Faxi

Volume

Faxi - 01.08.1977, Page 2

Faxi - 01.08.1977, Page 2
GRINDAVÍK Svavar Árnason LANDKOSTIR RÝRIR EN STUTT Á FENG- SÆL FISKIMIÐ Alþingi veitti Grindavík kaupstaðar- réttindi með lögum nr. 18, 10. apríl 1974. Grindavíkurkaupstaður er því með allra yngstu kaupstöðum lands- ins. Saga hans er að vonum ærið stutt og naumast annálsverð enn sem komið er, en Grindavíkurhreppur, sem er eðlilegur undanfari kaupstaðarins, á sér aftur á móti langa og að ýmsu leyti merka sögu, sem rekja má allt til landnámsaldar. Þess er þó enginn kostur að rekja þá sögu í stuttu máli, aðeins skal lauslega minnst á minnis- verða atburði og þá ekki síður þá atburði, sem minni eftirtekt hafa vakið í gegnum tíðina. Um það hvernig Grindavík byggð- ist segir svo frá í Landnámabók: „Maður hét Hrólfur höggvandi. Hann bjó á Norðmæri, þar hét Moldatún. Hans synir voru þeir Vémundur og Molda-Gnúpur. Þeir voru vigamenn miklir og járnsmiðir. Vémundur kvað þetta, er hann var í smiðju: Ek bar einn af ellifu banaorð. Blástu meir. Gnúpur fór til íslands fyrir víga sakir þeirra bræðra og nam land milli Kúðafljóts og Eyjarár og Álftaver allt. Þar var þá vatn mikið og álftveiðar á. Molda-Gnúpur seldi mörgum mönnum af landnámi sínu, og gerðist þar fjölbyggt, áður jarðeldur rann þar ofan, en þá flýðu þeir vestur til Höfðabrekku og gerðu þar tjaldbúðir, er heitir á Tjaldavelli. En Vémundur, sonur Sigmundar kleykis, leyfði þeim eigi þar vist. Þá fóru þeir í Hrossagarð og gerðu þar skála og sátu þar um veturinn, og gerðist þar ófriður með þeim og vígfar. En um vorið eftir fóru þeir Molda-Gnúpur vestur í Grinda- vík og staðfestist þar. Þeir höfðu fátt kvikfjár. Þeir voru þá fulltíða synir Molda-Gnúps, Björn og Gnúpur, Þorsteinn hrungnir og Þórðu leggjaldi. HRAUSTIR MENN OG VÍGREIFIR VÍKINGAR Björn dreymdi um nótt, að bergbúi kæmi að honum og bauð að gera félag við hann, hann þóttist játa því. Eftir það kom hafur til geita hans, og tímkaðist þá svo skjótt fé hans, að hann varð skjótt vellauðugur. Síðan var hann Hafur-Björn kallaður. Það sáu ófreskir menn, að landvættir fylgdu Hafur-Birni til þings, en þeim Þorsteini og Þórði til veiða og fiskjar. Af þessari lýsingu er bersýnilegt, að þeir sem námu land í Grindavík voru hraustir menn og vígreifir víkingar, sem létu sér ekki allt fyrir brjósti brenna svo sem kviðlingur Vémundar ber vott um. Það er víst að Land- námsmennirnir hafa frá upphafi byggðar í Grindavík stundað jöfnum höndum landbúnað og fiskveiðar og farnast vel, enda til þess notið full- tingis landvættanna eftir því sem sag- an segir. Landafræðin kenndi okkur að Grindavík væri lítið og afskekkt sjáv- arþorp á sunnanverðum Reykjanes- skaganum, umkringt hraunum og langt frá öðrum byggðum. Landkostir rýrir en stutt á fangsæl fiskimið. Út- hafsaldan, ferleg og há, komin um óravegu sunnan úr höfum, brotnar hér viö ströndina með háreisti og gný. Af því leiðir að Grindavík hefur ávallt verið talin brimveiðistöð. SKIPSTRÖND OG BJÖRGUNARAFREK Strandlengjan fyrir landi Grinda- víkur nær frá Valahnúk á Reykjanesi, eða nánar tiltekið frá miðri Vala- hnúkamöl og austur að Seljabót, en þar tekur við Selvogur í Árnessýslu. — Á þessari strönd hefur mörg harm- sagan gerst. Guðstéinn Einarsson hreppstjóri hefur í ágætri grein í bók- inni Frá Suðurnesjum, skráð örnefnin og um leið fléttað inn í frásögnina viðburðaríkum atburðum af skips- ströndum og björgunarafrekum, sem unnin hafa verið á þessari strand- lengju, sem hann telur vera um 70 til 80 km. langa. Fjallahringur upp til landsins um- lykur Grindavík og gefur henni hlý- legt svipmót. Fjöllin eru fremur lág, en Þorbjörn er þeirra nálægastur byggðinni og nýtur mestrar virðingar innfæddra Grindvíkinga, þótt hann sé ekki nema 243 metrar á hæð. Þar skammt frá er Hagafell með Gálga- klettum og síðan kemur Svartsengi, sem nú er þekkt vegna háhitans, sem er á því svæði, og nú er virkjaður af Hitaveitu Suðurnesja í þágu íbúa á Suðurnesjum. ÚTILEGUMENN HENGDIR í GÁLGAKLETTUM Þar sem fjallið Þorbjörn rís upp úr hraunflákanum í allri sinni tign með klofinn toppin og myndar gjá, sem heitir Þjófagjá, þar eiga útilegumenn endur fyrir löngu að hafa átt skjól. Þjóðsagan segir að þeir hafi um síðir FAXI — 2

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.