Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1980, Side 44

Faxi - 01.12.1980, Side 44
Palli varö aö bjarga mér í land hundblautum. Aö lokum fór höföinginn sjálfur í leiðangur og bá tók ekki betra viö, því flekinn bókstaflega gliönaði í sundurog Palli á bólakaf. Svo fór með sjó- ferö þá. Ég man ekki fleiri fleka- ferðir. Einn daginn í blíðskaparveðri um hásláttinn var pabbi aö slá bæjarsundiö og þakiö á bænum, sem var kafloöiö. Þá var kallað á hann inn í kaffi. Hann lagöi orfið upp á þekjuna á meðan. Ég hafði aldrei slegið um dagana, en langaði mikiö til að verða duglegur sláttumað- ur, svo ég notaði tækifærið meö- an pabbi var inni, tók orfiðog fór að slá. Það gekk allt sæmilega í fyrstu, en svo var ég svo óhepp- inn aö reka Ijáinn í jörðina svo hann varð fastur. Ég var iengi aö bisa við að losa hann. Loksins hafði ég þaö. Þá var ég svo óvar- kár að leggja orfið öfugt við það sem áður var og Ijárinn sneri niður. Svo hoppaöi ég yfir hann og lenti með stóru tána á Ijánum sem skarst á hol inn að beini. Ég varð svo yfir mig hræddur að ég fór að hágrenja með þeim ósköpum að allir komu hlaupandi út úr bænum. Þá fossaði blóðið úrtánni. Mamma tók mig inn í bæ og batt um tána, svo blóöiö hætti að renna úr sár- inu. Ég held að það hafi verið í fyrsta skipti sem ég skrökvaði þegar farið var að spyrja um orsakir slyssins. Ég hélt þvífram blákalt, aö steinn heföi oltið ofan á tána og höggvið mig svona illa, en þegar pabbi sá hvernig Ijár- inn lá í sundinu, þá komst allt upp. Ekki var nú vitið meira en guð gaf. Síðan hef ég haft ör yfir þvera tána til þessa dags. Seint um haustið komu ung hjón til veru yfir veturinn í kotið, því við höfðum það ekki Iengur en til vorsins. Þau voru húsnæð- islaus, svo þeim var leyft að vera þótt þröngt væri í kotinu. Það sem mér fannst athyglisverðast við komu þeirra, var tíu línu olíu- Iampi, sem þau lögðu í búið og nutum viö góös af. Sú dýrö er mér ógleymanleg. Þessi lampi lýsti út í hvern krók og kima í baðstofunni. Reyndar var hún ekki stór, en munurinn frá grút- artýrunni var geysimikill. Einnig er mér minnisstætt þegar Sig- fús, svo hét hinn nýkomni, og Gróa kona hans komu úr kaup- staðarferð frá Eyrarbakka nokkru fyrir jól meö 6 punda rúg- brauð úr brauðgerðarhúsi ásamt ýmsu ööru sem ég man ekki hvað var. Gróa gaf okkur krökkunum eina brauðsneið hverju. Mér þótti brauðiö Ijúf- fengt, ég hafði aldrei um mina daga bragöaö annaö eins sælgæti. Eg finn bragöið enn í dag þegar mér dettur þessi sneiö í hug, og hvaö mig langaöi ínnilega í meira, en þaö fékk ég ekki, því þá hefði Gróa þurft að gefa öllum 5 krökkunum. Þarna í kotinu kúldruöust 10 manns yfir veturinn. Þau að- komuhjónin, sem ég þegar hef nefnt, faöir minn Jón Pálsson, móðir mín Jóhanna Jónsdóttir, viö krakkarnir, sem nú voru orðnir 6 talsins. Elst var Elín, fædd 1888, Jón Páll, fæddur 1892, Eggert, fæddur 1894, Kristinn, fæddur 1897, Júlíana, fædd 1899 og Þórunn, fædd 1901 i Egilsstaöakoti. Áriö 1902 um Jónsmessuleytiö var lagt í langferö, hvorki meira né minna en til Keflavíkur á Reykjanes- skaga, sem þá var upprennandi kauptún í eign H.P. Duus-versl- unar. Ekki fór allur hópurinn í þetta ferðalag. Elín og Jón Páll fóru í vinnumennsku, sennilega til aö létta útgjöldum af pabba, því efnin voru mjög af skornum skammti. Elín fór aö Bolafæti í Ytri- Hrepp, en Jón Páll aö Fljótshól- um í Flóa til Jórunnar systur pabba og manns hennar. Ég man nokkuö vel eftir upphafi ferðarinnar, sem hófst snemma morguns í glampandi sólskini og blíðu. Pabbi fór fyrstur í lest- inni og teymdi reiöingshest, sem var meö alla búslóðina, bæði mat og fatnað, og að auki með Júlíönu systur bundna við klyf- berann í öryggisskyni, svo hún dytti ekki af baki. Þá varein belja bundin aftan í hestinn. Þar næst komum við Eggert og tvímennt- um á hestinum og var Eggert falið að dangla í beljuna ef hún yrði löt i taumi, þvi hann var framar. Og að síðustu kom mamma og reiddi Tótu, sem þá var á fyrsta ári. Þannig mjökuðumst viö áfram fót fyrir fót í gegnum Flóann. Ég man þegar við komum að ölfus- árbrú, sem var búið aö byggja fyrir nokkrum árum, að verið var að setja á hana slitdekk úrtimbri til að styrkja hana. Við fórum óhindruð yfir brúna og vorum þá komin i ölfusiö. Svo héldum við sem leiö lá að Gljúfurárholti og fengum gistingu þar í fjárhús- kofa yfir nottina. Það var lagt upp snemma morguns og haldið sem leið lá yfir Hellisheiöi, að Kolviöarhóli, og gist þar. Þar fengum viö aö sofa i rúmum og fór ágætlega um okkur. Um morguninn var lagt í Svínahraun og ekki stopp- aö nema smátíma þar til komið var aö Árbæ. Þar var tekið prýöi- lega á móti okkur og leið okkur þar ágætlega. Þar var stansaö aö mig minnir hálfan annan sólar- hring. Pabbi fór morguninn eftir til Reykjavíkur ásamt Eggert bróöur með kúna sem áöur er nefnd og reiðskjótann okkar Eggerts, og var hvort tveggja selt. Svo komu feðgarnir báðir á sama hestinum til baka. Ég var dálítið forvitinn og fór því að skoða mig um. Þegar ég kom austur fyrir bæinn sá ég þar eitthvaö verkfæri, sem ég hafði aldrei séð fyrr. Ég fór að grúska í þessu og skoöa og giska á hvað þetta gæti veriö. Eg var strax geysihrifinn af þessu undri. Þetta voru mörg hjól á fallegri grind með ýmsum tökkum. Loksins stakk ég því undir blússuna mina og fór inn til mömmu og sýndi henni gersem- ina og spurði hvort hún vissi hvað þetta væri. Jú, mamma sagði að þaö væri ónýt klukka og sagði mér að fara meö hana á sama stað, því líklega ættu börnin á bænum klukkuna. Ég fór með gersemiö til sama lands, en mig langaöi svo óskaplega mikið til aö eiga gripinn, aö ég tók þaö til bragðs aö búa til nógu stóra holu fyrir klukkuna og rót- aöi svo moldinni yfirog setti svo torfu yfir og gekk mjög snyrti- lega frá öllu saman með það í huga að taka hana með mér um morguninn um það leyti sem við lögðum af stað. Pabbi og Eggert komu úr Reykjavík um kvöldið og hafði Eggert frá geysimörgu að segja, sem fyrir hann bar í kaupstaðn- um. Snemma morguns var lagt af staðtil Keflavíkurog varmein- ingin að fara þangað í einum áfanga. Ég fór strax að svipast eftir felustað klukkunnar, en hvernig sem ég leitaði fann ég ekki staðinn og varð að fara án hennar og þótti súrt í brotið og aldrei hef ég getað gleymt klukkuræflinum síðan. Við styttum okkur leið til Hafn- arfjarðar, fórum beint af auga yfir holt og hæðir og vorum komin til bæjarins fyrir hádegi. Nú var lestin farin að styttast. Eggert var fyrir aftan pabba, Júlla systir á sama stað, en ég auminginn var fyrir aftan mömmu, sem var með Tótu litlu fyrir framan sig. Ég man að við stönsuðum í blíöskaparveðri undir stórum húsgaflL Mér fannst húsið geysistórt. Ég held nú samt að þetta hafi verið með- alhús þegar nánar var athugað. Þarna var ágætisfólk með hjartað á réttum stað. Það var með alls konar góðgæti og gaf okkur öllum eins og við gátum í okkur látið. Eftir þessar ágætu góðgerðir var lagt af stað gegn- um bæinn. Ég man hvað mér fannst vegurinn einkennilega nálægt sjónum, en fljótlega hætti ég að hugsa um það, þvi í sömu andrá kom heill hópur af strákum, sem ertu okkur með ópum og hrópum. Sjáið þið kell- inguna sem er meö krakka fyrir framan sig og aftan, og kallinn með strák fyrir aftan sig. Mér fannst þeir elta okkur langa- lengi, samt held ég aö svo hafi nú ekki veriö í raun, en ég varð ofsareiöur og reyndi að sparka í þá sem næstir voru, með mínum stuttu skönkum. En svo hurfu þeir allt í einu og viö komumst fyrir fjöröinn og barekkerttiltíð- inda sem ég man, þartil við kom- um á móts við Grímshól og sáum til Keflavikur. Það fyrsta sem við okkur blasti var kirkja, gríðarlega há að mér fannst, með háum turni, ósköp svipaöur að gerð og turninn á gamla landshöfðingjahúsinu. Einnig var mér starsýnt á versl- unarhúsin sem sáust vel í sól- skininu. Ég var mjög hrifinn af þessum stórkostlegu bygging- um, því annað eins hafði ég aldrei séö um mína daga. Eggert bróðir var ekkert hrif- inn, því hann var nýbúinn aö vera í höfuðstaðnum og hafði séö þar meira en helmingi stærri hús. Til Keflavíkur komum viö aö mig minnir klukkan hálf ellefu um kvöldið. Stansaö var heima hjá hálfbróður pabba og farið af hestbaki eftir langan dag, og var okkur boðið inn og framreiddur indælis kvöldmatur, sem allir höfðu fulla þörf fyrir. Pabbi og Jón bróðir hans fóru með bú- slóöina í húsið sem við áttum að eiga heima i. Strax og búið var að borðafórum við heim að sofa. Þetta var mjög lítiö hús, sem kallaö var Litli-Bær. Mamma bjó upp rúmin í snatri og við krakk- arnir sofnuðum í einum hvelli. Eftir langan svefn og Ijúfa drauma vaknaöi ég snemma morguns endurnærður og af- þreyttur. Fór ég nú að líta í kring- um mig og athuga umhverfið. Vistarveran var inngangur í aust- urenda á suðurhliö, frekar þröngur gangur og eitt herbergi með tveimur rúmum viö suöur- hlið og einu rúmi við norðurhlið og lítil eldavél. tveggja hólfa kolavél við milliþilið norðan megin. Þetta var bæöi svefnherbergi, eldhús og þvottahús. Stærðin var í hæsta lagi 12-14 fermetrar, eða svipuð stærö og á eldhúsi, sem ég sit í núna. Samt sem áður var þetta ólíkt betri vistarvera en í kotinu okkar í sveitinni. Þetta var þó allt úr timbri og timbur- gólf aö auki, og hlýjafráeldavél- inni. Þegar ég fór nánar að líta í kringum mig, fannst mér Keflavíkjjeysi þéttbýl og mann- mörg. Ég var óvanur aö sjá bæina svona nálægt hvor öðrum. Næsta nágrenni Litla- bæjar, sem staðsettur var ná- lægt frystihúsi Keflavíkur hf., sem nú er nálægt stíg sem lá niður að sjó er seinna var nefnd- ur Íshússtígur, örskammt fyrir norðan, varbærsem hét Sjóbúð. Þar bjó Ólafur Ólafsson og Kari- tas kona hans ásamt 4 eða 5 börnum sínum. Þar fyrir norðan var Hjörtsbær. Þar bjó Páll Magnússon og Þuríður kona hans ásamt 3 eða 4 börnum sín- um. Þar skammt fyrir austan eða nær sjónum var Jóhannsbær, tvíbýli. Þar bjuggu Jóhannes Árnason, Guðný kona hans og 2 börn þeirra, og í hinu býlinu var einstæð kona, ógift, sem hét Ingveldur Magnúsdóttir. Þar næst, en aðeins neðar á sömu íínu og Hjörtsbær, var Smiöjan. Þar minnir mig aö búiö hafi ekkja sem hét Anna, móðir Eng- ilberts skútuskipstjóra, og Ingi- björg dóttir hennar. Nokkuð fyrir vestan Hjörtsbæ í sömu línu bjó Jón Ólafsson formaður, í nokkuð stóru timburhúsi, aö mér fannst, með rauömáluðu þaki. Fyrir sunnan (shússtíginn stóð hús Bjarna Ólafssonar for- manns, bróður Jóns, og þarfyrir neðan gamli barnaskólinn, sem stendur enn. Þetta var næsta ná- grenni, en fyrir sunnan skólann kom Kot. Þar bjó Högni Ketils- son, Anna kona hans og 3 börn þeirra. Fyrir sunnan Kot var Eld- húsið, þar bjó Jón bróöir pabba ásamt konu sinni Þóru Eyjólfs- dóttur og að mig minni 4 börnum. Þar fyrir neðan en mjög nálægt voru Noröfjöröshús. í þá daga var þar áfengisverslun í austurenda og kostaöi þá 3ja FAXI - 208
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.