Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.01.1968, Qupperneq 4

Faxi - 01.01.1968, Qupperneq 4
allt undirlendið út á Skagatá, með blátt hafið umhverfis, blasti við, en Utskála bar hæst og svo fagurlega við strönd og haf, hafði ég orð á því við frú Steinunni hve mér þætti fallegt á Utskálum. Hún leit til mín með angurblíðu brosi og sagði: „Það þykir mér líka og þar voru önnur foreldrahús mín.“ Fann ég að í þessum orðum lá sagan með gleði, vonir, söknuð og harma. Svo komum við í áfangastað að Utskál- um og var þar tekið tveim höndum af séra Kristni Daníelssyni og börnum hans. Aður en við gengum í kirkju fengum við brúðhjónin að klæða okkur um og snyrta. Þegar ég kom fram í setustofuna, klædd peysufötum, gekk frú Steinunn á móti mér og sagði: „Ætlið þér að vera svona búin góða mín?“ Eg sagði sem var, að það ætlaði ég og frú Steinunn svaraði: „Æ, hvað ég vildi að ég hefði vitað um brúðkaupið áður en ég fór að heiman, ég skildi hafa komið með skautbúninginn minn. Mér hefði verið það mikil ánægja að klæða yður í hann og sjá yður bera hann í blessaðri kirkjunni okkar.“ Hún sagði þetta svo innilega eins og hún væri nákominn ættingi minn eða vin- ur, og þar sem við stóðum saman andar- tak fann ég göfuga sál hennar umvefja mig — barnið — og bera mig á örmum bænarinnar upp í hæstu hæðir. Af allri persónu heanar skein Ijómi friðar og mildi. Er ég dreg fram úr hugskoti mínu minninguna um þessa einstæðu brúð- kaupsgjöí, eygi ég um leið konuna, er skáldið kvað um: „Fágæt perla við flæðarmál fögur og undra skær.“ Nýtt hefti af „Sveitarstjórnmál“. Sveitarstjórnarmál, 5. hefti ’67 flytur m. a. erindi eftir dr. Gísla Blöndal, hagsýslustjóra ríkisins, „Tekjustofnar sveitarfélaga og mark- mið opinberrar efnahagsstarfsemi, sem flutt var á landsþingi Sambands íslenzkra sveitar- félaga í byrjun septembermánaðar s. 1. í heftinu er myndskreytt frásögn af lands- þinginu og birtar ályktanir, sem það gerði. — Magnús H. Magnússon, bæjarstjóri, Vest- mannaeyjum, segir frá kynnisför til Bret- lands. .Sagt er frá samræmdri byggingar- samþykkt fyrir skipulagsskylda staði og birtar fréttir frá sveitarstjórnum. Forustu- grein er helguð Jónasi Guðmundssyni, sem kjörinn var heiðursfélagi sambandsins á landsþinginu, er hann lét af starfi sem for- maður sambandsins. Tímaritsheftinu fylgir prentuð skýrsla um störf Sambands íslenzkra sveitarfélaga árin 1963—1967, sem lögð var fram á landsþingi sambandsins. C>C>00C<><><>O0<>0C><>0<<>0<>«><í><c^>OC<>OC'><í><&C><><í>00000<>0<c>0<>00«<><5>«><><!>0<c>00<>0^C><í>0C- SJOUATRYGGT IRUELTRYGGT SÍM111700 ■njuii Umboðið í KefBavík: Steinunn Þorsteinsdóttir Vatnsnesvegi 21. — Sími 2068. I I * s x 4 — F A X I

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.