Faxi

Volume

Faxi - 01.06.1965, Page 21

Faxi - 01.06.1965, Page 21
Hamravík og einnig tvo leigubáta, Baldur EA 12 og Baldvin Þorvaldsson EA 24. Auk þess lögðu ýmsir bátar afla sinn upp hjá frystihúsinu. Framleiðsla frystihússins var mikil á síðast liðnu ári og afkoma þess fremur góð. Teiknuð var og undirbúin mikil viðbótarbygging við frystihúsið og eru fram- kvæmdir hafnar. Mun framkvæmdum þess- um seinka nokkuð vegna hins tilfinnanlega bruna sem átti sér stað tveim dögum fyrir aðalfund og getið var þá í fréttum. Ur aðalstjórn kaupfélagsins áttu að þessu sinni að ganga Hallgrímur Th. Björnsson og Svavar Arnason og voru báðir endurkjörnir. Þriðji varamaður Þórarinn Olafsson, var endurkjörinn, einnig endurskoðandinn, Jón Tómasson, og varaendurskoðandinn, Bjarni F. Halldórsson. Fulltrúar á aðalfund SÍS voru kjörnir: Gunnar Sveinsson, Hallgrímur Th. Björnsson og Ragnar Guðleifsson. í til- efni af 20 ára afmæli félagsins nú í sumar, samþykkti fundurinn einróma fram komna tillögu frá félagsstjórn að stofnaður verði menningarsjóður innan vébanda félagsins með 50 þúsund króna stofntillagi. Á fundinum ríkti almennur áhugi fyrir málefnum félagsins, enda bíða nú mörg og stór verkefni, sem krefjast úrlausnar hið fyrsta. Þrír gamlir sjósóknarar hciðraðir í Keflavík. Sjómannadagshátiðahöldin í Keflavík hóf- ust með skrúðgöngu frá barnaskólanum og inn að höfninni. Þar fór fram guðsþjónusta og var lagður blómsveigur á sjóinn til minningar um drukkna sjómenn. Þá voru heiðraðir þrír gamlir sjógarpar, þeir Olafur Bjarnason, Keflavík, Einar Jóns- son frá Borg í Njarðvíkum og Guðjón Einarsson, Keflavík. Þessir menn hafa allir stundað sjómennsku frá blautu barnsbeini og verið fengsælir og heppnir skipstjórar. Þá fór fram kappróður, þar sem sveit úr Njarðvíkum sigraði, og reipdráttur. Voru sveitirnar sín á hvorri bryggju og lenti sú sveit, sem tapaði í sjónum. Iðnskóla Keflavíkur slitið. Nýlega var Iðnskóla Keflavíkur slitið og var þetta þrítugasta skólaárið, því að skólinn var stofnaður 1935. Á þessu tímabili hefur skólinn útskrifað 230 nemendur í nær öllum nðngreinum. Að þessu sinni voru 81 nemandi við skólann og luku 38 'þeirra fullnaðarprófi. Hæstu einkunn við burtfararpróf hlaut Olaf- ur Þorgils Guðmundsson, málaranemi, 8,89. Hæstu einkunn í framhaldsbekknum hlaut Sigurður V. Egilsson, 9,18. Þorbergur Friðriksson, formaður Iðnaðar- mannafélags Keflavíkur og nágrennis afhenti Þorgils verðlaun frá félaginu og ræddi nokkuð í því sambandi um nauðsyn mennt- unar iðnaðarmanna og gildi skólans í þvi sambandi. Við skólann störfuðu 9 kennarar auk skóla- stjórans Hermanns Eiríkssonar. Iðnskóli Keflavíkur hefur enn ekki sitt eigið húsnæði og háir það nokkuð starfsemi skólans, en eftir því sem skólastjóri ræddi um, er nú unnið að því að bæta úr húsnæðisvandræð- um skólans, því að aðsókn fer vaxandi með hverju ári. Aðalfundur Kaupfclags Suðurnesja. Aðalfundur Kaupfélags Suðurnesja var haldinn í Aðalveri í Keflavík, sunnudaginn 16 júnf. Auk stjórnarinnar, deildarstjórna og endur- skoðenda, voru mættir á fundinum 43 full- trúar frá öllum deildum félagsins. Formaður félagsstjórnar, Hallgrímur Th. Björnsson, setti fundinn og bauð fulltrúa og aðra viðstadda velkomna. I setningarræðu gat formaður þess, að félagið verður 20 ára þann 13. ágúst í sumar. Þorbergur Friðriksson afhendir Ólafi Þ. Guðmundssyni, málaranema verðlaun. Sá þriðji á myndinni er Hermann Eiríksson. Ljósm.: Heimir Stígss. Fundarstjórar voru Guðni Magnússon og Karl Steinar Guðnason, en fundarritarar, Bjarni F. Halldórsson og Sigtryggur Árnason. Formaður flutti skýrslu stjórnarinnar, en kaupfélagsstjóri, Gunnar Sveinsson las og skýrði reikninga félagsins, en þeim hafði verið útbýtt meðal fundarmanna í prentaðri ársskýrslu. Heildarvelta Kaupfélagsins á árinu var kr. 77,246,671,00, en tekjuafgangur kr. 14,046,18 og var þá búið að inna af hendi löglegar af- skriftir. Brúttótekjur af vörusölu urðu 14,18% á móti 13,38% árið á undan. Framkvæmdarstjóri hraðfrystihúss Kaup- félagsins, Benedikt Jónsson, flutti skýrslu um hag og rekstur hússins og þeirrar starf- semi, sem undir það heyrir, en frystihúsið gerði út 2 báta, sem það á, þá Bergvik og Aldraðir sjómenn heiðraðir á sjómanna- daginn. Talið frá vinstri: Guðjón Einarsson, Einar Jónsson frá Borg og Ólafur Bjarnason. Formaður Sj ómannadagsráðs, Jóhannes Jóhannes- son afhendir heiðurs- verðlaunin. Ljósm.: Heimir Stígss. Útgefandi: MálfundafélagiS Faxi, Keflavík. — Ritstjóri og afgrelBslumaBur: Hallgrímur Th. Bjömsson. BlaSstjóm: Hallgrímur Th. Bjömsson. Margeir Jónsson, Kristinn Reyr. Gjaldkeri: Guðni Magnússon. Auglýsingastj.: Gunnar Sveinsson. Verð blaðsins í lausasölu krónur 25,00. Alþýðuprentsmiðjan h.f. Munum þjóðhátíðardaginn. Faxi beinir þeim eindregnu tilmælum til allra borgara Keflavíkur og nágrennis að vera ekki að heiman 17. júní og njóta þar dagsins. — Sjá auglýsingu á bls. 108. F A XI — 97

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.