Faxi - 01.01.1971, Síða 8
Frá nýliðnum jólum
Nú um s. 1. jól léku veðurguðirnir við
okkur Islendinga eins og bezt mátti verða.
Stillur og hlýviðri héldust í hendur allan
síðari hluta desembermánaðar og veðr-
áttan var eins og á gróandi vori eða aflíð-
andi sumri.
Verður nú gecið þess helzta sem gerðist
fyrir og eftir hátíðarnar hér í Keflavík og
nágrenni.
Sunnudaginn 20. desember voru tendruð
ljós á gríðarmiklu jólatré á auða svæðinu
sunnan Tjarnargötu, gegnt skrúðgarðin-
um í Keflavík. Var tré þetta gjöf frá
Kristiansand í Noregi, sem er vinabær
Keflavíkur. Kveikt var á trénu við hátíð-
lega athöfn, þar sem Lúðrasveit Kefla-
víkur lék nokkur lög. Fyrsti sendiráðsrit-
ari norska sendiráðsins á íslandi, Lars
Langöker, flutti stutt ávarp, um leið og
hann afhenti tréð, en forseti bæjarstjórnar
Keflavíkur, Tómas Tómasson, þakkaði
hina góðu og fallegu gjöf, sem var til hins
mesta yndisauka hér um hátíðina. Annars
var Keflavíkurbær fagurlega skreyttur nú
sem löngum áður. Stór og ljósum prýdd
jólatré höfðu verið sett upp framan við
ýmsar opinberar byggingar staðarins, t. d.
sjúkrahúsið og eliiheimilið, símstöðvar-
turninn var ljósum prýddur að vanda,
auk þess sem fjölmargir íbúar Keflavíkur
höfðu skreytt garða sína og glugga marg-
l'itum ljósasamstæðum.
Messur og kirkjusókn.
Kirkjusókn í Keflavíkurprestakalli var
ágæt nú um hátíðarnar, að sögn sóknar-
prestsins, sr. Björns Jónssonar, en hann
telur hana fara vaxandi með ári hverju.
Eru þetta ánægjulegar fréttir, einkum
þó þegar þess er gætt, að auk þeirra, sem
kirkjur sæ’kja, eru fjölmargir, er að stað-
aldri hlýða á útvarps- og sjónvarpsmessur
í heimahúsum, sem oftast ber upp á sama
tíma og guðsþjónustuhald kirknanna, t.
d. á öllum stórhátíðum ársins.
Jólasöngvar í Keflavíkurkirkju.
Þenna sama dag, 20. desember, voru
haldnir jólasöngvar í Keflavíkurkirkju,
þar sem saman sungu þrír kórar kirkj-
unnar, þ. e. aðálsöngkór Keflavíkur-
kirkju, Æskulýðskór kirkjunnar og barna-
kórinn. Auk þess söng þar Karlakór Kefla-
víkur og tveir kórar af Keflavíkurflug-
vel'ii.
A þessum hljómleikum söng Haukur
Þórðarson einsöng, Brynjar Gunnarsson
frá Hafnarfirði lék á trompet og æsku-
lýðskórinn og trompetlei'karinn framfluttu
jólasöng eftir Siguróla Geirsson organ-
ista og stjórnanda æskulýðs'kórsins við
mi'kla hrifnin/gu kirkjugesta. Ritninga-
lestur á þessum jólasöngvum önnuðust
fimm stúlkur úr gagnfræðaskólanum.
Aramótaskemmtanir
voru haldnar í samkomuhúsunum, bæði
hér í Keflavík og Njarðvíkum og fóru fram
með líkum hætti og undanfarin ár.
Eins og frá er skýrt á öðrum stað hér í
blaðinu, var tíðin einkar hagstæð um hátíð-
arnar. Áramótabrennur voru leyfðar 11 hér
í Keflavík, en munu hafa verið eitthvað fleiri.
Tókst hið bezta til með þessar brennur og
voru margar þeirra til verulege yndisauka
fyrir bæjarbúa, sem þetta kvöld voru mikið
úti við. sakir veðurblíðunnar.
Ekki hafa blaðinu borizt fréttir af slysum
þetta kvöld eða öðrum teljandi óhöppum og
mtm óhætt að fullyrða, að þessi áramót hafi
í heild farið friðsamlega fram hér í Keflavík
og nágrenng sem ætti öllum að vera fagn-
aðarefni.
H. Th. B.
F A X I
óskar lesendum sínum og
öðrum velunnurum
gleðilegs nýs árs.