á og hefur borið góð- an árangur, bæði fyrir kórinn í heild og einsöngvarana. Síðari hluti söngskrár var fluttur af blandaða kórnum og hófst á syrpu af lög- um frá Norðurlöndunum sex, í útsetn- ingu söngstjórans. Það er vafalaust rétt, mússik-málið er alþjóðlegt og er skilið jafnt í Kína og á Islandi, en þó hefur hver þjóð sinn sérstaka blæ yfir söng sínum, sem kann að vera erfitt að ná utan land- steina heimalands, en þó hefði verið skemmtilegt að heyra og finna mismun- andi blæ í tónfalli Norðurlandanna í þess- ari syrpu, sem blandaði kórinn flutti að öðlu leyti afburða vel. Á eftir syrpunni voru lög úr óperett- unni „Keisarasonurinn" eftir Lehar, með einsöng Hauks Þórðarsonar. Kom þar sér- staklega vcl fram hnitmiðuð samstilling kórsins; sama má segja um kórinn úr óperettunum „I Lom'bardy“ eftir Verdi. Samsöngnum lauk með amerískri söng- lagasyrpu í útsetningu Hriberschek, sem að vissu leyti reyndi á þolrif kórsins, er hann stóðst fyllilega. Ragnheiður Skúladóttir aðstoðaði með traustum undirleik, sem hvergi brást og Hriberschek er hinn öruggi leiðtogi og allir þræðir liggja um hendur hans. KEFLAVÍK - SUÐURNES FRAMKVÆMUM ALLSKONAR MYNDATÖKUR Á stofu. í heimahúsum. í samkvæmum. Passamyndir. Ökuskírteinismyndir. Eftirtökur á gömlum myndum. Auglýsingamyndir. Pantið í síma 1890 < Ljósmyndastofa Suðurnesja Túngötu 22 — Keflavík — Sími 1890 — Pósthólf 70 €><><><><><><><><><><><><><<><><><><><><><><><><><><><'<><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><>?><><><><><><><><><><><>>& TRYGGINGAR - ÖKUKENNSLA Hefi umboð fyrir hinar ódýru bifreiða- og innbústryggingar Tryggingafélagsins Ábyrgð h.f. o. fl. Veitið athygli! Tryggingafélagið Ábyrgð h.f. veitir góðum ökumönnum 50% afslátt. Er einnig umboðsmaður fyrir Tryggingamiðstöðina h.f. með báta, veiðarfæri og mannatryggingar og fleira. Kenni á Merzetizbenz 190. Hægt að ná til mín allan sólarhringinn í síma Aðalstöðvarinnar, 1515 í Keflavík, eða heima í síma 7011. Vilhjólmur Halldórsson, Brekku. — Garði. >>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>®<>>>®<><><>®<><>><><><><><><><><>> Innlónsdeild kaupfélagsins greiðir yður hæstu fáanlega vexti. Ávaxtið fé yðar hjá oss. Kaupfélag Suðurnesja ><>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>$>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>& Það er vissulega mikill menningarauki vegu og er kórnum þakkað hans mikla og fyrir Keflavíkurbæ að eiga þennan ágæta óeigingjarna starf og óskað allra heilla í kór, sem ber hróður Keflavíkur um víða framtíðinni. — hsj. 96 — F A X I

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.