Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1980, Page 43

Faxi - 01.12.1980, Page 43
Æviminningar Kristins Jónssonar Frásögn sú, erhér feráeftir, er upphaf æviminninga Kristins Jónssonar, eins af eldri borgurum Keflavikur. Kristinn var meöhjálpari i Keflavikur- kirkju um árabil, og síöustu starfsárin var hann innheimtu- maöur hjá Rafveitu Keflavikur. Fyrr á árum var Kristinn framar- lega i menningar- og félagslifi unga fólksins hér i byggö. Flann var um skeiö istjórn Ungmenna- félags Keflavikur og var þá oft liötækur i leikstarfsemi félags- ins. Kristinn kemur hingaö til Keflavikur i byrjun aldarinnar, þegar hér er aö myndast visir aö sjávarþorpi. Glæsilegt verslun- arhús og reisuleg kirkja vekja at- hygli hans er hann sér til Kefla- víkur i fyrsta sinn, af Grímshól á Voaa-Stapa. í þessum minningaþáttum lýsir Kristinn á Ijósan og lifandi hátt umhverfi hér og lifsháttum fólks i byrjun aldarinnar. Þá bregöur hann einnig upp mynd af athyglis- og umhugsunar- veröri lifsbaráttu fólksins i sveit- inni, þar sem hann fæddist og dvaldi sin fyrstu bernskuár. R.G. Ég er fæddur 3. febrúar á því herrans ári 1897, í pínulitlum bæ, sem hét Kálfsstaöakot í Vestur-Landeyjum. Þegar foreldrar mínir byrjuðu búskap fékk pabbi leyfi hjá bóndanum sem átti og bjó að Kálfsstöðum, til að byggja þetta kot í landi hans. Þetta var frámunalega frumstæð bygging, veggirnir hlaðnir úr torfi og grjóti, ekkert þiljaöir innan. Aðeins var ein langfjöl fest í veggina til aö festa rúmstæðin í. Súðbyrt timbur var í þakinu meö torfi að utanverðu. Gaflinn, þar sem glugginn var með 4 smárúðum, var hlaðinn úr torfi og grjóti. Hlóöareldhús var aftur af baöstofunni, byggt í svipuðum stíl og úr sama efni. Ekki vartimburíneinumgólfum, bara gengið á jörðinni. Þegar blautt var úti og rigndi, blotnaði gólfið og var illfært. Þá var bor- inn mór eða skánaraska á gólfið til að þurrka það. Stundum, sér- staklega við hátíðleg tækifæri var stráö moði, mó eða skánar- ösku, stundum lyngi þegar náðist í það. Þetta þótti afskap- lega fínt, en þetta hækkaöi gólfið óþægilega mikið yfir áriö, en það var bætt úr því með því að stinga út, eins og skán úr fjár- húsi, venjulega rétt fyrir jólin. Ekki var neinn olíulampi á býlinu, enda lítt þekktir þá, nema á efnaðri bæjum, en notast var við svokallaða kolu. Það voru lá- túnsdollur með líkt og könnustút aö framan, og innst flötum eða sívölum teini að aft- an meö gati í endanum, sem í var nagli til að stinga í veggina eftir því sem hentaði. ( koluna var látið lýsi, venjulega hrálýsi, og þar í var kveikur heimatilbúinn úr fífublómum sem reytt voru af stönglinum og ýmist snúin saman í höndum eða þegar best lét spunnin á rokk.Svo var þessi heimatilbúni kveikur settur ofan í lýsið og lagður í stútinn. Á þessu logaði sæmilega en alltaf varð að passa að færa kveikinn upp í stútinn eftir þvi sem hann brann. Þó nokkur reykur mynd- aðist frá Ijósinu og frekar vond lykt var af Ijósmetinu. Þetta var afar takmörkuð lýsing, aðeins smá Ijóshringur, þar sem kolan var staö'sett. Hvergi var hlýja nema í eldhúsinu. Þar var eldur í svonefndum hlóðum, sem hlaðnar voru úr grjóti. Þar log- aði eldurinn laus um matarilátin. Venjulega sátu pottarnir á hleðslu sem myndaöi eldholið, en vatnsketillinn oftast hengdur í járnhlekkjafesti með krók á endanum, sem fest var upp í rjáfur. Eldsneyti var venjulega svokölluð skán (þurrkaður kúa- skítur) og mór, sem víða var stunginn úr jörðu og þurrkaður. Einnig voru notaðir birkilurkar og lyng þegar til náöist. Ekki var búsakpurinn eða lífs- afkoman beysin á svona smá- kotum eins og okkar. Venjulega voru aðeins tvær kýr og þegar best lét einn kálfur. 15-20 rollur og 1-2 hestar. Reynt var að hafa aðra kúna snemmbæra en hina síöbæra, sem kallað var, til að hafa mjólk úr annarri kúnni þar til hin var borin. Venjulegastóðu kýrnar geldar eða mjólkurlausar nokkurn tíma fyrir burð. Fóðrið í þá daga var oft misjafnt að gæð- um, eingöngu hey, enginn fóð- urbætir eins og nú tíökast. Túnið í kringum kotiö var mjög lítiö. Mig minnir að ekki hafi fengist af því eitt kýrfóður, eöa 30-40 hestburðir. Þaö sem á vantaði var snapaö á mýrum og valllendisböröum. Ekki man ég samt eftir að heylaust hafi oröið á kotinu. Oft var matur af skornum skammti og stundum ekkert að éta nema mjólkurlöggina úr kúnni. Og til þess að drýgja hana var hún sett í svokallaðar byttur og látin standa yfir nóttina. Að morgni var rjóminn sestur ofan á. Þá var undanrennan sem kölluö var, látin renna í gegnum gat neðst á byttunni, sat þá rjóminn eftir, þá var hann tekinn og þeyttur í flautir til að drýgja hann, svo allir fengju eitthvað. Til þess að þeyta rjómann var notaður kústur með um 20 cm skafti með mjúku strái, svipað og er núna i bílkústum. Svo var skaftir tekið milli handanna og snúið hratt til hægri og vinstri. Þessi aðferð var furöulega fljót- virk. Ég var ungur um þetta leyti. Þó man ég eftir hve ofsalega hungruð við krakkarnir vorum. Það hlýtur að hafa verið átakan- legt fyrir mömmu að horfa á 5 krakkagrislinga, sem heimtuðu mat af henni þótt ekki væri til, og pabbi langt í burtu við sjóróðra, niðri á Eyrarbakka. Og þó eitt- hvað fiskaðist var ekki nokkur leið að koma því til okkar svo langt í burtu, því ekkert og eng- inn var til að senda, og síst aö vetrarlagi. Venjulega fór pabbi til róðra nokkru eftir réttir, til að reyna að afla viðurværis, en venjulega kom hann ekki afturtil okkarfyrr en rétt fyrir jólin. Þá varð hann að ganga alla leiðina og bera í bak og fyrir eins og hann gat, bæði fiskmeti og ýmislegt smá- vegis í jólaglaðning. Ekki man ég hvaö pabbi kom með úr kaup- staðnum, þaö eina sem mig rámar í var óróinn sjóvettlingur fullur af kandíssykri. Ég man að við systkinin fengum smámola upp í okkur og þótti þetta mikill viðburður, því við höfðum ekki bragðað svona sælgæti í fleiri vikur. Venjulega var ekki keypt- ur meiri sykur til ársins og þetta látiö duga svo lengi sem þaö entist, sem oftast var styttri tími en áætlað var. Stundum var svo þröngt í búi, að ýmist mamma eða eldri systkinin urðu að fara á efnaðri bæi og snapa matarögn, til að við dræpumst ekki úr sulti. Alltaf held ég að þau hafi fengið ein- hverja úrlausn, því alltaf lifðum við. Sennilega hefði ég dáið úr eymd og volæði þarna hefði ég ekki átt hauk í horni. Það hugði mér enginn langra lífdaga. Eg var svo aumur þegar ég fæddist, að ég var skírður sama daginn. Var fæddur með óþverra kirtla- veiki. Það gróf í öllum kirtlum og var ég oft með háan hita. Þetta var að gramsa í mér i tvö ár. Þá voru allir kirtlar útgrafnir og farnir að þorna. Fór ég þá fyrir alvöru aö lifna við. Mestan þátt í batnandi heilsu minni var aö þakka vinkonu minni á Kálfs- stöðum, húsfrú Gróu, sem var óspör á góöan bita og sopa handa ræflinum. Þegar ég var orðinn svo státinn að geta labbað á milli bæja. Ég man enn, þó stór væri ég ekki, þegar ég kom að heim- sækja Gróu mína og hún kallaði mig ræfilinn sinn meö saman- brotna flatköku í hendinni. Búriö var í fremri enda baö- stofunnar og ein nokkuð há trappa upp í það. Ekki varaötala um að ég fengi kökuna nema ég kæmist aö eigin rammleik inn í búrið, en tröppuskömmin var svo há, eða ég svo lítill. Þófórég að reyna að bjarga mér og teygði mig sem ég gat og lagði vinstri löppina upp á tröppuna og velti mér svo inn í búrið. Þá var heldur betur tekið á móti mér og hrósað fyrir dugnaðinn. Oft Kristinn Jónsson var ég dag og nótt um kyrrt og lifði þá í vellystingum praktug- lega og var sáröfundaður af syst- kinum mínum. Þessar velgjörðir björguðu áreiðanlega lífi mínu og heilsu. Blessuð sé minning Gróu minnar á Kálfsstöðum. Arið 1900 varð sú breyting á högum okkar, að við fluttum al- farið frá kotinu og blessuðum Kálfsstööum. Á krossmessu lögðum við land undirfótsuðurí Flóa og höfnuðum í Egilsstaöa- koti í Villingaholtshreppi. Ég man bókstaflega ekkert eftir því ferðalagi, en ýmislegt rámaði mig í eftir að við komum á stað- inn, enda þá orðinn 3ja ára. Þaö fyrsta sem ég man vel eftir er. að ég var sendur að Egilsstöðum til að fá lánaðan ketil. Sá hlutur var ekki til í búslóðinni frá Kálfs- staðakoti. Sennilega man ég svona vel eftir þessu atviki, af því að ketilfjandinn var svo þungur, að ég varð oft að draga hann á eftir mér eða halda honum fast viö löppina, sem var afar óþægilegt. En alltaf þvældi ég katlinum heim. Oft grenjaöi ég yfir honum á leiöinni af van- mætti og reiöi. Þetta var stór pottketill og þykkt efni í honum og ég ekki beisinn bógur til aö standa í stórræöum. Aldrei bað ég um að fá ketilinn lánaöan, heldur sagði alltaf: Ég á að sækja ketilinn. Egilsstaðir eru á Þjórsárbökk- um og aðalleikvangur okkar var á söndunum niöur við á. Ég man að Palli bróðir, sem var næst- elstur, var venjulega foringinn í hópnum. Hafði einhvers staöar náö í nokkrar spýtur og reyndi aö njörfa saman fleka. Mig minnir aö hann hefi verið bund- inn saman með snæri. Svo átti aö sigla þessu út á ána. Mig minnir að Palli hafi fyrst sent Eggert bróður til að prófa far- kostinn. Allt gekk vel hjá honum og kom hann hróðugur að landi. Þá heimtaði ég að fá að prófa næst., þó stuttur væri. Þaö var auösótt mál. Allt gekk vel í fyrstu en svo fór víst eitthvað úrskeiðis, því ég valt af flekanum í ána og Framh. á nnstu sfðu FAXI - 207
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.