Faxi

Árgangur

Faxi - 01.04.1966, Blaðsíða 1

Faxi - 01.04.1966, Blaðsíða 1
Apríl-blað 4 XXVI. ÁR 1966 „Vængstýfðir englar" á sviði í Keflavík Hér í Kcflavík og nágrenni hefir um Hmgt skeið verið ríkjandi mikill leiklistar- ahugi. Framan af kom þetta skýrt í ljós, Þegar hin ýmsu félög staðarins héldu árs- liátíðir sínar og sýndu þá gjarnan vel æfða leikþætti, smáa eða stóra, sem vöktu at- hygii og voru samkomugestum til ánægju. kiftir að Ungmennafélagið kom til sög- nnnar og hafði eignast sitt eigið samkomu- hús með sæmilegu leiksviði, færðist nýtt ‘iör í þessa leikstarfsemi. En jafnhliða Ungmennafélaginu æfði barnastúkan Ný- arsstjarnan þar einnig sína ungliða til leiks og urðu margir þeirra síðar í hópi kunnustu leikara landsins. kyrir nokkrum árum stofnuðu Kcfl- víkingar og Njarðvíkingar saman „Leilc- félagið Stakk“, cr sýndi hér nokkur leik- 'it við ágæta dóma. En nú á s. 1. hausti, þegar samkomuhúsið Stapi tók til starfa, urðu slit á þessu samstarfi innan leikfé- lagsins. Njarðvíkingar stofnuðu þá sitt eigið leikfélag, er þeir nefndu „Njarð- víkurleikhúsið", en það frumsýlndi sitt fyrsta leikverk þann 3. febrúar s. 1. Var þar um að ræða gamansöngleikinn „Allra meina bót“ eftir „Patrek og Pál“. Leik- stjóri var Helgi Skúlason, eins og þá var frá skýrt hér í blaðinu. Þegar ljóst var, að Leikfélagið Stakkur átti ekki lengur viðhlítandi starfsgrund- völl, hófst áhugasamt fólk í Keflavík handa um stofnun nýs leikfélags, sem síðar hlaut nafnið „Leikfélag Keflavíkur“. Stjórn félagsins er þannig skipuð: Agúst Jóhannsson formaður, frú Soffía Karlsdóttir varaformaður, Sverrir Jóhanns- son ritari, Lrna Sigurbergsdóttir gjaldkeri og Jónína Kristjánsdóttir meðstjórnandi. Fyrsta verkefni félagsins, leikritið „Vængstýfðir englar“, var frumsýnt fimmtudaginn 24. marz í Félagsbíói í Kcflavík. Leikstjóri var Kristján Jónsson. Lr þetta annað leikritið, sem hann svið- setur hér í Keflavík, hitt var Bör Börsson. Hlutverkaskrá í leikritinu „Vængstýfðir englar“, var sem hér segir: Felix Ducotel kaupmaður, Jón Ríkharðs- son; Emilía Ducotel kona hans, Sesselja Guðmundsdóttir; María Lovísa dóttir þeirra, Hanna María Karlsdótlir; Frú Parole, Guðbjörg Þórhallsdóttir; Jósep (nr. 3011), Atli Hraunfjörð; Júlíus (nr. 6817), Pétur Jóhannsson; Alfrcd (nr. 4707), Þorsteinn Eggertsson; Henri Trochard kaupsýslumaður, Sverrir Jóhannsson; Páll frændi hans, Guðmundur Sigurðsson; Liðsforingi, Magnús B. Jóhannsson. A frumsýningunni var hvert sæti skipað í samkomuhúsinu og leiknum afbragðsvel

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.