Faxi - 01.12.1980, Side 47
15 ár frá stofnun Systra-
félags Kefiavíkursóknar
Á þessu ári eru 15 ár frá
stofnun Systrafélags Kefla-
vikursóknar. Félagið hefur
stöðugt unnið vel að sínu ætl-
unarverki og verið mikil lyfti-
stöng i öllu þvi sem lotið hef-
ur að málefnum kirkjunnar.
í tilefni afmælisins leitaði
Faxi til stjórnar félagsins um
að fá stutta frásögn affélags-
starfinu og fylgir sú frásögn
hér með ísamantekt ritara fé-
lagsins.
Faxi óskar félaginu til ham-
ingju með 15 árin og árnar
þvi allra heilla á ókomnum
árum.
Séra Björn Jónsson boðaði til
fundar í Sjálfstæðishúsinu í
Keflavík, 12. marz 1965. Mættu
þar 57 konur, sem rituðu nöfn
sín í bók er látin vargangaámilli
fundargesta, en stofnfélagar
töldust allir þeir er rituðu nöfn
sín fram til fyrsta aöalfundar,
eða um 100 félagar.
Á fundinum flutti séra Björn
ræðu þar sem hann lýsti þeirri
þörf sem væri fyrir kvenfélag
innan kirkjunnar. Að lokinni
ræðu séra Björns uþþhófust
fjörugar umræður um málefni
kirkjunnar og samþykkt voru lög
fyrir félagið, sem hlaut nafnið
Systrafélag Keflavíkursóknar.
Tilgangur félagsins er sá að
efla kristilegt safnaðarlíf og
vinna að menningar- og mann-
úöarmálum í prestakallinu á
þann hátt sem heppilegt er talið
á hverjum tíma.
Eftirtaldar konur skipuðu
fyrstu stjórnina: FormaðurSjöfn
Jónsdóttir, gladkeri Ásta Árna-
dóttir, ritari Sigríður Aðalsteins-
dóttir, meðstjórnendur Marta Ei-
ríksdóttirog Þorbjörg Pálsdóttir.
Þegar félagið var stofnað
stóðu yfir breytingar á kirkjunni
og var mikil þörf fyrir stuðning
safnaðarfólks. Beitti félagið sér
fyrir söfnun til kaupa á nýju
pípuorgeli og einnig gaf Systra-
félagið nýja kirkjubekki.
Eitt fyrsta stórmál Systrafél-
agsins var útg. minningarkorta,
en allur ágóði af sölu þeirra
hefur runnið í steindu gluggana
er prýða Keflavíkurkirkju, en
þegar því verkefni lauk var
minningarkortasjóðurinn
sameinaður Hjálparsjóði
Keflavíkurkirkju.
Eins og nærri má geta hafa
margar leiðir verið reyndar ífjár-
öflunarskyni. Þar má nefna
útgáfu fermingarkorta, en þau
þykja mjög falleg og sala þeirra
gengur ávallt vel, fjölskyldu-
skemmtanir í Staþa, basara,
kaffisölur og margt fleira.
Árið 1970 eignaðist Keflavík-
ursöfnuður Safnaðarheimiliö
Kirkjulund, frá þeim tíma hefur
allt starf Systrafélagsins farið
fram í því húsi. Fundir okkar eru
ágætlega sóttir. Rædd eru
félagsmál ýmiskonar.flutt erindi
og myndasýningar, en ánægju-
legustu fundirnir eru þó handa-
vinnukvöldin og hópvinnan sem
eru undanfari allra jóla-basara
sem við höldum.
Á fundi í Systrafélagi Keflavík-
Fyrsta atjórn og endunko&endur. Fremri röð: Asta Árnadóttir, Sjöfn L. Jóns-
dóttir, Sigríður Aöalsteinsdóttir. Aftari röö: Sigrid Toft, Marta Eiríksdóttir,
Þorbjörg Pálsdóttir, Steinunn Þorsteinsdóttir.
Núverandf stjórn. Fremriröð: Sóley Sigurjónsdóttir, RandlTræen, Helga Pót-
ursdóttir. Aftari röð: Jóna Ingimundardóttir, Gunnlaug Olsen, SvanaSveins-
dóttir.
urkirkju, sem haldinn var 21.
mars 1977, var samþykkt, að
opna félagið fyrir öllu safnaðar-
fólki er náð hefur 16 ára aldri, þá
var nafni félagsins breytt og
heitir það nú Safnaðarfélag
Keflavikurprestakalls. Breyting
þessi var gerð vegna óska er
höfðu komið fram hjá eigin-
mönnum félagskvenna. Aðeins
fáir karlar hafa gengið í félagið
enn sem komiö er. Kæri lesandi
hvort sem þú ert karl eða kona,
ef þú hefurnáð 16áraaldri þáert
þú velkominn sem félagi.
Um fjórðungur félaga hafa
setið í stjórn félagsins um lengri
eða skemmri tíma og flestir
gengt nefndarstörfum.
Núverandi stjórn skipa.
Formaður Randi Træen.
Gjaldkeri Sóley Sigurjónsdóttir.
Ritari Helga Pétursdóttir. Með-
stjórnendur Jóna Ingimundar-
dóttir, Gunnlaug Olsen og
Svana Sveinsdóttir.
Hvernig okkur hefur tekist að
framfylgja stefnuskrá félagsins
sem getið er um í upphafi verður
hver félagi að meta fyrir sig, en
mitt álit er þetta: Við mættum
sækja kirkju betur en við gerum,
menningin speglast í kirkju-
gluggunum og fundarsókninni,
mannúðarmálin læt ég liggja
milli hluta.
H.S.P.
Anægjulegustu fundirnir eru handavinnukvöldin fyrir jólabasarana
GLEÐILEG JOL!
Farsælt komandi ár!
Þökkum starfsfólki öllu á sjó og landi,
Grindvíkingum, svo og öðrum
viöskiptavinum liðna árið.
FISKANES hf., Grindavík
FAXI - 211