Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1980, Page 23

Faxi - 01.12.1980, Page 23
Páll S. Pálsson, hæstaréttarlögmaður Kennari í Keflavík fyrir 40 árum Prúöur sat á palli hann Palli kennari hann Ijómar likt og ðtta- línubrennari... (Úr Ketlavikurreviu 1940) Þegar ég sótti um lausa kenn- arastööu í Keflavík sumarið 1940, en ég hafði veturinn áður verið kennari í þorpinu i Viðey og þar áður 2 vetur við Mýrar- húsaskóla á Seltjarnarnesi, þá fannst mér ég koma i nýjan heim. Ég var alinn upp fyrir norðan í hæglátum mótbyr kreppuáranna, þarsemtíminntil sveita stóð næstum kyrr, svo að LÍFEYRISSJÓÐUR Framh. af bls. 247 hafa skrifstofur og umboðs- menn víða um land. Gæti þá "báknið“ orðið nokkuð viðamikið. Þá segja menn, að það væri eðlilegast að sameina þetta kerfi Tryggingastofnun ríkisins, og nokkuð er til í því. En væri slíkt kerfi tekið upp og iðgjöld innheimt í svipuðu formi og nú er gert, þá er hætt við að mörgum myndi þegar stundir líöa þykja drjúgur skildingur falla frá heimabyggðum til ríkisins. Skildingur sem mætti nýta til þess að létta undir meö hinum öldruöu, t.d. með byggingu elliheimila í hinum ýmsu formum. Hitt er svo annað, að hér þarf að sjálfsögðu ýmsu að breyta. Margir lífeyrissjóðir eru svo fámennir, að engin von er til þess að þeir geti sinnt hlutverki sinu sem æskilegt væri. Hér þarf því að setja löggjöf um lífeyris- sjóðina í landinu, sem markast af því sjónarmiði, sem er þeim hagkvæmast, er sjóðanna eiga aö njóta. Greininni fylgja nokkrar tölu- legar upplýsingar um starfsemi lífeyrissjóðsins fyrstu 10 árin, 1970-1979. Tekjurnar eru á þessu tímabili rúmlega 2,6 mill- jarðar króna. Greiddur lifeyrir á sama tímabili er kr. 258 milljónir. En eins og sjá má hefur hann hækkað úr 0,8% af iögjaldatekj- um fyrstu fjögur árin í 22,7% af iögjöldum síðustu þrjú árin. Að liðnu árinu 1984 kemur í hlut lífeyrissjóðsins að taka við hlutverki umsjónamefndar eftlr- launa. Bætast þar við lífeyris- greiðslur, sem á síðasta ári námu 46.283 milljónum króna, og aö sjálfsögðu fara vaxandi. Ragnar Guöleifsson vetrarannríki og vertíð sjávar- plássins voru mér framandi. Allir voru vinnandi og áhugasamir um starf sitt og ekki afskiptasamir um hag annarra, en yfirleitt var fólkið álúðlegt og vinsamlegt. Ýmsar leifturmyndir frá kynnum mínum af Keflavik veturinn 1940-1941 líðamérfyrir sjónir þegar ég er beðinn að geta þeirra nú eftir 40 ár og skal minnst á örfá atriði. Heirrisstyrjöldin var skollin á og var maöur lítt var við hana nema í fréttum. Þó var þar ein undantekning. Héraðslæknirinn var mikill þýskumaöur og áhugasamur um gang styrjald- arinnar. Þó að ég sé ekki viss um aö hann hafi fylgt Þjóðverjum að málum, þá er eitt víst að hann hlustaöi öll kvöld á Þýska útvarpið og þá gjarnan á höfuð- paurana Hitler og Göbbels. Hvenær sem hann sá mig á götu kallaði hann til min og lét mig heyra skellihlægjandi hvað þeir hefðu verið að segja í gær. Þá hlustaði hann einnig af athygli á útvarpsþulinn, sem kallaði sig Lord Haw-Haw og hæddi og kvaldi Englendinga með háðsyrðum öll styrjaldarárin. Hann var enskur að uppruna og Bretum kvað hafa létt stórlega þegar þeir náðu til hans að stríði loknu og gátu hengt hann. Skólastjórinn var ágætur íhaldsmaður og stóð framarlega í hreppsnefndarmálum sem oddviti. Hann tjáði mér þegar í upphafi kunningsskapar okkar aö þó að kreppan hefði sorfiö hart að flestum landshlutum hefði sú ekki orðiö reyndin í Keflavík og þakkaði hann það að miklu leyti fádæma vinnuorku og starfsgleði þorpsbúa, enda tók hann fram með nokkru stolti að áhugi unga fólksins beindist að sjósókn og útræði og enn hefði enginn Keflvíkingur síöan hann kom í plássið sótst eftirað fara svokallaða menntaleið með stúdentspróf og háskólanám að markmiði. Hann hefur kannski sagt þetta til þess að stríða mér, því ég hafði nælt mér í utan- skólastúdentspróf vorið 1940. Presturinn var skólastjóri Ung- lingaskólans og kenndi ég eitthvaö hjá honum tímakennslu á kvöldin. Hann var ógleyman- legur persónuleiki og ákaflega vinsæll hjá nemendum sem öðrum. Þótti mér skaði er ég frétti að hann hefði síðar flutt til Vesturheims með fjölskyldu sinni. Ég kenndi hálfan daginn ( Innri-Njarðvík og fór á milli ýmist gangandi eða með Steindóri í áætlunarbílnum. Þar snæddi ég hádegisverðinn og þar var gaman að koma. Allt var svo frjálslegt og fólkið bar kennarann á höndum sér. Eftir að ég hætti kennslu um vorið vann ég um sumariö í Skipa- smíðastöðinni hjá Bjarna og var þaö mér ómetanlegur skóli vegna lögfræðistarfa síðar að fá að kynnast þannig bátum og út- gerð. Þrátt fyrir ysinn og þysinn við höfnina og bílaskröltið, forina og drulluna á Hafnargötunni á vertíðinni þá var Keflavík í raun og veru kyrrlátur bær með sérlega friðsamlegu umhverfi. Margar gönguferðir fór ég með litlu krakkana er vora tók upp í heiðina, þvi þar var dásamlegt að reika um lynggrónar breiður þar sem hjalli tók við upp af hjalla og ekkert truflaði náttúru- kyrröina. Nú er þar heldur öðru- vísi um að litast. Ég kunni ákaf- lega vel við hve veöurlagiö er oft stillt í Keflavík og annarsstaðará Suðurnesjum á vorin og sumrin þegar kvölda tekur. Það fór fram aðalmanntal 1940 svo sem ávallt skyldi vera á 10 ára fresti og var mér ætlaö það hlutverk að fara i hvert hús í einni götunni á manntalsdaginn og skrifa upp nöfn íbúanna. Enn þann dag í dag man ég hve margt kom mér á óvart úr lífi fólksins þegar svona óvæntan gest bar aö garði um miöjan dag með eyðublöð og spurningar um hagi þess. Dapurleg mynd blasti við mér í einni risíbúðinni. Bátur hafði farist nokkrum dögum áður og meðal bátsverja var fyrirvinna heimilisins þarna, kornungur sjómaður, nýlega aðfluttur til Keflavíkur. Barnung Páll S. Pálsson vorið 1940 ekkjan hélt á barni á handlegg og dillaði öðru í rólu sem hékk úr rismæninum í miðri stofunni. Hún vírtist algjörlega utan við sig og svaraöi naumast spurningum um nöfn og aldur barna o.s.frv. Ég hafði þá aldrei og reyndar aldrei síöan séð eins yfirþyrmandi sorg og einsemd í fari nokkurrar manneskju. Ég sagði konunni frá þessu þarsem ég var í fæði og mun hún hafa gert einhverjar ráðstafanir til þess að konurnar heimsæktu ungu ekkjuna og reyndu að hug- hreysta hana, en sennilega hefur það verið heldur seint því eftir því sem ég frétti síðar varð algjör sturlun hlutskipti hennar. Þannig tók hafið sinn toll af þessu harðgerða og ágætafólki. Samkennarar mínir í Keflavík og nokkrir aðrir menningar- frömuðir þar buöu mér þátttöku í fólaginu Faxa og reyndist það sannarlega ánægjulegur félags- skapur. Ég óska félaginu og blaðinu til hamingju með afmælið. Heimilismatur Leggjum áherslu á pizza og grillrétti. NAUTIÐ Hafnargötu 19a - Keflavík Sími 3390 FAXI - 187
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.