Faxi

Volume

Faxi - 01.01.1968, Page 1

Faxi - 01.01.1968, Page 1
ofo Járngerðarstaðir Jólablað Faxa hefur ekki alveg farið á mis við glettni prentsmiðjupúkans. Að jafnaði er ekki talin ástæða til að angrast út af slíku, en þar sem mér er kunnugt um að margir varðveita blaðið, enda all fýsilegt til fróðleiks, má ætla því lengri lífdaga. Af framangreindum ástæðum vil ég ekki láta hjá líða að leiðrétta nafna- brengl í téðu jólablaði, svo komandi kyn- slóðir verði ekki rangt uppfræddar um höfuðból í Grindavík, við lestur þessa jóla- blaðs. Myndin, sem þar er merkt Járn- gerðarstaðahverfi er af Þorkötlustöðum. Járngerðarstaðir eru aftur á móti það, sem undir stendur Þorkötlustaðir. Báðar eru þessar myndir teknar á síðustu árum, svo er og um aðrar myndir, er fylgja ágætri grein séra Gísla Brynjólfssonar — Fram af Grindavíkurslóð. — Séra Gísla ber að þakka fyrir hans góðu viðleitni við að rifja upp og endurnýja þekkingu á okkar gamla og góða byggðarlagi og íbúum þess. Við þurfum ekki að fá roða í kinn, 2708511 rSLAHDS þótt í slíkri upprifjun bregði fyrir dapur- legum myndum, gerðum í fávísi af heims- hornaflökkurum á borð við Mackenzie, sem gerir erfið og frumstæð lífskjör undir- okaðrar þjóðar að söluvarningi á bóka- torgi auðugra og gírugra nýlendubrask- ara. Hefði hann barizt við Tyrki við hlið Grindvíkinga eða staðið með þeim í fjöru- borði í fárviðri og hafróti og gripið skip- brotsmenn (oft landa lians) úr heljar- greipum Ægis og teflt þar lífi og limum Framh. á bls 11.

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.