Faxi - 01.04.1966, Blaðsíða 4
Kemur áfengisútsala í Keflavík?
í annað sinn með stuttu millibili eiga nú
Keflvikingar að ganga til atkvæða um það,
hvort hér í Keflavik skuli vera vinverzlun
eða ekki. Mun bæjarstjórn hafa ákveðið þetta,
vegna fram komins áskriftalista frá nokkrum
Keflvíkingum, sem áhuga hafa á slíkri verzl-
un hér til að hressa upp á menningarlíf bæj-
arins.
Um þetta er nánar rætt á öðrum stað hér í
blaðinu, en þar sem sömu rök og fyrr mæla
gegn þessari framkvæmd, þykir mér vel
hlýða, að birta hér greinarkorn um málið,
sem rituð var af Guðna Magnússyni í Faxa
rétt fyrir atkvæðagreiðsluna 1958. Fer hún
hér á eftir.
H. Th. B.
Bæjarstjórn Keflavíkur hefir nú ákveðið
að láta fara fram atkvæðagreiðslu um
hvort hér í bænum skuli opnuð áfengis-
útsala. Þar sem þetta er mál, er alla borg-
ara varðar, livort sem þeir telja sig munu
verða viðskiptamenn væntanlegrar útsölu
eða ekki, er rétt að menn geri sér nokkra
grein fyrir, liver áhrif þessi ráðstöfun
kann að hafa.
Því er 'nokkuð á loft haldið, að opnun
áfengisútsölu muni að mestu cða öllu
koma í veg fyrir hina miklu leynivínsölu,
sem hér er rekin.
Vissulega væri mikið gefandi til þess,
að þessa starfsemi væri hægt að uppræta.
En að þessi ráðstöfun dragi til muna úr
leynivínsölu tel ég mcira en vafasamt.
Því til sönnunar má benda á, að leynisala
virðist þrífast allvcl í Reykjavík, þar sem
aðalútsala áfengisverzlunarinnar er, ásamt
útibúi og auk þess vínveitingar á veitinga-
húsum. Enda mun það mála sannast, að
hver seld flaska í vínbúð leiðir af sér aðra
keypta af leynisala að kvöldinu, því að
staðreyndin er, að þegar menn eru búnir
að „kveikja í sér“, langar þá í meira,
þó þeir hafi ætlað að láta eina flösku
duga.
Eg vil benda á, og leggja á það áherzlu,
að aðalatriðið í þessu máli er ekki það,
hvort þessi ráðstöfun cykur cða dregur
úr leynisölu, hcldur hvort hún eykur eða
dregur úr áfengisneyzlu.
Afengisvandamálið er svo alvarlegt, að
enginn má láta sér það í léttu rúmi liggja.
Þeir eru orðnir allmargir, sem látið hafa
lífið hér í Keflavík beint eða óbeint af
völdum áfengisnautnar. Og jafnvel dauð-
inn er ekki það versta. Eyðilagt heimilis-
líf, glæpir hverskonar, eymd og volæði,
misheppnað barnauppeldi, svo nokkuð sé
nefnt af fylgifiskum áfetigisins, er jafnvel
verra en dauðinn sjálfur.
Það má því einskis láta ófreistað til að
draga úr áfengisneyzlunni. En að ætla
sér að gera það með meira víni, er eins
og að ætla sér að slökkva eld, með því
að hella á hann olíu.
Það er að mínu viti engum vafa bundið,
að opnun áfengisútsölu hér mundi auka
áfengisneyzlu að miklum mun, enda hefir
sú orðið raunin á annars staðar. 1 Vest-
mannaeyjum var sett á stofn áfengisút-
sala fyrir nokkrum árum, en afnumin
aftur, þegar sýnt var, að í óefni stefndi.
Hvarvetna hefir raunin orðið sú, að
drykkjuskapur hefir stóraukizt, þar sem
áfengisverzlun hefir verið sett á stofn.
Sumir scgja: Ástandið getur varla
versnað.
I því sambandi er fróðlegt að bera
saman áfengisneyzlu Islendinga og ann-
arra þjóða, þar sem verzlun með áfengi
er „frjálsari“.
Árið 1957 var áfengisneyzlan á Norður-
löndum á livert mannsbarn miðað við
hreinan vínanda, þ. e. 100% áfengi, sem
hér segir:
Svíþjóð ........... 4,1 lítri.
Danmörk ........... 3,2 —
Norcgur ............ 2,3 —
Finnland 1,7 —
ísland 1,69 —
Hjá mörgum þjóðum er áfengisneyzlan
miklu meiri en hjá Norðurlandabúum,
t. d. er drukkið í Bandaríkjunum 70 1. af
vínum á ári á hvert mannsbarn, en þar
er miðað við vín eins og þau koma fyrir,
en ekki 100% vínanda.
Að vísu kemur hér til viðbótar eitthvað
af smygluðum vínum, sem engar skýrslur
ná yfir, svo og heimabrugg, en gera má
ráð fyrir, að það sé svo líka hjá öðrum
þjóðum að einhverju leyti.
Af þessu má sjá, að þó ástandið sé
slæmt hér, er það þó enn verra víða ann-
arsstaðar.
Ef opnuð verður hér vinbúð, verður
sennilega næsta skrefið að veitingahús fái
hér vínveitingaleyfi, en skilyrði fyrir því
er, að áfengisútsala sé í bænum. Ættu
menn að íhuga vandlega, hvort þeir lelji
æskilegt fyrir unga fólkið að fá slíkan
skemmtistað til viðbótar þcim, sem fyrir
eru.
Margt fleira mætti nefna, sem hér er
ekki rúm til. En að þessu athuguðu ætti
að mega vænta þess, að svo margir hafi
fullan skilning á eðli þessa máls, að nægi
til að koma í veg fyrir þessa fyrirætlun,
ef þeir fjölmenna á kjörstað og segja nei.
G. M.
Fœst í APÓTEKI KEFLAVÍKUR
t--------------------------------------—-----------------—---------------—-------------------------------------------------------------------------i
52 — FAXI