Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.12.1980, Qupperneq 41

Faxi - 01.12.1980, Qupperneq 41
HILMAR PÉTURSSON: Auka ber samstarf sveitar féiaga á Suðurnesjum Á síðari árum hafa miklar umræður farið fram, um aukið samstarf sveitarfélaga og þá um nauðsyn þess að sameina þau, þar sem landfræðileg aðstaða er fyrir hendi. Á nokkrum stöðum hefur verið tekið upp samstarf um rekstur ýmis- konar þjónustustöðva, en minna hefur orðið um sameiningu sveitarfélag- anna. Þó 'hefur það gerst á Vestfjörðum þegar (safjörður og Hnífsdalur urðu eittsveit- arfélag og ekki hefur heyrst annað, en þar hafi giftusam- lega tekist til. Hér a Suðurnesjum hefur samstarf sveitarfélaganna verið mikið og alltaf er verið að auka það og álit flestra að auka beri það enn frekar. Á ýmsum sveitarstjórnarráð- stefnum, sem ég hef setið á undanförnum árum, hafa ræðumenn víða af landinu talað mikið um þetta sam- starf okkar Suðurnesja- manna og talið það mjög til fyrirmyndar. Sérstaklega voru þeir hissa á því, hvernig hægt er að koma svona nánu samstarfi á. Því viða hefur þetta verið reynt, en ekki tekist sem skyldi vegna sun- drungar og metnaðar. Eiginhagsmunir því miður látnir alltof oft ráða ríkjum. Oftast er staðsetning við- komandi þyggingar, sem allt strandar á, hún skal vera í mínu byggðarlagi en ekki þínu og ekki fæst samkomu- lag um hvað hagkvæmast er hverju sinni. Fréttir af hvers- konar ósamkomulagi hvað þetta varðar, má oft lesa um í dagblöðunum og þarf ég ekki að skýra það nánar, enda öllum kunnugt. Fyrsta samstarfið milli sveitarfélaga á Suöurnesjum var um byggingu og reksturs sjúkrahúss í Keflavík. Síðan líða nokkuð mörg ár, en þá má segja að hvert stórverk- efnið hafi tekiö við af öðru. Heilsugæslustöð Suður- nesja var komið á fót árið 1975 og starfar eftir sömu lögum og Sjúkrahúsið. Auk stöðvarinnar í Keflavík eru útibú í Grindavík. Sandgerði og Vogum. Fyrsti áfangi af þremur hefur nú veriðtekinn í notkun af viðbyggingu við sjúkrahúsið. Annar áfangi á að verða heilsugæslustöð í tengslum við sjúkrahúsið og þriðji áfangi 2ja til 3ja hæða hús með rannsókna- og hjúkrunardeildum. Brunavarnir fyrir Suður- nes eru orðnar vel búnar tækjum og hús haganlegt fyrir starfsemina. Fjölbrauta- skóli hefur verið byggður og keyþt var í sumar hús fyrir verknámsdeildir skólans, húsnæðisþörf fyrir skólann er því fullnægt að sinni. Hitaveita fyrir Suðurnes, sem ríkissjóður er eigandi að hluta til á móti öllum sveitar- félögurium. Skrifstofu- og lagerhúsnæði er staðsett í Njarðvík. Elliheimilið Garð- vangur í Garði hefur verið rekið af öllum sveitarfélög- unum nema Grindavík og um næstkomandi áramót verður Hlévangur í Keflavík rekinn með sömu yfirstjórn. Nú er í athugun viðbygging við Garðvang, sem auka mun vistrúm um 21 þ.e. 5 tveggja- mannaherbergi og 11 ein- staklingsherbergi, auk föndurstofu, dagstofu og þvottahúss. Sorpeyðingar- stöð hefur verið sett á stofn með framlagi frá sveitarfél- ögunum og þeirra eign. Á síðasta aðalfundi Sam- bands sveitarfélaga á Suður- nesjum, sem haldinn var í Stapa 15. nóv. s.l. og raunar áður hafa orðið miklar umræður um hvort rétt sé, að sameina allar rafveitur á Suðurnesjum svo og Hitaveitu Suðurnesja í eina stóra orkuveitu. í þeim umræðum sem fram hafa farið um þetta mál, eru mjög skiþtar skoðanir og eru a.m.k. Grindvíkingar þessu mjög andvígir. Það verður eflaust erfitt að gera hverja rafveitu uþþ fjárhagslega svo öllum líki, ef í slíka samein- ingu yrði farið. Þó held ég að, það sé fleira sem mælir með því að stofnað verði eitt stórt orkubú, það yrði sterkara í samningum við ríkisvaldið, heldur en rafveiturnar eru nú. Fyrir fáum árum var heil- brigðisfulltrúi ráðinn fyrir Suðurnes, en samkvæmt lögum eru yfirmenn hans heilbrigðisnefndirnar á svæðinu. Starfssvið hans er orðið mjög viðarmikið m.a. aðbúnaöur starfsfólks á vinnustöðum svo og eftirlit á hverskonar heilbrigðis- málum. Þá var í júlí s.l. ráðinn til starfa meindýraeyðir fyrir sveitarfélögin sameiginlega. Rekstur fyrrgreindra stofnana hefur yfirleitt gengið vel og sambúðarer- fiðleikar verið hverfandi litlir. Hvert sveitarfélag hefur greitt eftir íbúatölu reksturs- kostnað þeirra og hefur það mælst vel fyrir. Þéttbýlið hefur létt hinum fámennari byggðum róðurinn, sem sjálfsagt er. Ég tel að öllum hljóti að vera Ijóst, að þau þjónustu- fyrirtæki, sem nú eru rekin sameiginlega af öllum sveit- arfélögunum á Suður- nesjum, væri nú ekki öll fyrir hendi, ef þetta samstarf hefði ekki tekist og því þjónusta við fólkið á þessu svæði mikiö skemmra á veg komin. Tel ég að utan Stór-Reykjavíkur- svæðisins sé hvergi betur búið að fólki hvað þessa þjónustu varðar en einmitt hér og er það fyrst og fremst vegna þessa samstarfs. Það er augljóst mál, að lítil sveitarfélög hafa ekki fjár- hagsgetu til að byggja eða reka öll þau þjónustufyrir- tæki, sem nútímafólk ætlast og krefst af samfélaginu. Á Suðurnesjum eru vegalengdir milli sveitarfél- aganna stuttar og vegir mjög góðir, er því öllum vorkunar- laust að komast á milli þeirra. Mér finnst því sjálfsagt, að haldið verði áfram því sam- starfi, sem orðið er og auka það eftir bestu getu. Þannig að búseta fólks verði reynt að gera sem jafnasta hvað alla þjónustu varðar og það gerum við best með því, að láta ekki deigan síga í þessum efnum. Eftir því sem samstarf sveitarfélaganna eykst, verður sú spurning áleitnari hjá mörgum, hvort rétt sé að sameina öll bæjar- og hreppsfélögin á Suður- nesjum í einn stóran kaup- stað. Eflaust gæti það orðið hagkvæmt fjárhagslega, öll stjórnsýsla yrði einfaldari og ódýrari. Ýmislegt annað verður samt, að taka með í reikninginn, sem ekki er hægt að reikna til fjár, en höfðar meira til tilfinninga fólks til sinnar heima- byggðar. Eru nú allir tilbúnir að leggja sitt gamla hreþþsfélag niður og innlima það alfarið í eitt stórt sveit- arfélag? Persónulega efast ég stórlega um það, þrátt fyrir það, að hægt yrði að lækka stjórnunarkostnað og eflaust sitt hvað fleira. Ég tel að það verðu nokkuð margir, sem vilja greiða meira til sins gamla hreþþsfélags og hafa þar allt óbreytt. Mér finnst að hér verði að fara hægt í sakirnar, ég er alinn uþþ í fámennri sveit og hef ekki gleymt hugsunargangi þeirra, sem í þeim byggðum búa. Aftur á móti tel ég mjög athugandi og raunar eðli- legt, að sveitarfélög, sem byggst hafa saman og eru þá orðin í sjálf u sér eitt sambyggt svæði sameinist í eitt sveitarfélag, enda er þá orðið um svo náið sambýli að ræða, t.a. hvað verslun, skóla, stéttarfélög, heilsu- gæslu, brunavarnir o. fl. mætti telja, að fráleitt er orðið að tala um neina sérstöðu hvers sveitarfélags fyrir sig. Þá er orðið svo margfalt fleira, sem þessu fólki er sameiginlegt, heldur en hitt sem skilur sundur. Það verða mín lokaorð, að það er þjargföst trú mín, að auka beri samstarí sveitar- sélaga á íslandi, ekki aðeins hér á Suðurnesjum heldur um allt land. Traktorsgrafa og BRÖYD X2 Tek að mér alla almenna gröfuvinnu. PÁLL EGGERTSSON Lyngholti 8 - Keflavík Simi 3139 FAXI - 205
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.