Faxi

Árgangur

Faxi - 01.04.1966, Blaðsíða 6

Faxi - 01.04.1966, Blaðsíða 6
9. júlí. — í dag fóru bræður mínir Magn- ús og Kristján í kaupavinnu norður.1) 10. júlí. — Þessa viku liefir allur fjöld- inn farið í sveit héðan frá sjónum, má segja hver, sem komist hefir. Þó liefir ekki fréttst nema illt eitt að norðan og stirt að vestan, allgóð tíð fyrir austan. — Hér eru tún heldur vel sprottin, eftir því, sem vant er. 18. júlí. — I dag var Njarðvíkurkirkja vígð af Þórarni prófasti Böðvarssyni, mesti fjöldi við kirkju, komst naumast inn. — Hér hefir ekki verið mcssað síðan í sept- ember f. á. 31. júlí. — Þennan ntánuð hefir vcrið ágæt tíð, en þó mestu vandræði að frétta úr öllum stöðum sunnanlands. Grasbrest- ur dæmalaus fyrir vestan og norðan, hafís við Hornstrandir 17. þ. m. Kaupfólk að koma úr öllum áttum, talað mjög um bjargarskort hvaðanæfa. — Þá er verzl- unin ekki í góðu standi: Innlend vara: Saltfiskur no. 1: 30 kr., no. 2: 27 kr., smáf. og ýsa: 25 kr., lýsi: 30 kr. m. tn., sund- magi: 90. Utlend vara: Rúgur: 16, rúg- mjöl 18, grjón 24—26, bankabygg 26—28, kaffi 50—60, kandís 32. Það má segja, að hver maður sé kominn í botnlausar skuldir og munar því lítið um nokkur skippund af fiski. — Þó ganga sumir kaupmenn vægðarlaust eftir skuldunum. Útlitið er hið voðalegasta, sem hugsast getur, flestar bjargir bannaðar. — Alþing (aukaþing), sett 20. þ. m. Þjóðkjörnir þingmenn helm- ingur gamlir, helmingur nýir. 8. ágúst. S.d. Messað í Njarðvík. (Síra Arni Þorsteinsson í fyrsta sinn). 22. ágúst. S.d. Messað í Njarðvík, síra Stefán Thorarensen kvaddi söfnuðinn. Hann hefir verið hér prestur í 29 ár. 30. nóvember. — Fórust 2 skip úr Reykja- vík á uppsiglingu, drukknuðu 13, einum bjargað. 27. desember. — Fórst skip með 5 mönn- um frá Kalmanstjörn í Höfnum. Árið 1887. 10. janúar. — Útgerðarbændur hér í hvcrfi héldu fund með sér, til að ræða um að afnema ýsulóðarbrúkun til vors. 1) Bræður Árna, Magnús og Kristján, voru hjá honum fyrstu árin í Narfakoti. Magnús (faðir minn), bjó lengst í Garðbæ í Innri- Njarðvík. Kristján fluttist norður og bjó lengst á Hjalteyri. Fjórði bróðirinn, Einar, sem var elztur, bjó á Fornu-Söndum undir Eyjafjöllum. 11. janúar. — Haldinn fundur í Kefla- vík um að hætta að brúka ýsulóð. 31. janúar. — 3. þ. m. fórust 5 skip með 24 mönnum af Skagaströnd, og 12. þ. m. skip úr Vestmannaeyjum, 4 drukknuðu, 2 varð bjargað, 2 skip úr Bolungarvík með 8 mönnum. 14. febrúar. — Til þessa tíma hefi ég eytt af útlendri vöru aðeins 50 pund af rúgi og 4 pund af kaffi síðan í miðjum október f. á. handa 9—10 manns. 28. febrúar. — Slysfarir: Snemma í þess- um mánuði urðu úti 2 bræður í Þingvalla- sveit, úr Reykjavík. 24. þ. m. fórst skip á Eyrarbakka, 6 menn. — I kvöld andaðist Jón Gunnlaugsson í Stekkjarkoti, hafði legið í vatnssýki síðan í maí f. á. 4. marz. — 1 dag flutti ekkjan Rósa Ás- grímsdóttir frá Stekkjarkoti hingað til veru og Guðbjörg dóttir hennar. 10. marz. — 1 dag kláraði ég síldina, — hafði haft hana einu sinni á dag síðan 23. ágúst og tvisvar á dag í 5 vikur í vetur. I dag kláraði ég haustfiskinn, svo nú er þörf á hjörg úr sjónum. 20. marz. — Fórst fjögra manna far með 3 mönnum tir Varaós, kom innan úr Rvík, hlaðið vörum. Form. Magnús Magnússon múrari. 29. marz. — Bátur úr Keflavík með 3 mönnum fórst undir Hólmsbergi, form. Olafur Þorleifsson snikkari og 4 manna far, með 4 mönnum líka úr Keflavík, form. Andrés Guðmundsson. Ennfremur áttær- ingur frá Minni-Vatnsleysu, 3 menn drukknuðu, 5 varð bjargað. Form. Auð- unn Jónsson. — 4 manna far úr Rvík, 3 drukknuðu, 1 bjargaðist. 30. apríl. — I gær drukknuðu 4 menn úr Sandgerðishverfi, komu úr Keflavík með salt, reru upp á sker. 11. maí. — Það er langt síðan eins rnikið hefir aflast og þessa vertíð hér í suðurhluta Gullbringusýslu. I Grindavík eru hlutir 4—800, í Höfnum 5—800, á Miðnesi 3— 1000, í Garði 3—1000, f Njarðvík 2—800, og líkt í Vogum, Strönd og Vatnsleysu. — Þrátt fyrir allan þennan fisk hefir mér gengið mjög illa, fékk aðeins 200 til hlut- ar, aftur á móti hefi ég talsvert af síld. 4. júní. — I dag flutti Þórður Þórðarson héðan úr Austurbænum, kominn er aftur Olafur Magnússon frá Smiðshúsum.1) 23. júní. — Haldið uppboð í Tjarnarkoti á eigum Bjarna sál. Eg keypti þar 6 manna far gamalt fyrir 10 kr. 1) Ólafur var faðir Alberts Ólafssonar og þeirra systkina. 31. ágúst. — Útaf þeim margvíslcgu vandræðum sem undanfarandi aflaleysisár bafa komið mér í, og með því að kaup- menn hafa gengið hart eftir skuldunum, neyddist ég til að framselja sýslumanni bú mitt til skiptameðferðar sem gjald- þrota, og var það skrifað upp í dag. íbúð- arhúsið, sem kostaði mig fyrir 4 árum kr. 2.248,77, var nú virt á 700 kr. 5. nóvember. — I dag var íbúðarhús mitt selt við opinhert uppboð á 305 kr. 11. nóvember. — Héraðsfundur í Hafn- arfirði um afnám ýsulóðar, frumvarp þar að lútandi féll. 5. desember. — Maður varð úti, Þor- steinn Jónsson frá Stafnesi, á leið frá Keflavík. 19. desember. — Stofnuð Good-Templ- aradeild, „Hófsemdin" hér í Innrahverfi, tala félagsmanna 23, þar með við 3 bræður. 23. descmber. Fyrsti Good-Templar fundtir hér í Narfakoti, 5 nýir bættust við, allir 28 á fundi. 31. desember. — Á uppsiglingu fórust 2 skip úr Keflavík, form. Pétur Helgason og Pétur Sveinsson, sá fyrri með 5 á, hinn 6 og drukknuðu allir. Hafa þannig drukkn- að 18 menn úr Keflavík á þessu ári. Árið 1888. 2. janúar. — Goddtemplarafundur í Narfakoti, 4 gengu í félagið, 28 á fundi af 32. 4. janúar. Aukafundur í „Hófsemdinni". 19. janúar. — Séra Oddur V. Gíslason á Stað hélt fyrirlestur í Njarðvík um ráð til að afstýra skipstöpum hér við land. Margir skrifuðu undir að hafa „bárufleyg" með lýsi í skipi sínu, í hvert sinn, er á sjó væri farið, sömuleiðis þegar því yrði við komið að hafa sjó í boldangspokum til seglfestu í stað grjótbarlestar, sem flest- um virðast margir annmarkar við. 22. janúar. — 5. fundur í „Hófsemd- inni“. Að loknum fundi var haldin „tom- bóla“ til að geta stofnað unglingastúku. 1. apríl. (Páskadagur). — Eftir Good- templarafund las ég upp hugvekju til al- mennings tim styrktarsjóð handa ekkjum og munaðarleysingjum, er stóð í 11., 12. og 13. thl. Þjóðólfs, 1885. Fjöldi áheyrenda. 28. apríl. — Drukknuðu 3 menn af báti frá Vatnsleysu, — voru að taka upp grá- sleppunet. Framhald í næsta hlaði. 54 — FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.