Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1980, Blaðsíða 45

Faxi - 01.12.1980, Blaðsíða 45
pela brennivínsflaska 30 aura, en koníaksflaska 60 aura. Nokkurn spöl fyrir noröan Norö- fjörðshús við Strandgötu komu svo hin miklu Duushúsog Duus- verslun, sem allir Keflvíkingar voru háöir í þá daga. Nokkru fyrir vestan hús Bjarna Ólafs- sonar var Þorvarðarhús, og þar fyrir vestan tveir bæri sem ég man ekki nöfn á. Þar næst var önnubær, þá voru Axelshús og Jónshús efstu húsin í byggð- inni. Þar með eru öll hús talin sem voru í vesturplássinu. í þeim bæjum, sem ég man ekki nöfn á, bjuggu Vilhjálmur Bjarnason og Guðný kona hans, og skammt vestar bjó Þorvarður Þorvarðarson og Margrét kona hans. Margt af þessu fólki var ákaf- lega hjartahlýtt og gott. Við vorum sárfátæk þegar til Kefla- vikur kom og vantaði að vonum ýmislegt. En þetta blessaða fólk bætti úr flestum okkar þörfum, ég held oft langt fram yfir getu, því víða virtist af litlu að taka í þá daga. Sérstaklega voru það konurnar sem þar áttu hlut aö máli. Þær sáu svo um að við vorum aldrei soltin í Litla- bænum. Þó byggðin væri ekki stór í þá daga þá kom það fyrir að ég villt- ist og rataði ekki heim, sérstak- lega ef ég ranglaði niður að sjó. Ég varð alltaf að hafa að kenni- leiti, að hús Jóns Ólafssonar var með rauðu þaki, og ef ég sá það þá rataði ég alltaf, en um leið og það hvarf varð ég rammvilltur og varð að sþyrja til vegar, en gat þá ekki skýrt frá þvi hvar ég ætti heima fyrr en ég sá rauða húsið, sem ég kallaði svo. Þetta var nú bara fyrstu dagana, svo lagaðist þetta þegar ég fór að kynnast krökkunum og eignast leikfé- laga. Lítiö man ég hvað gerðist næstu árin, nema hvað ég man að þabbi var sjómaður á skútu sem hét Keflavík, eign Duus- verslunar. Pabbi mun hafa verið dágóður fiskimaður. Þá voru eingöngu stundaðar handfæra- veiðar. Þá voru kjörin þannig að hver maður fékk helming af því sem hann dró af fiski, en útgerð- in hinn helminginn. Af þessu varð mannskapurinn að fæða sig og klæöa, auk þess aö sjá fyrir heimili hvort sem það var stórt eða smátt. ( þá daga voru aöeins reikn- ingsviðskiþti og ekkert fékkst nema nauösynjavara og meira að segja þaö bráönaupsynleg- asta, sem hvert heimili þurfti með. Gert var uþp við karlana einu sinni á ári og var þá oft undir hælinn lagt hvort endarnir náðu saman. Ef svo reyndist ekki stóðskuld eftirtil næstaárs. Var oft æði strembið fyrir stóra fjölskyldu að lifa mannsæmandi lífi af þessum hálfa hlut, enda urðu allir úr fjölskyldunni að þræla meöan stætt var. Það voru ekki margir i þá daga sem gátu hjálþað. Við krakkarnir vorum öll svo ung og við vorum ekki talin gjaldgeng. Mamma var sú eina sem fór í fiskvinnu. Þá var ekki um aöra vinnu að ræða. SVERRIR JÚLÍUSSON; Þankar um FAXA fertugan Á árinu 1980 eru 40 ár liðin frá stofnun „Málfundafélags- ins Faxa“ í Keflavík. Ákveðið var í upphafi að 12 félagar væru í félaginu og þeirvaldir (Dannig, að þeir væru yfirlýst- ir stuðningsmenn þeirra stjórnmálaflokka, er fulltrúa áttu í hreppsnefnd Keflavík- urhrepps á þeim tíma. Fundir voru haldnir til skiþtis á heimilum þátttak- enda og skiptust þeir á að hafa framsögu í einu máli, sem síðan var rætt af öllum félögunum. Ég man ekki ná- kvæmlega hvenær ég fór úr félaginu, en það stýrðist af því að ég flutti af félagssvæð- inu. Ég á margar og góðar endurminningar frá þeim tíma sem ég var innan dyra í málfundafélaginu, sem ég er mjög þakklátur fyrir, það er Hún fékk 18 aura um tímann og vann 10-12 tíma á dag, allt fyrir sama tímakaup, og varð þar að auki að taka vörur fyrir vinnuna. Eggert bróðir var farinn að bjástra við að breiða fisk 7 ára gamall og fékk fyrst til að byrja með nokkrar kringlur í kauþ, en þegar hann fór að þjálfast í starf- inu fékk hann 5 aura á tímann. Ég fór að vinna ífiski á 7. ári og fékk strax 5 aura á tímann. Var geysihróðugur. Venjulega sendi verkstjórinn mig til að kalla byggðamenn til vinnu ef mikið lá á, hann sagði að ég væri svo geysifljótur að hlaupa. Oft fór ég hér um bil í hvert hús í plássinu og var venjulega 3/4 til 1 klukku- tima í ferðinni. Ekki voru nú fleiri í plássinu að heimsækja í þá daga. Ekki fengum við að eyða þessum aurum sem viö unnum fyrir. Þeir fóru allir í heimilis- haldið. Ég man eftir því eitt sinn að mömmu vantaði sveskjur í fiskibollusúþu og bað mig að fara og fá þær út á mína vinnu. Ég held ég hafi átt 12 tíma inni, eða 60 aura. Þegar í búðina kom vildi ég fá sveskjur út á alla vinn- una, en búöarmaðurinn hélt að það gæti ekki veriö aö ég ætti aö fá svo mikiö af sveskjum, sem voru 2 pund, þ.e. 30 aura pundið, en ég fullyrti aö satt væri. Spurði hann þá verslunar- stjórann hvort hann ætti að láta mig hafa þetta og hélt hann að það væri allt í lagi. Svo loksins fékk ég sveskjurnar, en þegar heim kom, kom það uþp úr kaf- inu að ég átti ekki aö fá nema '/2 pund, en svo var afgangurinn bara geymdur í næstu súpur. Ég man ekki ýkjamikið frá þessum dögum nema smáglefs- ur, sem varla eru i frásögur fær- andi, og læt ég því hér staðar numiö. hramh. f næsta blafil trú mín að kynnin á milli þessara manna er saman hafa starfað bæði þar og á ýmsum öðrum vettvangi, hafi látið margt gott af sér leiða fyrir Keflavíkurbæ. Það var nokkuð snemma á starfsferli Málfundafélagsins Faxa, aðfarið varað ræða um útgáfu blaðs, er ræddi um menningar- og velferðarmál Suðurnesja, og kom 1. tölu- blaðið út 21. desember 1940, svo að senn fyllir það fjórða áratuginn. Það er í mínum huga mikið framfaraspor er hafist var handa um útgáfu blaðsins og þá eigi síður að svo giftusam- lega hefur til tekist að halda því út öll þessi ár, og með því starfi hefur tekist að varð- veita margt um menn og málefni Suðurnesja, sem ella væri fallið í gleymsku. Þeir menn sem að þessu hafa starfað eiga miklar þakkir skilið frá Suðurnesjamönn- um. (ávarpsorðum ábm. blaðs- ins, Valtýs Guðjónssonar, er birtist í fyrsta tölublaði þess, segir m.a. eftirfarandi: ,,Málfundafélagið Faxi“ ætlast til að þetta blað verði í framtíðinni vettvangur fyrir umræður um málefni Suður- nesjamanna, þar á þeim að gefast kostur á að ræða: 1. Framfaramál: útgerð, hafn armál, iðnaðarmál, rækt- unarmál, heilbrigðismál, rafmagnsmál o.fl. 2. Menningarmál: almennfé- lagsmál, skemmtanir, skólamál, lestrarfélags- mál, kvikmyndasýningar, bindindismál o.fl.“ Einnig segir í áðurnefndu ávarpi: „Stjórn þessa blaðs hafa á hendi 5 menn, 3 þeirra eru valdir sem fulltrúar stjórn- málaflokkanna þriggja, Al- þýðu-, Framsóknar- og Sjálf- stæðisflokksins. Blaðið verður því ópólitískt, þ.e.a.s. heldur ekki uppi málssókn eða málsvörn eins ákveðins stjórnmálaflokks." Að mínu áliti hafa stjórn- endur blaðsins á þessu ára- bili sem það hefur komið út, verið trúir þeirri megin hugs- un, er fram kom í upphafi og er það mín skoðun, að ein- mitt þetta hafi verið megin styrkur blaðsins og gert það svo eftirsóknarvert, ekki aðeins fyrir Suðurnesjabúa heldur fjölda annarra, margir hafa lokið lofsorði á blaðið í mín eyru í gegnum árin. Ég erekki í neinum vafa um það, að félagsskapur þessi sem hóf starf sitt fyrir 40 árum, hefur fært félögunum margar gleðistundir oa stuðl- að að þroska þeirra. I þessu sambandi langar mig að vitna í samtal mitt við Hall- grím sáluga Björnsson, yfir- kennara, er við ræddum um Málfundafélagið Faxa fyrir nokkrum árum. Hann sagði: félagið hefur verið „Háskóli okkar Suðurnesjamanna." Þótt ég hafi ekki haft að- stöðu til að fylgjast með starfi málfundafélagsins um langt árabil, þá get ég vel fallist á, að mikill sannleikur hafi falist í orðum Hallgríms sáluga. Ég hef orðið að láta mér nægja blaðið og finnst mér það allt- af ánægjulegur viðburður þegar pósturinn ber mér það. Ég vil við þetta tækifæri þakka fyrir þann mikla fróð- leik sem blaðið hefur fært mér á liðnum árum. Þá vil ég senda gömlu fé- lögunum í Faxa árnaðar- kveðjur og þakkir fyrir gömlu dagana og með ósk um að starfið bæði í málfundafélag- inu og blaðinu megi blómg- ast um marga áratugi enn. Reykjavík, 12. nóv. 1980. Sverrir Júlíusson GLEÐILEG JÓL! Farsælt komandi ár! íþróttabandalag Suðurnesja GLEÐILEG JÓL! Farsælt komandi ár! Þökkum viöskiptavinum og starfs- mönnum gott samstart á liöna árinu. Baldur hf. ■ Simi 1736 paxi - ona
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.