Faxi - 01.01.1971, Síða 1
OTO
Fyrsti vélbáturinn í Sandgerði
Forsíðumyndin að þessu sinni er af
fyrsta vélbátnum, sem gerður var út frá
Sandgerði, árið 1907.
Myndin er af málverki, sem Aki Gránz
gerði eftir fyrirsögn vélstjóra bátsins, Olav
Olsen. Málverkið, sem er í eigu Miðnes-
hrepps, er merkur þáttur minja úr at-
vinnusögu Suðurnesja.
Þessi mynd ætti að vera hvatning til
þess að gerðar séu fleiri slíkar myndir,
sem tengdar eru sögu byggðarlaganna hér
syðra.
Það má óhætt fullyrða, að vel gerðar
myndir eru sjálfri Sögunni í engu ógagn-
legri en hið ritaða orð og ber því að varð-
veita þær, séu þær til. En finnist engar
sltkar myndir, er sögulegum tilgangi þjóni,
að þá sé leitast við, eins og hér hefir gert
verið, að fá tiltæka listamenn til að gera
sem nákvæmastar myndir eftir minni
hinna gömlu manna, sem bezt kunna skil
á atvinnuháttum liðins tíma og sjálfir
störfuðu við þau atvinnutæki, sem þá voru
í notkun, en heyra nú fortíðinni til. Er
myndin hér að ofan gott dæmi um það,
hvað hægt er að gera í þessum efnum,
ef trútt minni og listrænir hæfileikar háld-
ast í hendur.
Það mun hafa verið formaður Iðnaðar-
mannafélagsins, Eyþór Þórðarson, sem
átti frumkvæðið að því að þessi sérstæða
mynd úr atvinnusögunni var gerð.
Á árshátíð Iðnaðarmannafélags Suður-
nesja, þann 6. nóvember s. 1., minntist
hann Olav Olsens og hins merka þáttar
atvinnulífsins hér, — upphafs vélbátaút-
gerðar í Sandgerði.
Hallgrímur Th. Björnsson.