Faxi - 01.08.1977, Page 4
Fermingarbörn í Útskálakirkju, árið 1957 ásamt sóknarprestinum, síra Guðmundi
Guðmundssyni.
Aftari röð frá vinstri. Davíð Eyrbekk, Ólafur Torfason, Þorvaldur J. Markússon,
Guðmundur Garðarsson, Ásgeir Hjálmarsson, Baldur Konráðsson, Þorsteinn Erlingsson,
Ólafur Þórðarson, síra Guðmundur Guðmundsson.
Fremri röð: Sigurbjörg Bjarnadóttir, Kristjana H. Kjartansdóttir, Dís Óskarsdóttir,
Sigríður Páls, Soffía Ólafsdóttir og Kristjana Ingvarsdóttir.
Á myndina vantar Hermann Bragason, Jónatan Stefánsson, Guðberg Guðjónsson og
Helgu Jónínu Walhs.
Þessi fríði hópur hélt upp á 20 ára fermingarafmæli með því að hlýða á messu hjá síra
Guðmundi Guðmundssyni, á Útskálum, sem fermdi þau fyrir tveimur áratugum. Síra
Guðmundur flutti sömu ræðuna og á fermingardaginn. Fremur mun óvenjulegt að fólk
haldi upp á fermingarafmælin á þennan hátt og kannski enn fátíðara að kirkjum séu færðar
gjafir af því tilefni, en fermingarbörnin — nú fulltíða fólk, — gáfu Útskálakirkju,
sumarhökul, rikkilín og stól.
LJÓSM: Solveig Þórðardóttir.
LOKSINS:
nýtt og betra,
r
j dtopinn
MÁLNINGARVÖRUR - VEGGFÓDUR - GÓLFDÚKAR - GÓLFTEPPI MÁLNINGARVERZLUN - HAFNARGÖTU 80 - KEFLAVÍK - SÍMI 2652
«sr\r>r^'rr\rv^rvrrvr\rvr^'r^vrvrvr*^rvr<r\r\rr<r\r'^r\r\rr\^rsrrvrr\rr\rr\r% \
FAXI — 4