Faxi

Árgangur

Faxi - 01.04.1966, Blaðsíða 5

Faxi - 01.04.1966, Blaðsíða 5
GUÐNI MAGNÚSSON: DAGBOKARBROT Árna Pálssonar í Narfakoti í 10. Ibl. Faxa 1960 er grein eftir Ársæl Árnason bóksala, um föður hans, Árna Páls- son, Narfakoti, Innri-Njarðvík. Grein þessi var skrifuð að beiðni ritstjórans, en Ársæll dó nokkrum vikum seinna. Þar er þess getið að Árni hafi skrifað dagbók í nokkur ár, eða frá 1886—1891. Þar sem ég hefi þessa dagbók undir höndum nú um sinn, ásamt fleiri plögg- um eftir Árna og mér þykir líklegt að ein- hverjum kunni að þykja fróðlegt að skyggn- ast 80 ár aftur í tímann, og bera saman ástandið hér um slóðir þá og nú, munu hér og í næstu blöðum verða birtar glefsur úr þessum plöggum. Arni var ættaður undan Eyjafjöllum. Hann flutti að Narfakoti 1880 og giftist þá Sigríði Magnúsdóttur, ættaðri úr Fljótshlíð. Höfðu þau þá búið eitt ár í Leirunni. Arni var alla tíð bláfátækur, enda hlóðst á hann mikil ómegð, þar sem hann eignaðist 12 börn. Tvö dóu ung en 10 komust til full- orðinsára. Urðu sum þeirra þjóðkunn, t. d. Asta málari, Ársæll bóksali, Þórhallur cello- leikari og Magnús listmálari. Þrátt fyrir hina hörðu baráttu hans við að sjá þessu stóra heimili farborða, og forða því frá „sveit“, eins og blöð þessi bera nokk- urn vott um, gaf Árni sér alltaf tíma til að sinna félags- og framfaramálum. Hann var emn helzti forystumaður Njarðvíkinga í fé- lagsmálum á sinni tíð. Sérstaklega helgaði hann krafta sína bindindismálunum, og var hann óþreytandi við að taka á sig ferðalög og hvers konar fyrirhöfn í þeirra þágu. Ýms mál önnur lét hann til sín taka og skrifaði greinar í blöðin um ýms málefni. Arni andaðist árið 1900 aðeins 46 ára gam- all. Ekkjan fluttist þá til Reykjavíkur með barnahópinn og tókst með mkilum dugnaði °g aðstoð eldri barnanna að koma þeim öllum UPP og sum þeirra brutust í að afla sér menntunar. I dagbókinni er allnákvæm veðurlýsing fyrir hvern dag, ennfremur er sagt frá aflabrögð- um. Þessu verður að mestu sleppt hér, en teknir póstar um ýmislegt annað. Dagbókin hefst með yfirliti yfir árið 1885. AriS 1885 hefir verið eitthvert hicS örð t'gasta, er núlifandi kynslóð hér á landi man eftir, hvað alla atvinnuvegi snertir. hyrst var veturinn harður nokkuð, svo heyþrot urðu víða, svo dæmalausir vor- kuldar og gróðurleysi, jörð allstaðar snögg 1 sumar, einkum tún, þar á ofan mikil va.*tutíð, svo hey urðu lítil og víða skemmd. Sömuleiðis kálgarðar ónýtir víðast, — kaup fólks, er fór í sveit óvenju lítið og stuttur vinnutími. — Haustið mjög vætu- samt og fénaður rýr, þó var snjólítið fram undir jól, síðan megnustu harðindi all- staðar er til hefir spurzt. — Aflabrögð voru mjög lítil, einkum hér við Faxaflóa, þó öfluðu nokkrir vel á vetrarvertíðinni í Garðsjónum, einkum Innnesingar, en í sumar voru samþykkt lög um að leggja þar ei framar þorskanet, því það þótti orðið sannreynt, að fiskur gengur ekki hér á grunn, þegar ótakmörkuð netastappa er komin í Garðsjóinn, og hefir það komið mörgum á vonarvöl, einkanlega í þessum hrcppi, því almenningur hér hefir lifað mest á hallærislánum og útlendu gjafafé síðan í sumar. — I sumar og haust aflað- ist dálítið, þó tregt þætti, af mjög smáum fiski, Iýsu, ýsu og þyrsklingi. — Heilsu- far almennings hefir yfir höfuð verið frem- ur gott. — Svo kveðjum vér þetta örðuga ár, og uppbyrjum annað nýtt, og biðjum góðan guð að gefa oss það gott og farsælt í Jesú nafni. Árið 1886. 17. febrúar. ... 1 dag kláraðist síldin, er ég veidtli á næstliðnu vori, hún hefir verið höfð til matar á hverjum degi síðan í miðjum september. 26. febrúar. . . . Nokkur skip reru út í Garðsjó með lóð og færi, fengu aðeins nokkra kola og eitt tvo þyrsklinga. — Fundur haldinn í Brunnastaðaskóla, rætt um fiskverkun, netalínuna, og hreppa- skiptin, ég var á þessum fundi. — 5—11 í hlut í netin. 28. febrúar. Haldinn fundur í Keflavík um fiskverkun. — I dag fannst lík Jóns Pálssonar frá Járngerðastöðum, sem varð úti bér upp í beiði rétt fyrir jólin. — 8. þ. m. andaðist á Stóra-Ármóti jómfrú Guð- rún Jónsdóttir frá Narfakoti, rúml. 20 ára. Hún var hvers manns hugljúfi og sakna hennar flestir, scm henni kynntust.* i 1) 1) Guðrún þessi mun hafa verið dóttir Jóns Magnússonar, sem var sambýlismaður Árna i Narfakoti, en flutti síðar til Reykjavíkur og bjó í Bráðræði, og var síðan kenndur við þann bæ. I. marz. . . . Enginn reri hér í dag, því nú halda margir alveg fiskilaust í Faxaflóa. 8. marz. . . . Jarðað í Njarðvík J. P. (sjá framar), og Sigurbjörg Ogmunds- dóttir, ungbarn frá Tjarnarkoti. — Fréttir að austan: Góð tíð síðan með Góu. Fiski- laust í Vestmitnnaeyjiim síðan á Mið- Þorra, áður allgóður afli þar, nær fiski- laust í Landeyjum, vikuna sem leið afl- aðist hátt á annað hundrað á Bakkanum, tregur seinast, fiskilaust í Þorlákshöfn, tregt í Grindavík. 9. marz. I gær var lagt síldarnet í Kefla- vik, varð ei vart við síld. ... I gær hafði Þórður Guðmúndsson frá Görðunum lagt þorskanet í Garðsjónum, mót gild- andi lögum, — fékk í dag á þriðja hundrað á skip i einni trossu. II. marz. . . . Garðmenn tóku upp þorskanetatrossu með 3—400 af fiski, á Setum, er Innnesingar (G. E. í Nesi) höfðu lagt í gær og aðra frá Þ. G. i Görð- unum með miklum fiski. 5. apríl. 1 dag lögðu menn þorskanelin aftur. Nú fór sýslumaðurinn heim, en hann hefir dvalið hálfan mánuð í Keflavík til að líta eftir að fiskveiðisamþykktinni væri hlýtt og stefndi mörgum, einkum Innnesingum fyrir brot gegn henni. 22. apríl. Sumard. fyrsti. Stormur og oft- ast rigning á sunnan. — Margar franskar skútur hafa hleypt hér inn. — Haldin „tombóla“ í Njarðvík til ágóða fyrir kirkj- una. 1 gær kom fyrsta kaupskip í Kefla- vík, „Ásta“. 8. maí. Tregur fiskur. Margir komu ekki á skiptum. Síldveiði dágóð. Ég lagði síldarnet fyrir síld, sem var að vaða uppi fram í Leir og bafði netið ofansjávar og fékk 560 st. cftir hálftíma. — Þannig hefir síld ekki verið veidd hér fyrr. 31. maí. Síðan um lok hefir verið mjög stirð tíð til landsins, endalausir kuldar, oftast frost um nætur, jörð ekkert grænni nú en þá. Hafís á hverjum firði norðan- lands. 3. júlí. — Nú hefi ég verið 9 daga að mála Njarðvíkurkirkju. — I dag er Ásta Kristín dóttir mín 3ja ára.1) 1) Það er táknrænt, að Árni skuli minnast á Ástu dóttur sína í sömu andránni og hann segist hafa verið að mála kirkjuna. Varla hefir hann grunað það þá, að þessi 3ja ára hnáta ætti eftir að verða fræg viða um lönd, sem fyrsti kvenmálarameistari á Norðurlönd- um, og e. t. v. í heimi. Þegar Keflavíkurkirkja var byggð, árið 1914, málaði Ásta hana. FAXI — 53

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.