Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1980, Page 35

Faxi - 01.12.1980, Page 35
Landgræðslunni að 2/3. Auk þess lagði Landgræðslan til kostnað vegna aksturs og dreifingar. Til þess að starf þetta megi skila árangri þarf jafnframt að hlúa að gróðrinum og ekki síst að fría hann frá allri beit. Það er því nauðsynlegt aö varslan við landgræöslugirðinguna og smölunina á svæðinu sé í góðu lagi. Á fulltrúaráðsfundi Sambands (slenskra sveitarfélaga sem haldinn var í Reykjavík 13. og 14. marz s.l. var samþykkt að hvetja sveitarstjórnir til að taka afstöðu til álitsgerðar Verkaskiptanefnd- ar um stjórnsýslukerfi sveitar- félaga. Samþykkt var í stjórninni að freista þess að senda sameiginlega umsögn um álits- geröina og var tveim stjórnar- mönnum þeim Albert Sanders og Gunnari Jónssyni falið að semja drög að umsögn sem síðan yrði send sveitarstjórnun- um til umsagnar. Hér er um mikið verk að ræöa, sem ekki er lokið, en þarf vafalaust að hraða svo sem tök eru á. Á þessu ári var endanlega gengiö frá skiptum á milli Sambands sveitarfélaga í Reykjaneskjördæmi og Sam- bands sveitarfélaga á Suður- nesjum. Eiríkur Alexandersson varaformaðlur S.S.S. mætti á framhaldsaðalfund SASÍR sem haldinn var 21. maí s.l. Þar var gengiö frá uppgjöri eigna og skulda og var samþykkt að hlutur S.S.S. skyldi vera 45.2%. Skuld S.S.S. viö SASlR var þá 206.601 króna. Að auki eiga svo samböndin í sameiningu- hús- eignina Garðaflöt 16-18, en hún er nú reikningsfærð á 22.219.465 kr. samkvæmt bráða- birgðauppgjöri pr. 30. des. 1980 og er þá búið að taka inn í dæmið greiöslur sem sveitarfél- ögin hafa samþykkt að greiða á þessu ári. Nú hefur borist erindi frá stjórn SASÍR, þar sem skýrt er frá því að húsnæði þetta sem ætlaö var undir starfsemi fræðsluskrifstofu Reykjanes- umdæmis sé ekki nægilega stórt, og jafnframt er skýrt frá því að bæjarsjóður Garðabæjar haf i hug á aö kaupa húsiö meö þaö fyrir augum aö setja þar á fót heilsugæslu eða læknamiðstöð. Þetta erindi barst ekki til mín fyrr en 12. nóv. s.l. og hefur ekki veriö tekiö fyrir í stjórn sambandsins en SASlR óskar eftir svari fljótlega. Lögreglusamþykktir í öllum lögsagnarumdæmum á Suður- nesjum hafa nú verið sam- ræmdar og hafa þær ýmist verið birtar eða eru aö sjá dagsins Ijós. Fyrir liggja tillögur aö samræmingu gatnageröar- gjalda en þær virðast eiga erfitt uppdráttar. Hér er þó um mikið nauðsynjamál að ræða því misræmi í gatnagerðargjöldum getur valdið röskun á eölilegri byggðaþróun. Á stjórnarfundi sambandsins hafa lánaumsóknir til Byggða- sjóðs verið teknar til umsagnar og yfirleitt verið samþykkt að mæla með þeim, þó hefurkomið fyrir að útaf hefur brugðið ef full- trúi þess sveitarfélags sem um- sóknin hefur veriðfrá hefur lagst gegn henni. Þá vaknar sú spurning hvort eðlilegt sé, að stjórn sambandsins veiti umsagnir um slík mál, þvi augljóst er aö hér skiptir mestu máli álit heimamanna. Svo sem öllum sveitarstjórn- armönnum á Suðurnesjum er kunnugt um.standa sveitarfél- ögin sámeiginlega að rekstri margra fyrirtækja og stofnana, ýmist nokkur eða öll saman. Á þessum fundi verða fluttar skýrslur frá þrem stofnunum þ.e. Fjölbrautaskóla Suður- nesja, Sjúkrahúsi og heilsu- gæslu og Garðvangi, dvalar- heimili aldraðra. Þessar stofnanir standa nú í mikilli upp- byggingu og má þar nefna aö Fjölbrautaskólinn keypti ísumar húsnæði undir verknáms- kennslu, nýbygging sjúkrahúss hefur verið tekin í notkun að hluta og verður væntanlega að fullu lokið fyrir næsta sumar. Þá er hafinn undirbúningur að byggingu heilsugæslustöðvar i tengslum viö sjúkrahúsið. Stjórn Garðvangs hefur undirbúið stækkun dvalarheimilisins um 21 pláss fyrir vistmenn. Nú nýlega var haldinn aðal- fundur Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja. Málefni hennar eru því fundarmönnum enn í fersku minni en þess má geta að viðgerð á stöðinni er nú að Ijúka og starfsemi að hefjast að nýju. Hitaveita Suðurnesja er okkar merkasta fyrirtæki. Þar er áfram unniö að uppbyggingu á fullum krafti. Hitaveitan heldur árlega sinn aðalfund þar sem kjörnum fulltrúum gefst kostur á að ræða málefni hennar. Ég mun því ekki fara nánar út í málefni Hitaveit- unnar. Heilbrigðilsfulltrúi Suður- nesja starfar undir óbeinni stjórn sambandsins, en samkvæmt lögum eru yfirmenn hans he i I br i g ð i snefnd i r sveitarfélaganna. Formenn þeirra mynda svo heilbrigðis- nefnd Suðurnesja. Þetta kerfi er nokkuð þungt í vöfum og þyrfti aö setja nánari reglur hvað þetta varðar. Heilbrigölisfulltrúi er Jóhann Sveinsson og hefur hann sinntfjölda málasem undir embættið heyra svo sem aö hafa eftirlit með aðbúnaði starfsfólks á vinnustööum, hreinsun hunda, útrýmingu skordýra og meindýra, eftirliti með matvæla- framleiðslu og alls konar sýnatökum, svo eitthvað sé nefnt. Þá má ekki gleyma Fisk- iðjunni, sem tók til starfa 26. febr. s.l. með ráðherraleyfi upp á vasann. f júlí s.l. tók til starfa meindýraeyðir, Júlíus Baldurs- son, sem ráðinn var af sveitarfélögunum sameiginlega. hann mun sjá um eyðingu nagdýra, skordýra, villikatta og flækingshunda og fylgjast með aö haldnar sóu samþykktir um hundahald á svæðinu og verður hann aö öðru leyti aðstoðar- maður heilbrigðisfulltrúa vegna tengdra starfa og lýtur stjórn hans. Fyrirhugað er að mein- dýraeyðir fái starfsaðstöðu í Áhaldahúsi Keflavíkur en unnið er að því að skapa þar aðstööu. Keyptur var bíll til afnota fyrir meindýraeyðinn en ekki ertaliö boðlegt að flytja eiturefni í bílum sem jafnframt eru notaðir til einkaafnota og fólksflutninga. Embætti heilbrigðlisfulltrúa hefur aðsetur í skrifstofuhús- næði S.S.S. í Ytri-Njarðvík. Það húsnæði var tekið á leigu af Hitaveitu Suðurnesja og er 99 fermetrar auk 36 fermetrar í sameiginlegu. Húsaleiga í samningi miðað við apríl s.l. er kr. 121.500 á mánuði. Aðstaða þar er öll hin vistlegasta og sambandinu til sóma. Fram- kvæmdastjóri sambandsins er Haraldur Gíslason, hefur hann unnið því gott starf, en s.l. árfór mestur hluti starfs hans og skrif- stofunnar i að vinna að málefnum Sorpeyöingarstöö- varinnar.en nú ætti að geta orðið þar breyting á og er raunar nauðsynlegt því málefni sambandsins eru margvísleg og krefjast mikils tíma. Á fyrsta starfsári samband- sins fékk það framlag úr Jöfn- unarsjóöi til jafns á við önnur landshlutasamtök, en á þessu ári brá svo við að félagsmála- ráðuneytiö úrskurðaði að það framlag sem áður var greitt til SASÍR skyldi nú skipt að jöfnu milli SASIR og S.S.S. I ár er sá hluti sem til okkar rennur um 10 milljónir króna. Stjórnin vildi ekki una þessum úrskurði og hefur nú höfðað mál á hendur Jöfnunarsjóði til að fá þessum úrskurði hnekkt. Best væri auðvitað að þetta mál leystist án þess að til málareksturs komi og er ekki að vita nema það geti tekist. Byggöasjóður leggur sam- bandinu til fé sem nemur launum eins starfsmanns eða um 10 milljónir. Fjárhagur sambandsins er annars ekki slæmur eins og er, enda greiða sveitarfélögin í raun mestan þann kostnaö sem af starfsemi þess leiðir. Góðir sveitarstjórnarmenn, samkvæmt stofnsamningi er tilgangur sambandsins aö vinna að hagsmunamálum sveitar- félaganna á svæðinu og efla og styrkja samstarf þeirra. ( sam- eiginlegum málum á það að koma fram, fyrir hönd sveitar- félaganna gagnvart ríkisvaldinu og öðrum. Viö skulum ekki missa sjónar á þessum mark- miöum. Ég held að vel hafi tekist hingað til og vona að svo verði áfram. Samstarf sveitarfélag- anna á Suðurnesjum hefur verið gott og mætti jafnvel vera öðrum til fyrirmyndar. Ég vil svo aö lokum þakka meðstjórnendum mínum og framkvæmdastjóra gott samstarf þann tíma sem ég hef verið formaður þessara samtaka og í nafni stjórnarinnar þakka ég öllum sveitarstjórnar- mönnum ágæta samvinnu. Verslunarmenn Atvinnurekendur Sparið tíma í jölaösinni og pantið SNITTURNAR OG MATINN fyrir starfsfólkið, hjá okkur. Fljót og góð þjónusta. iþlúmnn Smáratúni 28, Keflavík Símar 1777 og 3846 FAXI - 199
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.