Faxi - 01.01.1971, Qupperneq 5
Guðjón Kíemenzson
Guðjón Klemenzson.
Þann 4. janúar s. 1. varð Guðjón Klem-
enzson læknir sextíu ára.
I önn og erli áramótanna mun afinælið
hafa farið fram hjá ýmsum vinum Guð-
jóns og kunningjum, sem gjarnan hefðu
viljað eiga þess kost að taka í hönd hans
og samgleðjast honum og fjölskvldunni
á þessum merkis- og heiðursdegi hins mæta
manns og hugþekka samborgara.
Guðjón er fæddur á Alftanesi. Foreldrar
hans voru Auðbjörg Jónsdóttir og Klem-
enz Jónsson kennari og skólastjóri.
Guðjón hóf nám við Menntaskólann á
Akureyri 1930, en hvarf frá námi um
sinn sákir heilsubrests. Stúdentsprófi lauk
hann síðar við Menntaskólann í Reykja-
vík og hóf þá læknanám við háskóla Is-
lands.
Að námi Idknu hér heima hvarf hann
til framhaldsnáms við Med'ical College of
Virginia Hosp. í Richmond, Vancouver.
Kom Guðjón þá heim og hóf læknisstörf,
starfaði við sjúkrahúsið á Akureyri, var
um tíma læknir hér í Keflavík en gerðist
þá héraðslæknir í Skagafirði með búsetu
á Hofsósi, en þar í héraði starfaði hann
við miklar vinsældir til ársins 1954, er
hann á ný fluttist hingað suður og hefir
verið hér starfandi læknir síðan.
Guðjón er bæði ósérhlífinn og harðdug-
legur læknir, heppinn og hollráður. Á
það reyndi mjög á lækmsárum hans
nyrðra, eftir því sem mér er tjáð af kunn-
ugum, enda voru þar miklar vegalengdir
og oft erfiðar samgöngur, þegar veðra-
r læknir, sextugur
hamur vetrarins og snjóþyngsli réðu þar
ríkjum. Við slíkar aðstæður mun dugn-
aður og hjálpfýsi Guðjóns hafa aflað hon-
um margra og góðra vina, og hafa þeir
hæfileikar leitt til sömu útkomu um Suð-
urnes. Vinsældir hans hér eru bæði miklar
og verðskuldaðar.
Eg er einn þeirra mörgu, sem afmælis-
dagur læknisins fór fram hjá og því flyt
ég honum nú síðbornar afmæliskveðjur
og hlýjar framtíðaróskir okkar hjónanna.
Hallgr. Th. Björnsson.
Veiðiferð
Eftir góðan drauma dúr,
drengir fóru í veiðitúr.
Kvöddu sínar frjálsu frúr.
Ferð þeir hófu bænum úr.
Keyrðu bíl um leiðir lands
'langa vegi, ekkert stanz,
styggðist allur fugla fans,
fjörugan við hjóladans.
Svifu þeir um sanda mels
sveipaðir geislum fagrahvels.
Vissu ei af angri éls,
austur í sýsílu Skaftafells.
Sér til arðs og unaðar
áarsprænu fundu þar.
Fjöldi þar af fiskum var,
fóru að hreifast stángirnar.
Vilja allir veiða lax
verða helzt að fá hann strax.
Eftir ferða brölt og bax,
bíða þreyttir næsta dags.
Þegar sólin signir frón
sveipar geislum vatnalón,
röskir drengir ræsa sjón,
reyna flugu, maðk og spón.
Þarna fagur fiskur tók,
festi sig á öngulkrók.
Mannsins hyggja mjög er klók,
mikla veiðistöng hann skók.
Laxa veiddu, tugi tvo,
tóku nú að hreinsa og þvo.
Afflann lögðu í skottið sko.
Skjótt ti'l náða gengu svo.
Ollum gleymdu þrautum þar,
þessir góðu félagar.
Margt þar gott á góma bar,
gripu oft til stökunnar.
Ágúst L. Pétursson.
Loks var nóttin liðin öll
ljómar sól um grænan völ'l.
Skilja þeir við gljúfra gjóll
og glæsilega veiði höll.
Eftir dýrðlegt veiði vés
viku inní bíl til hlés.
Hollur með þeim byrinn blés
beindi för á Reykjanes.
Greiddist ferðin gæfurík,
gleðilegu sporti lík.
Hratt þeir keyrðu hjóla tík,
heim í gömlu Keflavík.
Ágúst Líndal Pétursson.
Leiðrétting.
I síðasta tbl. Faxa — jólablaðinu, þar sem
sagt er frá 9. þingi Landssambandsins gegn
áfcngisbölinu, slæddist inn ein meinleg villa,
í niðurlagi greinarinnar, að formaður Sam-
takanna er nefndur Páll V. Líndal, en á að
vera Páll V. Daníelsson, eins og raunar ljóst
má vera og fram kemur á öðrum stað í téðri
frétt.
Eru hlutaðeigendur beðnir velvirðingar á
þessari prentvillu.
FAXI — 5